Ferill 90. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


157. löggjafarþing 2025–2026.
Nr. 6/157.

Þingskjal 688  —  90. mál.


Þingsályktun

um framkvæmdaáætlun í kynjajafnréttismálum fyrir árin 2026–2029.


    Alþingi ályktar skv. 26. gr. laga um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna, nr. 150/2020, að samþykkja eftirfarandi framkvæmdaáætlun ríkisstjórnarinnar í kynjajafnréttismálum fyrir árin 2026–2029:

A. KYN, ÁHRIF OG ÞÁTTTAKA

1. Framkvæmdasjóður kynjajafnréttismála.
    Á tímabilinu 2026–2029 verði verkefni úr þessari framkvæmdaáætlun styrkt. Um verði að ræða samstarfsverkefni ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands eða ráðuneyta og ríkisstofnana, félagasamtaka eða háskólasamfélagsins þar sem tilgangurinn sé að nýta niðurstöður, reynslu og þekkingu á sviði jafnréttismála eða innleiða tillögur sem megi telja til afraksturs aðgerða í þessari framkvæmdaáætlun. Dómsmálaráðuneyti auglýsi eftir umsóknum frá ráðuneytum og úthluti styrkjum að undangengnu faglegu mati skrifstofu jafnréttis- og mannréttindamála.
    Tímaáætlun: 2026–2029.
    Kostnaðaráætlun: 48 millj. kr.
    Ábyrgð: Dómsmálaráðuneyti.
    Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna: Markmið 5 og samþætting þess við önnur heimsmarkmið.

2. Samningur Sameinuðu þjóðanna um afnám allrar mismununar gagnvart konum.
    Samningur Sameinuðu þjóðanna um afnám allrar mismununar gagnvart konum verði markvisst kynntur. Útbúið verði kynningarefni um samninginn ætlað almenningi á íslensku, ensku og á auðskildu máli. Þá verði haldinn kynningarfundur um samninginn með samtökum kvenna sem standa vörð um réttindi kvenna.
    Markmið aðgerðarinnar verði að auka vitund um réttindi sem samningurinn á að tryggja.
    Tímaáætlun: 2026–2027.
    Kostnaðaráætlun: 3 millj. kr.
    Ábyrgð: Dómsmálaráðuneyti í samráði við Jafnréttisstofu.
    Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna: Einkum markmið 5.

3. Samþætting kynja- og jafnréttissjónarmiða fyrir kjörna fulltrúa og stjórnendur sveitarfélaga.
    Jafnréttisstofa haldi námskeið og veiti fræðslu um samþættingu kynja- og jafnréttissjónarmiða fyrir kjörna fulltrúa og stjórnendur sveitarfélaga. Fræðsluefni verði í framhaldinu aðgengilegt á vef Jafnréttisstofu og Sambands íslenskra sveitarfélaga.
    Markmið aðgerðarinnar verði að kynna þau verkfæri sem í boði eru þegar kemur að kynjasamþættingu og kenna nýtingu þeirra við stefnumótun og verklagsþróun í þágu sveitarfélaga og íbúa þeirra.
    Tímaáætlun: 2026–2028.
    Kostnaðaráætlun: Rúmist innan fjárheimilda.
    Ábyrgð: Innviðaráðuneyti og Jafnréttisstofa.
    Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna: Einkum markmið 5.

4. Hugræn vinna kynjanna.
    Unnið verði að því að fanga kynjamynstur hugrænnar vinnu á Íslandi. Unnin verði eigindleg rannsókn á hugrænni vinnu með viðtalsviðbót við megindlega tímarannsókn sem Hagstofa Íslands gerði fyrir forsætisráðuneyti. Í eigindlegu rannsókninni verði rýnt betur í niðurstöður megindlegu rannsóknarinnar sem endurspegla hugræna vinnu og ósýnilega verðmætasköpun hennar.
    Markmið aðgerðarinnar verði að fanga umfang hugrænnar vinnu kynjanna á Íslandi.
    Tímaáætlun: 2026–2027.
    Kostnaðaráætlun: 3 millj. kr.
    Ábyrgð: Dómsmálaráðuneyti í samstarfi við Háskóla Íslands.
    Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna: Einkum markmið 5 og 5.4.

5. Nýskapandi leiðir við fjármögnun jafnréttisverkefna ríkisins.
    Unnið verði að nýskapandi leiðum við fjármögnun jafnréttisverkefna ríkisins með útgáfu sjálfbærra kynjaðra skuldabréfa um fjármögnun verkefna sem stuðla að kynjajafnrétti.
    Markmið aðgerðarinnar verði að stuðla að fjárfestingartækifærum sem stuðla að sjálfbærni og jafnrétti.
    Tímaáætlun: 2026–2029.
    Kostnaðaráætlun: Rúmist innan fjárheimilda.
    Ábyrgð: Fjármála- og efnahagsráðuneyti.
    Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna: Einkum markmið 5.

