Ferill 681. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 1541  —  681. mál.




Svar


atvinnuvegaráðherra við fyrirspurn frá Sigurjóni Þórðarsyni um nýtingu á útgefnum aflaheimildum.


     1.      Hvert er magn hlutdeildarsettra sjávardýra, sbr. lög um stjórn fiskveiða, nr. 116/2006, sem ekki hefur verið veitt á síðustu fimm fiskveiðiárum miðað við útgefnar aflaheimildir?
    Magn hlutdeildarsettra sjávardýra sem ekki var veitt á síðustu fimm fiskveiðiárum, miðað við útgefnar aflaheimildir, nam samtals 258.478.325 kg.

Tafla 1. Útgefið heildarmagn, veitt aflamagn og mismunur eftir tegundum síðustu fimm fiskveiðiár (kg).

Tegund Hlutdeild alls Veiði alls Mismunur alls
Arnarfjarðarrækja 910.000 911.858 -1.858
Blálanga 1.558.000 2.052.075 -494.075
Breiðafjarðarskel 186.000 101.224 84.776
Breiðasundsskel 162.000 128.641 33.359
Djúpkarfi 30.446.000 33.695.120 -3.249.120
Grálúða 66.919.000 62.067.554 4.851.446
Grásleppa 2.677.000 2.519.457 157.543
Gulllax 53.846.000 34.678.632 19.167.368
Hlýri 1.617.000 4.270.570 -2.653.570
Humar 143.000 112.803 30.197
Hvammsfjarðarskel 81.000 46.944 34.056
Ígulker svæði A 153.901 144.315 9.586
Ígulker svæði B 275.098 257.303 17.795
Ígulker svæði C 182.607 171.955 10.652
Karfi/gullkarfi 163.858.000 180.739.533 -16.881.533
Keila 16.845.000 9.730.826 7.114.174
Kolmunni 1.268.202.000 1.244.893.000 23.309.000
Langa 24.854.000 35.916.659 -11.062.659
Langlúra 6.061.000 3.257.971 2.803.029
Litli karfi 3.016.000 472.096 2.543.904
Loðna 1.090.415.000 927.796.000 162.619.000
Makríll 600.026.000 627.671.438 -27.645.438
Norsk-íslensk síld 441.874.000 476.177.000 -34.303.000
Rækja í Djúpi 1.109.000 1.140.103 -31.103
Rækja við Snæfellsnes 1.911.000 1.132.971 778.029
Sandkoli 1.572.000 3.592.003 -2.020.003
Síld 451.290.000 349.557.000 101.733.000
Skarkoli 38.213.000 37.937.169 275.831
Skrápflúra 40.000 78.776 -38.776
Skötuselur 1.539.000 1.238.200 300.800
Steinbítur 43.523.000 45.080.841 -1.557.841
Sæbjúga svæði F 1.017.941 733.909 284.032
Sæbjúga svæði G 3.634.764 2.956.109 678.655
Sæbjúga svæði H 1.031.555 483.028 548.527
Sæbjúga svæði D 143.522 123.158 20.364
Sæbjúga svæði E 1.234.267 673.289 560.978
Sæbjúga svæði A 529.146 260.488 268.658
Sæbjúga svæði B 250.888 196.210 54.678
Sæbjúga svæði C 127.577 41.751 85.826
Ufsi 359.865.000 242.747.494 117.117.506
Úthafsrækja 24.853.000 10.002.702 14.850.298
Ýsa 304.231.000 343.442.697 -39.211.697
Ýsa – meðafli – Rússland 404.000 243.704 160.296
Þorskur 1.101.457.000 1.165.150.041 -63.693.041
Þorskur – Noregur 19.677.000 19.113.759 563.241
Þorskur – Rússland 5.050.000 3.967.603 1.082.397
Þykkvalúra 5.440.000 6.266.962 -826.962

     2.      Hver var hlutfallsleg nýting aflaheimilda eftir fiskveiðiárum á sama tímabili?

Tafla 2. Hlutfallsleg nýting aflaheimilda eftir fiskveiðiárum.

