Ferill 115. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


157. löggjafarþing 2025–2026.
Nr. 7/157.

Þingskjal 689  —  115. mál.


Þingsályktun

um stefnu í neytendamálum til ársins 2030.


    Alþingi ályktar að fela atvinnuvegaráðherra að vinna að framkvæmd eftirfarandi stefnu í neytendamálum og aðgerðaáætlun fyrir árin 2026–2030.

I. FRAMTÍÐARSÝN

    Á Íslandi verði traust umgjörð neytendamála sem stuðli að virkri samkeppni og veiti neytendum vernd, réttarstöðu og nauðsynlegar upplýsingar til að geta tekið upplýstar ákvarðanir, um leið og óréttmætum viðskiptaháttum er mætt af festu.

II. MEGINMARKMIÐ

    Meginmarkmið stefnu í neytendamálum verði að tryggja framtíðarsýn skv. I. kafla til lengri tíma. Í því skyni verði unnið að þeim aðgerðum sem koma fram í þingsályktun þessari á árunum 2026–2030 í samráði við helstu hagsmunaaðila.

III. AÐGERÐAÁÆTLUN

    Unnið verði í samræmi við eftirfarandi aðgerðaáætlun til að tryggja framgang stefnu í neytendamálum til ársins 2030.

1. Endurskoðun löggjafar til að efla neytendavernd.
    Unnið verði að heildarendurskoðun á löggjöf á sviði neytendamála með það fyrir augum að efla rétt neytenda með áherslu á virkt markaðseftirlit, skýra upplýsingagjöf, úrlausn ágreiningsmála, málsóknarheimildir, samræmi við löggjöf á Evrópska efnahagssvæðinu, einföldun regluverks, sektarheimildir, aukinn skýrleika og skilvirkni reglna á sviði neytendamála.
    Ábyrgð: Atvinnuvegaráðuneyti.
    Dæmi um samstarfsaðila: Neytendastofa, Neytendasamtökin og atvinnulífið.
    Tímaáætlun: 2026–2030.

2. Stofnanaumgjörð neytendamála.
    Stofnanaumgjörð neytendamála verði styrkt í þágu neytenda, skilvirkni verði aukin og tryggt að stjórnvöld á sviði neytendamála geti uppfyllt lögbundin verkefni sín með fullnægjandi hætti, verið stjórnvöldum til ráðgjafar og veitt almenningi og fyrirtækjum faglega þjónustu. Kærunefndir á sviði neytendamála verði að sama skapi efldar til að sinna lögbundnum verkefnum sínum við úrlausn ágreiningsmála. Einnig verði stutt við starf frjálsra samtaka á sviði neytendamála til hagsbóta fyrir neytendur.
    Ábyrgð: Atvinnuvegaráðuneyti.
    Dæmi um samstarfsaðila: Neytendastofa, Neytendasamtökin, úrskurðar- og kærunefndir á sviði neytendamála og Hagsmunasamtök heimilanna.
    Tímaáætlun: 2026–2028.

3. Áhersla á netviðskipti og stafvæðingu á sviði neytendamála.
    Unnið verði að nútímavæðingu neytendaverndarlöggjafar með hliðsjón af tækniþróun og þróun markaðarins og m.a. innleiddar nýlegar tilskipanir Evrópusambandsins sem lúta að viðskiptum á netinu og stafvæðingu, með áherslu á að tryggja stöðu neytenda betur í nýju umhverfi netviðskipta, vöruöryggi og bætta þjónustu við neytendur.
    Ábyrgð: Atvinnuvegaráðuneyti.
    Dæmi um samstarfsaðila: Neytendastofa, Neytendasamtökin, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun og atvinnulífið.
    Tímaáætlun: 2026–2028.

4. Græn umbreyting í neytendamálum.
    Unnið verði að lagabreytingum sem tryggja neytendum betri upplýsingar til að geta tekið upplýstar ákvarðanir við kaup á vöru og þjónustu út frá sjálfbærni og vistspori þeirrar vöru og þjónustu sem um ræðir. Lögð verði m.a. áhersla á vörumerkingar, gagnsæi og öryggi upplýsinga, hringrásarhagkerfið og aðgerðir gegn grænþvotti.
    Ábyrgð: Atvinnuvegaráðuneyti.
    Dæmi um samstarfsaðila: Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneyti, Neytendastofa, Neytendasamtökin og atvinnulífið.
    Tímaáætlun: 2026–2028.