6. Jafnrétti í nýsköpun.
    Unnið verði að því að bæta stöðu kvenna í nýsköpun. Á fyrri hluta tímabils framkvæmdaáætlunarinnar verði gerð heildstæð greining á stöðu kvenna í nýsköpunarumhverfinu. Leitast verði við að greina ástæður þess að stöðu kvenna í fjármögnunarumhverfi nýsköpunar er ábótavant og af hverju hlutur kvenna er minni en karla þegar kemur að fjármögnun verkefna og fjárfestingu í sprotafyrirtækjum. Þetta á sérstaklega við um tæknigreinar. Kynja- og jafnréttissjónarmið verði samþætt í endurskoðun á stoðkerfi nýsköpunar, mati á rannsóknaumhverfi og mati á rannsóknum. Sett verði upp mælaborð nýsköpunar og nýsköpunargátt þar sem hægt verði að kalla fram kyngreinda tölfræði.
    Markmið aðgerðarinnar verði að rannsaka og bæta stöðu kvenna í nýsköpunarumhverfinu.
    Tímaáætlun: 2026–2029.
    Kostnaðaráætlun: 2 millj. kr.
    Ábyrgð: Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneyti í samstarfi við Vísinda- og nýsköpunarráð.
    Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna: Einkum markmið 5.c og 9.5.

7. Jafnrétti í íþróttaumfjöllun í fjölmiðlum.
    Unnið verði að því að jafna hlut kynjanna í íþróttaumfjöllun. Birtingarmynd kvenna í íþróttaumfjöllun í fjölmiðlum verði metin og hvort þörf sé á úrbótum til að styrkja stöðu kvenna í íþróttaumfjöllun og auka umfjöllun um íþróttakonur.
    Markmið aðgerðarinnar verði að rannsaka stöðu íþróttakvenna í íþróttaumfjöllun.
    Tímaáætlun: 2026–2029.
    Kostnaðaráætlun: 2 millj. kr.
    Ábyrgð: Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneyti.
    Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna: Einkum markmið 5.1, 5.b, 5.c og 10.3.

8. Jafnrétti í fjölmiðlaumfjöllun.
    Metið verði hvort umfjöllun í fjölmiðlum sé í samræmi við 26. gr. laga um fjölmiðla, nr. 38/2011, þar sem segir að fjölmiðlum beri að gæta þess að sjónarmið jafnt karla og kvenna komi fram. Skoðað verði hvort fjölmiðlaumfjöllun sé almennt í samræmi við stöðu kvenna í samfélaginu. Leiðir til að auka sýnileika kvenna í fjölmiðlun verði greindar ef þörf þykir.
    Markmið aðgerðarinnar verði að rannsaka stöðu kvenna í fjölmiðlaumfjöllun og stuðla að nauðsynlegum úrbótum ef ástæða þykir til.
    Tímaáætlun: 2026–2029.
    Kostnaðaráætlun: 2 millj. kr.
    Ábyrgð: Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneyti.
    Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna: Einkum markmið 5.1, 5.b, 5.c og 10.3.

9. Jafnrétti og gervigreind.
    Samhliða stefnumótun og undirbúningi lagasetningar stjórnvalda um gervigreind verði áhrif þessarar tæknibyltingar á jafnréttismál metin og greind, bæði tækifæri sem felast í tækninni og áskoranir vegna hennar að því er snertir jafnrétti. Unnin verði úttekt þar sem litið verði til mögulegra áhrifa gervigreindar á jafnrétti á breiðum grundvelli. Markmið úttektar verði að auka getu hins opinbera til að takast á við hættu á hlutdrægni og mismunun í ákvarðanatöku sem byggist á eða hagnýtir gervigreind og benda stjórnvöldum á leiðir til úrbóta. Þar sem gervigreindartækni er í stöðugri þróun verði verkefninu skipt í tvo hluta:
     a.      Yfirlit á breiðum grundvelli.
     b.      Sérstakar tillögur til stjórnvalda.
    Markmið aðgerðarinnar verði að meta áhrif gervigreindar á jafnrétti.
    Tímaáætlun: 2026–2027.
    Kostnaðaráætlun: 3 millj. kr.
    Ábyrgð: Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneyti í samstarfi við Jafnréttisstofu.
    Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna: Einkum markmið 5.b.

10. Jafnréttisnefnd karla.
    Skipuð verði karlanefnd sem hafi það hlutverk að vinna skýrslu með yfirsýn yfir samfélagslega stöðu karla og drengja og þær áskoranir sem karlar og drengir standa frammi fyrir í tengslum við jafnréttismál. Nefndin skal skoða hvernig stefnumótun á sviði jafnréttismála geti betur tekið mið af stöðu karla og drengja og leggja fram tillögur um aukinn þátt karla í umræðum um jafnrétti kynjanna og hvernig megi virkja þá frekar til þátttöku í jafnréttisstarfi. Nefndin starfi í eitt ár.
    Markmið aðgerðarinnar verði að fá yfirsýn yfir áskoranir í jafnréttismálum sem karlar og drengir standa frammi fyrir.
    Tímaáætlun: 2026–2027.
    Kostnaðaráætlun: 5 millj. kr.
    Ábyrgð: Dómsmálaráðuneyti í samstarfi við Jafnréttisstofu.
    Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna: Markmið 5.