Tegund 2020/2021 2021/2022 2022/2023 2023/2024 2024/2025
Arnarfjarðarrækja 108% 101% 101% 100% 91%
Blálanga 90% 111% 184% 150% 151%
Breiðafjarðarskel 45% 64%
Breiðasundsskel 70% 87% 84%
Djúpkarfi 93% 127% 131% 102%
Grálúða 97% 68% 99% 93% 115%
Grásleppa 94%
Gulllax 49% 71% 47% 61% 90%
Hlýri 405% 238% 195% 250% 241%
Humar 79%
Hvammsfjarðarskel 34% 64% 81%
Ígulker svæði A 84% 101% 98%
Ígulker svæði B 84% 101% 97%
Ígulker svæði C 84% 102% 98%
Karfi/gullkarfi 119% 117% 128% 103% 96%
Keila 153% 125% 66% 35% 29%
Kolmunni 107% 121% 90% 96% 91%
Langa 140% 165% 148% 138% 139%
Langlúra 86% 59% 51% 43% 45%
Litli karfi 14% 12% 10% 19% 23%
Loðna 101% 76% 100% 119%
Makríll 98% 104% 121% 75% 131%
Norsk-íslensk síld 82% 109% 119% 143% 103%
Rækja í Djúpi 102% 104%
Rækja við Snæfellsnes 84% 61% 15% 38% 98%
Sandkoli 249% 229% 249% 200% 226%
Síld 93% 98% 104% 94% 47%
Skarkoli 129% 94% 96% 91% 90%
Skrápflúra 144% 229%
Skötuselur 87% 49% 72% 124% 99%
Steinbítur 102% 96% 108% 111% 102%
Sæbjúga svæði F 84% 95% 20%
Sæbjúga svæði G 82% 99% 58%
Sæbjúga svæði H 82% 28% 23%
Sæbjúga svæði D 93% 82% 81%
Sæbjúga svæði E 83% 48% 30%
Sæbjúga svæði A 80% 57% 0%
Sæbjúga svæði B 81% 97% 46%
Sæbjúga svæði C 49% 30% 16%
Ufsi 72% 81% 65% 61% 55%
Úthafsrækja 62% 41% 40% 27% 29%
Ýsa 113% 121% 112% 111% 112%
Ýsa – meðafli – Rússland 60%
Þorskur 106% 107% 106% 105% 106%
Þorskur – Noregur 94% 100% 100% 92%
Þorskur – Rússland 79%

     3.      Í hvaða tilvikum og á hvaða fiskveiðiárum á sama tímabili hefur ónýtt hlutfall aflaheimilda numið meira en 5% af heildarúthlutun?
    Fiskveiðiárið 2020/2021 nam ónýtt hlutfall eftirfarandi tegunda meira en 5%: Breiðafjarðarskel, djúpkarfi, gulllax, langlúra, litli karfi, norsk-íslensk síld, humar, rækja við Snæfellsnes, síld, skötuselur, ufsi, úthafsrækja, ýsa sem meðafli í rússneskri lögsögu og þorskur í norskri og rússneskri lögsögu.
    Fiskveiðiárið 2021/2022 nam ónýtt hlutfall eftirfarandi tegunda meira en 5%: Breiðafjarðarskel, grálúða, gulllax, langlúra, litli karfi, loðna, rækja við Snæfellsnes, skarkoli, skötuselur, steinbítur, ufsi, úthafsrækja og þykkvalúra.
    Fiskveiðiárið 2022/2023 nam ónýtt hlutfall eftirfarandi tegunda meira en 5%: Breiðasundsskel, gulllax, Hvammsfjarðarskel, ígulker, keila, kolmunni, langlúra, litli karfi, rækja við Snæfellsnes, skötuselur, sæbjúga á öllum svæðum, ufsi og úthafsrækja.
    Fiskveiðiárið 2023/2024 nam ónýtt hlutfall eftirfarandi tegunda meira en 5%: Breiðasundsskel, grálúða, gulllax, Hvammsfjarðarskel, keila, langlúra, litli karfi, makríll, rækja við Snæfellsnes, síld, skarkoli, sæbjúga á svæðum H, D, E, A og C, ufsi, úthafsrækja og þorskur í norskri lögsögu.
    Fiskveiðiárið 2024/2025 nam ónýtt hlutfall eftirfarandi tegunda meira en 5%: Arnarfjarðarrækja, Breiðasundsskel, gulllax, Hvammsfjarðarskel, keila, kolmunni, langlúra, litli karfi, síld, skarkoli, sæbjúga á öllum svæðum, ufsi og úthafsrækja.