5. Aukin neytendavernd á sviði fjármálaþjónustu og áhersla á fjármálalæsi.
    Unnið verði að úrbótum á upplýsingagjöf og leiðbeiningum gagnvart neytendum í tengslum við lánveitingar út frá mismunandi lánaformum, áhrifum vaxta, verðbólgu o.fl. Tryggt verði að miðlun upplýsinga til neytenda um fjármálaþjónustu verði með sem aðgengilegustum og skilvirkustum hætti og unnið verði að eflingu fjármálalæsis.
    Ábyrgð: Atvinnuvegaráðuneyti.
    Dæmi um samstarfsaðila: Neytendastofa, Seðlabanki Íslands, Neytendasamtökin, Hagsmunasamtök heimilanna og atvinnulífið.
    Tímaáætlun: 2026–2027.

6. Aukin neytendavernd við fasteignakaup.
    Lög um sölu fasteigna og skipa, nr. 70/2015, og lög um fasteignakaup, nr. 40/2002, verði tekin til endurskoðunar með áherslu á úrbætur sem stuðli að aukinni neytendavernd og réttaröryggi á sviði fasteignaviðskipta. Endurskoðunin nái m.a. til ákvæða um ástandsskýrslur fasteigna, hlutverk og ábyrgð fasteignasala.
    Ábyrgð: Atvinnuvegaráðuneyti.
    Dæmi um samstarfsaðila: Neytendastofa, Neytendasamtökin og Félag fasteignasala.
    Tímaáætlun: 2026–2028.

7. Meginregla um íslensku í markaðssetningu.
    Unnið verði að því að framfylgja þeirri meginreglu að allar auglýsingar sem beinast að neytendum skuli vera á íslensku með það að markmiði að styrkja stöðu neytenda og tungumálsins.
    Ábyrgð: Atvinnuvegaráðuneyti og menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneyti.
    Dæmi um samstarfsaðila: Neytendastofa og Neytendasamtökin.
    Tímaáætlun: 2026–2030.

8. Neytendavernd viðkvæmra hópa.
    Lögð verði sérstök áhersla á eflingu neytendaverndar fyrir viðkvæma hópa, svo sem börn, eldri borgara og fatlað fólk, og farið sérstaklega yfir löggjöf á sviði neytendaverndar með tilliti til þess markmiðs.
    Ábyrgð: Atvinnuvegaráðuneyti.
    Dæmi um samstarfsaðila: Neytendastofa, Neytendasamtökin, Fjármálaeftirlitið og Hagsmunasamtök heimilanna.
    Tímaáætlun: 2026–2028.

9. Áhersla á rannsóknir, upplýsingagjöf og fræðslu til að auka neytendavitund.
    Stutt verði í auknum mæli við rannsóknir, fræðslu og upplýsingagjöf á sviði neytendamála til að auka neytendavitund á Íslandi og virkni neytenda.
    Ábyrgð: Atvinnuvegaráðuneyti.
    Dæmi um samstarfsaðila: Neytendastofa og Neytendasamtökin.
    Tímaáætlun: 2026–2030.

10. Markviss vöktun á þróun verðlags og vísitölu og undirliggjandi áhrifaþáttum.
    Sérstakt markaðs- og neytendateymi á vegum atvinnuvegaráðuneytis vakti og greini þróun verðlags og vísitölu neysluverðs, vakti undirliggjandi áhrifaþætti og miðli reglulega upplýsingum um þá. Teymið starfi með hagsmuni neytenda að leiðarljósi.
    Ábyrgð: Atvinnuvegaráðuneyti.
    Dæmi um samstarfsaðila: Hagstofan, ASÍ, Neytendastofa og Samkeppniseftirlitið.
    Tímaáætlun: 2026–2030.

Samþykkt á Alþingi 2. febrúar 2026.