B. KYNJUÐ TÖLFRÆÐI OG MÆLABORÐ

11. Kyngreind tölfræði.
    Útbúið verði mælaborð sem innihaldi þá kyngreindu tölfræði sem til er og það verði vistað á vefsvæði dómsmálaráðuneytis og Jafnréttisstofu.
    Markmið aðgerðarinnar verði að kyngreindri tölfræði verði safnað saman á einn stað og þær tölur verði reglubundið uppfærðar.
    Tímaáætlun: 2026–2029.
    Kostnaðaráætlun: 2 millj. kr.
    Ábyrgð: Dómsmálaráðuneyti og Jafnréttisstofa í samstarfi við Hagstofu Íslands og aðra hagaðila.
    Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna: Einkum markmið 5.

12. Þróun mælikvarða í jafnréttismálum.
    Ýtt verði úr vör tilraunaverkefni um þróun mælikvarða og söfnun gagna til að meta framgang jafnréttismála á Íslandi í tengslum við lög um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna, nr. 150/2020, og lög um jafna meðferð á vinnumarkaði, nr. 86/2018.
    Markmið aðgerðarinnar verði að þróa mælikvarða um jafnrétti.
    Tímaáætlun: 2026–2029.
    Kostnaðaráætlun: 5 millj. kr.
    Ábyrgð: Dómsmálaráðuneyti í samstarfi við Hagstofu Íslands.
    Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna: Einkum markmið 5.

13. Mælaborð um jafnrétti á sveitarstjórnarstigi.
    Þróað verði mælaborð fyrir tölfræði á sviði jafnréttismála á sveitarstjórnarstigi í anda sambærilegs Evrópuverkefnis. Mælaborðið feli í sér myndræna framsetningu á breytum eins og hlutfalli kynjanna í sveitarstjórnum, nefndum og ráðum, og á upplýsingum um hlutfall sveitarfélaga með jafnlaunavottun og jafnréttisáætlanir, svo dæmi séu nefnd. Mælaborðið verði sérstaklega kynnt fyrir sveitarstjórnum í því skyni að mynda grundvöll til aðgerða sem stuðli að auknu jafnrétti.
    Markmið aðgerðarinnar verði að stuðla að auknu jafnrétti innan sveitarfélaga.
    Tímaáætlun: 2026–2027.
    Kostnaðaráætlun: Rúmist innan fjárheimilda.
    Ábyrgð: Innviðaráðuneyti í samstarfi við Samband íslenskra sveitarfélaga, Jafnréttisstofu og Hagstofu Íslands.
    Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna: Einkum markmið 5.

14. Söfnun kyngreindra tölfræðigagna í landbúnaði.
    Farið verði í markvissa söfnun á kyngreindum tölfræðigögnum varðandi stöðu kynjanna í landbúnaði. Skilgreint verði umfang og eðli þeirra gagna sem þörf er á að séu til staðar svo að hægt sé að leggja raunhæft mat á stöðu kynjanna innan greinarinnar. Í kjölfarið verði lagðar til leiðir til söfnunar nauðsynlegra gagna sem nýtast stjórnvöldum við samþættingu kynjasjónarmiða við ákvarðanatöku og stefnumótun í landbúnaði.
    Markmið aðgerðarinnar verði að rannsaka stöðu kynjanna í landbúnaði.
    Tímaáætlun: 2026–2027.
    Kostnaðaráætlun: Rúmist innan fjárheimilda.
    Ábyrgð: Atvinnuvegaráðuneyti.
    Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna: Einkum markmið 5, 8 og 10.

15. Söfnun kyngreindra tölfræðigagna í sjávarútvegi.
    Farið verði í markvissa söfnun á kyngreindum tölfræðigögnum varðandi stöðu kynjanna í sjávarútvegi og fiskeldi. Skilgreint verði umfang og eðli þeirra gagna sem þörf er á að séu til staðar svo að hægt sé að leggja raunhæft mat á stöðu kynjanna innan greinanna. Í kjölfarið verði lagðar til leiðir til söfnunar nauðsynlegra gagna sem nýtast stjórnvöldum við samþættingu kynjasjónarmiða við ákvarðanatöku og stefnumótun í sjávarútvegi.
    Markmið aðgerðarinnar verði að rannsaka stöðu kynjanna í sjávarútvegi.
    Tímaáætlun: 2026–2027.
    Kostnaðaráætlun: Rúmist innan fjárheimilda.
    Ábyrgð: Atvinnuvegaráðuneyti.
    Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna: Einkum markmið 5, 8 og 10.

