Ferill 478. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 1540 — 478. mál.
Svar
atvinnuvegaráðherra við fyrirspurn frá Ingibjörgu Davíðsdóttur um vinnu við breytingar á búvörulögum.
Fyrirspurnin hljóðar svo:
1. Hver var kostnaður við aðkeypta ráðgjöf eða aðra þjónustu vegna breytinga á búvörulögum frá 1. janúar 2024 til 1. febrúar 2026? Spurt er um heildarkostnað við innlenda og erlenda ráðgjöf og aðra þjónustu, sundurliðaðan eftir aðilum sem þjónustan var keypt af og starfsemi.
2. Hvað hefur falist í slíkri ráðgjöf/þjónustu?
3. Var einhver utanaðkomandi þjónusta eða ráðgjöf þegin án greiðslu yfir sama tímabil? Ef svo er, frá hvaða aðilum?
4. Hve margir fundir voru haldnir í tengslum við breytingar á búvörulögum á sama tímabili? Hvar voru þeir haldnir, hvenær og hverjir sátu fundina?
Á tímabilinu 1. janúar 2024 til 1. febrúar 2026 var ekki keypt ráðgjöf eða þjónusta á vegum ráðuneytisins vegna vinnu við breytingu á búvörulögum, nr. 99/1993, og þá var ekki fengin utanaðkomandi þjónusta eða ráðgjöf án greiðslu á sama tímabili. Frumvarp til laga um breytingu á búvörulögum var unnið og samið af sérfræðingum ráðuneytisins og byggðist sú vinna m.a. á upplýsingum sem ráðuneytið aflaði m.a. frá Finnlandi, Noregi, Þýskalandi og Evrópusambandinu, en þær upplýsingar bárust frá ráðuneytum, systurstofnunum Matvælastofnunar og Evrópusambandinu. Gagnaöflun fór að mestu fram árið 2023.
Samtals fóru fram 14 fundir og kynningar vegna breytinga á búvörulögum á tímabilinu 1. janúar 2024 til 1. febrúar 2026. Þeir fundir sem haldnir voru í tengslum við breytingu á búvörulögum á tímabilinu voru eftirfarandi:
1. 3. júní 2024, fundur haldinn í ráðuneytinu en fundinn sat starfsfólk ráðuneytisins ásamt Margréti Gísladóttur frá Samtökum fyrirtækja í landbúnaði.
2. 21. maí 2024, fundur haldinn í ráðuneytinu en fundinn sátu ásamt starfsfólki ráðuneytisins Breki Karlsson frá Neytendasamtökunum, Ólafur Stephensen frá Félagi atvinnurekenda, Ragnar Þór Ingólfsson frá VR, Benedikt S. Benediktsson og Andrés Magnússon frá Samtökum verslunar og þjónustu.
3. 23. október 2024, fundur haldinn í ráðuneytinu en fundinn sat ásamt starfsfólki ráðuneytisins Páll Gunnar Pálsson frá Samkeppniseftirlitinu.
4. 11. júní 2025, fundur haldinn í ráðuneytinu en fundinn sat ráðherra ásamt starfsfólki ráðuneytisins og Ólafi Stephensen frá Félagi atvinnurekenda.
5. 7. október 2025, fundur haldinn í ráðuneytinu með ráðherra og starfsfólki ráðuneytisins ásamt Margréti Gísladóttur, Sigurði Hannessyni og Sigurði Helga Birgissyni frá Samtökum fyrirtækja í landbúnaði og Samtökum iðnaðarins.
6. 7. október 2025, fundur haldinn í ráðuneytinu með ráðherra og starfsfólki ráðuneytisins ásamt Margréti Ágústu Sigurðardóttur, Trausta Hjálmarssyni, Rafni Bergssyni, Guðrúnu Björgu Egilsdóttur og Sigurbjörgu Ottesen frá Bændasamtökum Íslands.
7. 10. október 2025, kynningarfundur ráðuneytisins á Teams um drög að frumvarpi fyrir Bændasamtök Íslands.
8. 17. október 2025, fundur haldinn í ráðuneytinu en fundinn sat starfsfólk ráðuneytisins með Gunnari B. Sigurgeirssyni frá Örnu ehf.
9. 29. október 2025, fundur haldinn í ráðuneytinu en fundinn sat starfsfólk ráðuneytisins með Helga Rafni Gunnarssyni frá BioBúi.
10. 28. nóvember 2025, ráðherra tekur við undirskriftalista vegna boðaðra breytinga á búvörulögum frá Baldri Helga Benjamínssyni.
11. 11. desember 2025, fundur haldinn á Teams, kynning á drögum að frumvarpi til laga um breytingu á búvörulögum með Samkeppniseftirlitinu, fundinn sátu ásamt starfsfólki ráðuneytisins Páll Gunnar Pálsson og Magnús Þór Kristjánsson.
12. 12. desember 2025, fundur haldinn á Teams, kynning á drögum að frumvarpi til laga um breytingu á búvörulögum með hagaðilum, fundinn sat starfsfólk ráðuneytisins ásamt fulltrúum frá eftirtöldum hagaðilum: Bændasamtökum Íslands, Samtökum fyrirtækja í landbúnaði, Samtökum smáframleiðenda, félaginu Beint frá býli, Samtökum ungra bænda, Samtökum afurðastöðva í mjólkuriðnaði, Samtökum iðnaðarins, Samtökum verslunar og þjónustu, Neytendasamtökunum, Viðskiptaráði Íslands og Félagi atvinnurekenda.
13. 12. janúar 2026, fundur haldinn í ráðuneytinu með starfsfólki ráðuneytisins og Margréti Ágústu Sigurðardóttur, Trausta Hjálmarssyni, Hilmari Vilberg Gylfasyni og Katrínu Pétursdóttur frá Bændasamtökum Íslands.
14. 12. janúar 2026, fundur haldinn í ráðuneytinu með starfsfólki ráðuneytisins og Margréti Gísladóttur, Sigurði Helga Birgissyni og Finni Magnússyni fyrir hönd Samtaka fyrirtækja í landbúnaði.