Ferill 693. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 1538 — 693. mál.
Svar
fjármála- og efnahagsráðherra við fyrirspurn frá Guðmundi Ara Sigurjónssyni um verðþróun á eldsneyti.
1. Hvert var meðalverð á bensíni og dísilolíu á almennum eldsneytismarkaði á tímabilinu 24.–31. maí sl.?
Á vormánuðum samþykkti Alþingi breytingar á lögum um virðisaukaskatt og á samkeppnislögum. Markmið lagasetningarinnar var að bregðast við verðhækkunum og óvissu á eldsneytismörkuðum vegna stríðsátaka í Miðausturlöndum. Með tímabundinni lækkun skatthlutfalls á eldsneyti á tímabilinu 1. maí til 31. ágúst var leitast við að draga úr áhrifum hækkandi heimsmarkaðsverðs.
Fjármála- og efnahagsráðuneyti safnar ekki upplýsingum frá eldsneytissölum um útsöluverð og sinnir ekki verðlagseftirliti á eldsneytismarkaði. Upplýsingar um skráð verð á einstökum sölustöðum eru hins vegar aðgengilegar almenningi á vefnum gasvaktin.is.
Í töflu 1 má sjá einfalt meðaltal samkvæmt vefsíðunni fyrir dagana 24.–31. maí 2026.
| Tafla 1. Meðalverð 24.–31. maí 2026. | |
| Bensín 95 | 227,7 kr. |
| Bensín 95 með afslætti | 221,2 kr. |
| Bensín allt | 224,8 kr. |
| Dísilolía | 262,9 kr. |
| Dísilolía með afslætti | 255,3 kr. |
| Dísilolía allt | 259,4 kr. |
2. Hvert væri meðalverð á bensíni og dísilolíu á almennum eldsneytismarkaði á sama tímabili hefði Alþingi ekki lækkað virðisaukaskatt á eldsneyti með lögum nr. 34/2026 og breytt ýmsum gjöldum á eldsneyti í tengslum við innleiðingu á kílómetragjaldi?
Ekki er unnt að segja með vissu hvert markaðsverð eldsneytis hefði orðið við aðrar skattalegar forsendur. Slíkt verð er ekki mælanlegt eftir á og hefði m.a. getað ráðist af viðbrögðum seljenda og neytenda. Unnt er að leggja mat á bein reiknuð áhrif skattbreytinganna að gefnum tilteknum forsendum.
Við innleiðingu kílómetragjalds með lögum nr. 100/2025 voru vörugjöld af eldsneyti felld niður en kolefnisgjald hækkað. Áður námu vörugjöld af bensíni 90,2 kr. á lítra og olíugjald 77,3 kr. á lítra. Kolefnisgjald hækkaði við breytingarnar um 5,65 kr. á lítra bensíns og 6,9 kr. á lítra dísilolíu. Nettóbreyting gjalda án virðisaukaskatts er því 84,55 kr. á lítra bensíns og 70,4 kr. á lítra dísilolíu. Við síðustu áramót voru krónutölugjöld hækkuð um 3,7% sem hefði einnig gilt um gjöld á eldsneyti ef ekki hefði komið til kerfisbreytingarinnar. Með fyrirvara
um íblöndun, álagningu og út frá því verði sem gefið er upp í töflu 1 má gera ráð fyrir því að verð eldsneytis, ef ekki hefði verið gripið til breytinga á gjöldum sem tengjast verði eldsneytis, hefði verið mun hærra en ella. Mismunur á verði í töflu 1 og töflu 2 er frá 120 til 135 kr. á lítra.
| Tafla 2. Meðalverð 24.–31. maí 2026 án gjaldabreytinga. | |
| Bensín 95 | 363,1 kr. |
| Bensín 95 með afslætti | 355,9 kr. |
| Bensín allt | 359,8 kr. |
| Dísilolía | 384,2 kr. |
| Dísilolía með afslætti | 375,7 kr. |
| Dísilolía allt | 380,3 kr. |