16. Samþætting kynja- og jafnréttissjónarmiða við úthlutanir úr Loftslags- og orkusjóði.
    Unnið verði að greiningu á fyrirliggjandi kyngreindum gögnum í tengslum við styrkveitingar Loftslags- og orkusjóðs til kaupa einstaklinga á rafbílum, með sérstakri áherslu á að meta hvaða áhrif styrkveitingar hafi haft á jafnrétti kynjanna.
    Markmið aðgerðarinnar verði að rannsaka áhrif styrkveitinga á jafnrétti kynjanna.
    Tímaáætlun: 2026–2027.
    Kostnaðaráætlun: Rúmist innan fjárheimilda.
    Ábyrgð: Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneyti í samstarfi við Loftslags- og orkusjóð/ Umhverfis- og orkustofnun.
    Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna: Einkum markmið 5 og 7.

C. JAFNRÉTTI Á VINNUMARKAÐI OG KYNBUNDINN LAUNAMUNUR

17. Virðismat starfa í þágu launajafnréttis.
    Unnið verði að þróun og eftirfylgni virðismatskerfis í samræmi við yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar og Sambands íslenskra sveitarfélaga vegna kjarasamninga sem gerðir voru í mars 2024. Stýrihópur um virðismat starfa í þágu launajafnréttis stýri vinnu um þróun og innleiðingu kerfisins sem byggist á fyrri tillögum aðgerðahóps um launajafnrétti og jafnrétti á vinnumarkaði. Í samræmi við yfirlýsinguna liggi nýtt kerfi fyrir eigi síðar en í árslok 2026.
    Tímaáætlun: 2026.
    Kostnaðaráætlun: Rúmist innan fjárheimilda.
    Ábyrgð: Dómsmálaráðuneyti í samstarfi við fjármála- og efnahagsráðuneyti.
    Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna: Einkum markmið 5.1, 5.4, 5.5, 5.a, 5.c, 8.7, 8.8, 10.3 og 10.4.

18. Endurskoðun á jafnlaunakerfi.
    Lög og reglur um jafnlaunakerfi fyrirtækja og stofnana verði endurskoðuð með tilliti til reynslu af kerfinu og ábendinga sem fram hafa komið um framkvæmd þess.
    Markmið aðgerðarinnar verði að einfalda gildandi lög og reglur um jafnlaunakerfi til að gera ferlið skilvirkara og draga úr kostnaði við framkvæmd þess að teknu tilliti til markmiða laga um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna.
    Tímaáætlun: 2026–2029.
    Kostnaðaráætlun: Rúmist innan fjárheimilda.
    Ábyrgð: Dómsmálaráðuneyti.
    Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna: Einkum markmið 5.1, 8.5, 8.8, 16.5, 16.10 og 16.b.

19. Rannsókn á launamun kynjanna.
    Gerð verði rannsókn á launamun karla og kvenna á íslenskum vinnumarkaði í samstarfi við Hagstofu Íslands.
    Markmið aðgerðarinnar verði að rannsaka kynbundinn launamun og meta áhrif af starfi stjórnvalda á launamun karla og kvenna.
    Tímaáætlun: 2028.
    Kostnaðaráætlun: 5 millj. kr.
    Ábyrgð: Dómsmálaráðuneyti í samstarfi við Hagstofu Íslands.
    Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna: Einkum markmið 5.1, 8.5, 8.8, 16.5, 16.10 og 16.b.

20. Rannsókn á launamun innfæddra kvenna og innflytjendakvenna.
    Rannsókn fari fram á launamun milli innfæddra kvenna og innflytjendakvenna og mismunandi stöðu þeirra á vinnumarkaði, bæði í samanburði við karla í sömu stöðu og aðra minnihlutahópa.
    Markmið aðgerðarinnar verði að rannsaka hvort munur sé á stöðu innfæddra kvenna og innflytjendakvenna og hvort síðarnefndi hópurinn verði fyrir margþættri mismunun á vinnumarkaði.
    Tímaáætlun: 2028–2030.
    Kostnaðaráætlun: 2 millj. kr.
    Ábyrgð: Dómsmálaráðuneyti.
    Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna: Einkum markmið 5.1, 8.5 og 8.8.

21. Meðganga og fæðingarorlof.
    Unnin verði heildstæð greining á töku veikindaréttar á síðari hluta meðgöngu, einkum síðustu 4–8 vikur meðgöngu, nýtingu réttar til fæðingarorlofs eftir kynjum og endurkomu foreldra á vinnumarkað.
    Greiningin taki mið af þróun síðustu 20 ára og beini sjónum að þeim samfélagslegu, efnahagslegu og vinnumarkaðstengdu þáttum sem hafa áhrif á ákvarðanir foreldra og stöðu kynjanna í kjölfar meðgöngu og fæðingarorlofs.
    Markmið aðgerðarinnar verði að meta áhrif meðgöngu og fæðingarorlofs á stöðu kynjanna á vinnumarkaði og leggja mat á áhrif þessa á jafnrétti kynjanna á Íslandi.
     Tímaáætlun: 2026.
     Kostnaðaráætlun: 3 millj. kr.
     Ábyrgð: Félags- og húsnæðismálaráðuneyti í samstarfi við dómsmálaráðuneyti, Hagstofu Íslands og Háskóla Íslands.
     Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna: Einkum markmið 5 og 8.5.

D. KYNBUNDIÐ OG KYNFERÐISLEGT OFBELDI

22. Landsáætlun um aðgerðir gegn kynbundnu ofbeldi gegn konum, tímasettar aðgerðir 2026–2030.
    Unnin verði landsáætlun sem taki mið af ákvæðum samnings Evrópuráðsins um forvarnir og baráttu gegn ofbeldi á konum og heimilisofbeldi (Istanbúlsamningsins). Landsáætlunin verði á breiðum grunni með tímasettum aðgerðum á framkvæmdatíma aðgerðaáætlunar þessarar. Stýrihópur hafi það hlutverk að fylgja eftir framkvæmd og innleiðingu landsáætlunarinnar og einnig verði mælaborð með upplýsingum um stöðu aðgerða í landsáætluninni. Þá verði landsáætlunin m.a. kynnt á vef Stjórnarráðs Íslands.
    Markmið aðgerðarinnar verði að fylgja eftir og tryggja innleiðingu á ákvæðum samnings Evrópuráðsins um forvarnir og baráttu gegn ofbeldi á konum og heimilisofbeldi.
    Tímaáætlun: 2026–2029.
    Kostnaðaráætlun: 5 millj. kr.
    Ábyrgð: Dómsmálaráðuneyti.
    Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna: Einkum markmið 5.1, 5.2, 5.3, 5.6, 10.2, 10.3, 10.4, 16.1, 16.2, 16.3, 16.6 og 16.10.

23. Vitundarvakning um samning Evrópuráðsins um forvarnir og baráttu gegn ofbeldi á konum og heimilisofbeldi (Istanbúlsamninginn).
    Unnið verði að vitundarvakningu um samning Evrópuráðsins um forvarnir og baráttu gegn ofbeldi á konum og heimilisofbeldi (Istanbúlsamninginn) frá 2011, sbr. 13. gr. samningsins.
    Markmið aðgerðarinnar verði að auka vitund og skilning almennings um mismunandi birtingarmyndir ofbeldis sem falla undir gildissvið samningsins.
    Tímaáætlun: 2026–2027.
    Kostnaðaráætlun: 7 millj. kr.
    Ábyrgð: Dómsmálaráðuneyti.
    Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna: Einkum markmið 5.1, 5.2, 5.3, 5.6, 16.1, 16.2, 16.3, 16.6 og 16.10.

24. Áfallamiðuð nálgun í réttarvörslukerfinu og þarfir kvenna í fangelsum.
    Starfsfólk Fangelsismálastofnunar fái fræðslu og þjálfun í áfallamiðaðri nálgun til að koma til móts við mismunandi þarfir kvenna og karla sem eru vistuð í fangelsum með það að leiðarljósi að auka öryggi, hvort sem horft er til samskiptahátta, í nærumhverfinu eða þegar út í samfélagið er komið. Sérhæfðir aðilar verði fengnir inn í fangelsin til að sinna innleiðingu á áfallamiðaðri nálgun, fræðslu, þjálfun og framþróun.
    Markmið aðgerðarinnar verði að auka þekkingu starfsfólks Fangelsismálastofnunar á mismunandi áhrifum og afleiðingum áfalla á kynin svo að hægt sé að skapa umhverfi sem auki öryggistilfinningu þeirra sem eru í fangelsum.
    Tímaáætlun: 2026–2029.
    Kostnaðaráætlun: 4 millj. kr.
    Ábyrgð: Dómsmálaráðuneyti í samstarfi við Fangelsismálastofnun.
    Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna: Markmið 3, einkum 3.5, 4 og 16, einkum 16.1.

25. Karlar og kynbundið ofbeldi.
    Skipaður verði starfshópur um karla og jafnrétti sem skoði sérstaklega hlutverk karla í baráttunni gegn kynferðisofbeldi. Verkefnið taki m.a. til sambandsins milli kynbundinnar og kynferðislegrar áreitni og ofbeldis annars vegar og hugmynda um karlmennsku, mörk og samþykki hins vegar. Starfshópurinn taki mið af samþykktum leiðbeiningum Evrópuráðsins um hlutverk karla og drengja í jafnréttismálum og forvörnum gegn kynbundnu ofbeldi.
    Markmið aðgerðarinnar verði að finna leiðir til að virkja karla frekar í baráttunni gegn kynferðislegu og kynbundnu ofbeldi.
    Tímaáætlun: 2026–2027.
    Kostnaðaráætlun: 5 millj. kr.
    Ábyrgð: Dómsmálaráðuneyti í samstarfi við Jafnréttisstofu og aðra hagaðila.
    Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna: Markmið 3, 4, 5, einkum 5.2, og 16, einkum 16.1.

26. Heiðursofbeldi og neikvætt félagslegt taumhald.
    Fræðsla um einkenni og birtingarmyndir heiðursofbeldis og neikvæðs félagslegs taumhalds verði efld meðal starfsmanna í félagsþjónustu, lögreglu, innan skóla og á frístundasviði, innan heilbrigðiskerfisins og hjá öðrum viðeigandi aðilum. Unnið verði fræðsluefni og því miðlað meðal framangreindra aðila.
    Markmið aðgerðarinnar verði að efla þekkingu á birtingarmyndum neikvæðs félagslegs taumhalds og heiðursofbeldis og hvernig bregðast skuli við því.
    Tímaáætlun: 2026–2027.
    Kostnaðaráætlun: 5 millj. kr.
    Ábyrgð: Félags- og húsnæðismálaráðuneyti.
    Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna: Einkum markmið 5.3 og 16.1.

27. Þjónustuúrræði fyrir gerendur heimilis- og kynferðisofbeldis.
    Kortlögð verði þau úrræði sem standa gerendum heimilis- og kynferðisofbeldis til boða í samanburðarlöndum með það að markmiði að fjölga og bjóða upp á fjölbreyttari úrræði fyrir gerendur kynbundins ofbeldis.
    Markmið aðgerðarinnar verði að skoða hvernig fjölga megi úrræðum fyrir gerendur kynbundins ofbeldis.
    Tímaáætlun: 2027–2028.
    Kostnaðaráætlun: 5 millj. kr.
    Ábyrgð: Félags- og húsnæðismálaráðuneyti.
    Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna: Einkum markmið 5.2 og 16.1.

28. Innleiðing verklags í heilbrigðisþjónustu til handa þolendum ofbeldis.
    Unnið verði mat á árangri á verklagi sem innleitt var í heilbrigðiskerfinu við móttöku þolenda heimilisofbeldis. Teknar verði saman tölfræðiupplýsingar úr rafrænu skráningarformi fyrir heimilisofbeldismál og kallað eftir upplifun heilbrigðisstarfsmanna af verklaginu.
    Markmið aðgerðarinnar verði að fá upplýsingar um birtingarmyndir heimilisofbeldis í heilbrigðiskerfinu á Íslandi og meta reynslu af nýju verklagi.
    Tímaáætlun: 2026–2029.
    Kostnaðaráætlun: Rúmist innan fjárheimilda.
    Ábyrgð: Heilbrigðisráðuneyti.
    Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna: Einkum markmið 5.2 og 16.1.

29. Kynferðisleg áreitni í ferðaþjónustu.
    Unnin verði greining á kynferðislegri áreitni gagnvart konum sem starfa í ferðaþjónustu og lagt mat á hvers vegna kynferðisleg áreitni er jafn algeng og raun ber vitni innan starfsgreinarinnar. Skoðaðar verði leiðir til að draga úr kynferðislegri áreitni og auka öryggi kvenna sem starfa í ferðaþjónustu, hvort sem það er með lagabreytingu, fræðslu, vinnufyrirkomulagi eða öðrum hætti.
    Markmið aðgerðarinnar verði að vinna gegn kynferðislegri áreitni og auka öryggi kvenna sem starfa í ferðaþjónustu.
    Tímaáætlun: 2026–2029.
    Kostnaðaráætlun: 2 millj. kr.
    Ábyrgð: Atvinnuvegaráðuneyti.
    Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna: Einkum markmið 5.1, 5.2, 10.3 og 16.1.

E. JAFNRÉTTI Í MENNTUN OG ÍÞRÓTTA- OG ÆSKULÝÐSSTARFI

30. Jafnréttisfræðsla á öllum skólastigum.
    Til þess að tryggja að jafnréttisfræðsla sé fléttuð inn í kennslu á öllum skólastigum, sbr. 15. gr. laga um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna, nr. 150/2020, verði gæðaviðmið við mat á starfi leik-, grunn- og framhaldsskóla og frístundastarfi grunnskóla endurskoðuð. Þannig verði stuðlað að markvissri jafnréttisfræðslu samkvæmt aðalnámskrám. Jafnframt verði gert ráð fyrir úttekt á jafnréttisfræðslu í þriggja ára áætlun mennta- og barnamálaráðuneytis.
    Markmið aðgerðarinnar verði að flétta jafnréttisfræðslu inn í kennslu á öllum skólastigum.
    Tímaáætlun: 2026–2029.
    Kostnaðaráætlun: Rúmist innan fjárheimilda.
    Ábyrgð: Mennta- og barnamálaráðuneyti í samstarfi við Jafnréttisstofu.
    Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna: Einkum markmið 3, 4 og 5.

31. Þekking starfsfólks í framhaldsskólum á sviði kynja- og jafnréttisfræða.
    Þekking kennara, stjórnenda og annars starfsfólks í framhaldsskólum á kynja- og jafnréttisfræðum verði efld, m.a. til að tryggja samþættingu innan skólanna og færni kennara til að kenna slík fög og flétta inn í aðra kennslu og starfsemi skólanna.
    Markmið aðgerðarinnar verði að auka þekkingu á kynja- og jafnréttisfræðum meðal kennara, stjórnenda og annars starfsfólks í öllum framhaldsskólum á landinu.
    Tímaáætlun: 2026–2029.
    Kostnaðaráætlun: 5 millj. kr.
    Ábyrgð: Mennta- og barnamálaráðuneyti í samstarfi við menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneyti og Háskóla Íslands.
    Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna: Einkum markmið 3, 5, 10 og 16.

32. Brotthvarf drengja og nemenda með annað móðurmál en íslensku úr námi.
    Ástæður brotthvarfs úr námi á framhaldsskólastigi verði skoðaðar, sérstaklega meðal drengja og nemenda með annað móðurmál en íslensku. Samhliða verði niðurstöður rannsókna og önnur þekking um orsakir brotthvarfs nýttar til stefnumótunar, m.a. til að móta markvissari úrræði gegn brotthvarfi úr námi.
    Markmið aðgerðarinnar verði að draga úr brotthvarfi drengja og nemenda með annað móðurmál en íslensku úr námi á framhaldsskólastigi.
    Tímaáætlun: 2026–2029.
    Kostnaðaráætlun: Rúmist innan fjárheimilda.
    Ábyrgð: Mennta- og barnamálaráðuneyti.
    Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna: Einkum markmið 4.1, 4.3, 4.5, 4.6, 4.c og 5.1.

33. Uppfærsla á gátlista Miðstöðvar menntunar og skólaþjónustu.
    Gátlisti fyrir námsefnishöfunda verði yfirfarinn og uppfærður svo að hann henti fyrir öll skólastig og þjóni betur breyttu samfélagi. Úthlutun úr þróunarsjóði námsgagna taki mið af því hvort námsefni hafi verið unnið með hliðsjón af uppfærðum gátlista Miðstöðvar menntunar og skólaþjónustu. Einnig verði námsefni sem unnið hefur verið með hliðsjón af gátlista sem tengist jafnréttis- og kynjafræðum eftir skólastigum gert aðgengilegt með rafrænum hætti.
    Markmið aðgerðarinnar verði að tryggja að allt nýtt námsefni og námsefni sem tekið er til endurskoðunar taki tillit til fólks af öllum kynjum og fjölbreytileika samfélagsins.
    Tímaáætlun: 2026–2028.
    Kostnaðaráætlun: Rúmist innan fjárheimilda.
    Ábyrgð: Mennta- og barnamálaráðuneyti í samstarfi við Miðstöð menntunar og skólaþjónustu.
    Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna: Einkum markmið 3, 4 og 5.

34. Einelti, kynbundin og kynferðisleg áreitni og ofbeldi (EKKO) í framhaldsskólum.
    Unnið verði að vitundarvakningu um jafnréttismál í framhaldsskólum með eflingu fræðslu og þekkingar á jafnrétti og EKKO-málum.
    Markmið aðgerðarinnar verði að auka þekkingu á EKKO-málum í framhaldsskólum.
    Tímaáætlun: 2026–2028.
    Kostnaðaráætlun: 3 millj. kr.
    Ábyrgð: Mennta- og barnamálaráðuneyti.
    Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna: Einkum markmið 3, 4, 5 og 10.

35. Jafnrétti í íþróttastarfi.
    Unnið verði að virkri þátttöku í sameiginlegu verkefni Evrópusambandsins og Evrópuráðsins um aukið jafnrétti í íþróttum.
    Markmið aðgerðarinnar verði að marka farveg stefnumótunar í jafnréttismálum í íþróttum.
    Tímaáætlun: 2026–2028.
    Kostnaðaráætlun: Rúmist innan fjárheimilda.
    Ábyrgð: Mennta- og barnamálaráðuneyti í samstarfi við Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands.
    Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna: Einkum markmið 5.5 og 16.7.

36. Jafnrétti í stefnumótun í íþróttum.
    Staðið verði fyrir opnum fundi um jafnrétti í íþróttum í samráði við helstu hagaðila íþróttastarfs á Íslandi.
    Markmið aðgerðarinnar sem felst í opnum fundi verði að styðja við stefnumótun og jafnrétti í íþróttastarfi, sbr. aðgerð 35.
    Tímaáætlun: 2026–2027.
    Kostnaðaráætlun: 1 millj. kr.
    Ábyrgð: Mennta- og barnamálaráðuneyti.
    Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna: Einkum markmið 3, 5 og 5.c.

37. Endurskoðun íþróttalaga með tilliti til jafnréttis.
    Unnið verði að heildarendurskoðun íþróttalaga, nr. 64/1998. Meðal fyrirhugaðra breytinga verði ný ákvæði um jafnrétti í íþróttastarfi, sbr. 15. gr. laga um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna.
    Markmið aðgerðarinnar verði að auka vægi jafnréttismála í íþróttastarfi.
    Tímaáætlun: 2026–2027.
    Kostnaðaráætlun: Rúmist innan fjárheimilda.
    Ábyrgð: Mennta- og barnamálaráðuneyti.
    Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna: Einkum markmið 3 og 5.

38. Jöfn kynjahlutföll og fjölbreyttur nemendahópur á háskólastigi.
    Unnið verði að því að jafna kynjahlutföll nemenda á háskólastigi og að nemendur á háskólastigi endurspegli fjölbreytileika samfélagsins. Ástæður kynjahalla verði greindar og samhliða ráðist í markvisst átak til að miðla upplýsingum til þeirra hópa sem skila sér ekki í háskólanám ásamt öðrum aðgerðum til að ná til hópanna. Einnig verði metin kynjaáhrif annars konar námsmats en stúdentsprófs til grundvallar inngöngu í háskóla.
    Markmið aðgerðarinnar verði að jafna kynjahlutföll nemenda á háskólastigi.
    Tímaáætlun: 2026–2029.
    Kostnaðaráætlun: 8–10 millj. kr.
    Ábyrgð: Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneyti í samstarfi við mennta- og barnamálaráðuneyti.
    Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna: Einkum markmið 4.3, 4.4 og 4.5.

F. ALÞJÓÐASTARF

39. Málsvarastarf og aðgerðir Íslands á alþjóðavettvangi í þágu kynjajafnréttis.
    Eflt verði alþjóðlegt málsvarastarf og aðgerðir Íslands á sviði kynjajafnréttismála. Byggt verði á árangri undanfarinna ára með það að markmiði að sporna við víðtæku bakslagi á sviði kynjajafnréttismála. Verkefnið feli í sér eftirfarandi þætti:
     a.      Samráð og samstarf við líkt þenkjandi ríki, alþjóðastofnanir og félagasamtök um eflingu kynjajafnréttis og þátttöku í aðgerðabandalögum á því sviði.
     b.      Stutt verði við sérstök jafnréttisverkefni í þróunarríkjum í samræmi við áherslur í stefnu Íslands á sviði alþjóðlegrar þróunarsamvinnu 2024–2028.
     c.      Sinnt verði málsvarastarfi og verkefnum sem miða að því að fá karlmenn og drengi að jafnréttismálum, m.a. með skipulagningu viðburða, svo sem rakarastofuráðstefna á vettvangi alþjóðastofnana.
     d.      Áhersla verði lögð á kynjajafnrétti í mannréttindaráði Sameinuðu þjóðanna á meðan Ísland á sæti í ráðinu 2025–2027.
     e.      Áhersla verði lögð á upplýsingamiðlun um jafnréttismál á Íslandi í gegnum vefmiðla og störf utanríkisþjónustunnar.
    Markmið aðgerðarinnar verði að efla málsvarastarf og aðgerðir á alþjóðavettvangi í þágu kynjajafnréttis.
    Tímaáætlun: 2026–2029.
    Kostnaðaráætlun: Rúmist innan fjárheimilda.
    Ábyrgð: Utanríkisráðuneyti.
    Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna: Einkum markmið 5.

40. Fjórða landsáætlun Íslands um framkvæmd ályktunar öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna um konur, frið og öryggi.
    Unnið verði markvisst að framkvæmd og kynningu á fjórðu landsáætlun Íslands um konur, frið og öryggi 2025–2030. Verkefnið byggist á ályktun öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna nr. 1325 frá árinu 2000 og tengdum ályktunum sem kveða m.a. á um framlag kvenna til öryggis og friðar í heiminum.
    Markmið verkefnisins verði að vinna að framfylgd ályktana öryggisráðsins með markvissri framkvæmd aðgerða í fjórðu landsáætlun Íslands um konur, frið og öryggi.
    Tímaáætlun: 2026–2029.
    Kostnaðaráætlun: Rúmist innan fjárheimilda.
    Ábyrgð: Utanríkisráðuneyti.
    Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna: Einkum markmið 5 og 16.

41. Aukin kynjasamþætting og efnahagsleg valdefling kvenna í alþjóðaviðskiptum.
    Unnið verði að því að móta áherslur um áframhaldandi framkvæmd og eftirfylgni með kynjasamþættingu og efnahagslegri valdeflingu kvenna í alþjóðaviðskiptum. Verkefnið feli í sér eftirfarandi þætti:
     a.      Kortlagningu á starfi annarra ríkja varðandi efnahagslega valdeflingu kvenna til að draga lærdóm af hér á landi.
     b.      Greiningu á því hvaða upplýsingar og kyngreind gögn vanti til þess að móta markmið og mælikvarða.
     c.      Samráð við konur í atvinnulífinu um hvernig megi efla þátttöku kvenna í alþjóðaviðskiptum.
    Markmið verkefnisins verði að kortleggja og greina leiðir til þess að móta áherslur þegar kemur að valdeflingu kvenna í alþjóðaviðskiptum.
    Tímaáætlun: 2026–2029.
    Kostnaðaráætlun: Rúmist innan fjárheimilda.
    Ábyrgð: Utanríkisráðuneyti.
    Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna: Einkum markmið 5 og 8.

Samþykkt á Alþingi 2. febrúar 2026.