Ferill 12. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
158. löggjafarþing 2026–2027.
Prentað upp.
Þingskjal 12 — 12. mál.
Flutningsmenn.
Tillaga til þingsályktunar
um heimavist fyrir Fjölbrautaskóla Suðurlands.
Flm.: Ingveldur Anna Sigurðardóttir, Jens Garðar Helgason, Bryndís Haraldsdóttir, Diljá Mist Einarsdóttir.
Alþingi ályktar að fela mennta- og barnamálaráðherra að stofna heimavist við Fjölbrautaskóla Suðurlands. Heimavistin verði notuð sem búsetuúrræði fyrir framhaldsskólanema á veturna og sem gistiaðstaða fyrir ferðamenn á sumrin. Verkefnið verði samstarfsverkefni opinberra aðila og einkaaðila (e. public-private partnership). Gerður verði langtímaleigusamningur um notkun heimavistarinnar á veturna með það að markmiði að flýta fyrir uppbyggingu varanlegrar aðstöðu. Stefnt verði að því að undirbúningi framkvæmda ljúki árið 2026 og framkvæmdir hefjist í beinu framhaldi.
Greinargerð.
Heimavist fyrir nemendur Fjölbrautaskóla Suðurlands hefur verið á hrakhólum undanfarin ár. Árið 2016 rann út leigusamningur um heimavist sem lengi hafði verið starfrækt á Eyravegi 26 á Selfossi. Frá árinu 2020 til 2026 dvöldu nemendur á gistiheimilinu Selfoss Hostel í húsnæði með ferðamönnum og um tíma farandverkamönnum. Skólaárið 2026–2027 verður ekki boðið upp á heimavist þar sem viðeigandi húsnæði fannst ekki þrátt fyrir ítrekaða leit. Stofna þarf til varanlegrar heimavistar sem þjónar þörfum nemenda. Aðgengi að öruggri og aðlaðandi heimavist skiptir sköpum fyrir nemendur sem koma úr dreifbýli. Húsnæðisóöryggi, hvort sem það er húsnæðisleysi eða það að deila húsnæði með ferðamönnum, skapar lakari aðstæður til náms þar sem óstöðugt umhverfi og skortur á næði hefur áhrif á vellíðan og námsárangur.
Með því að þróa heimavistina sem samstarfsverkefni opinberra aðila og einkaaðila skapast grundvöllur fyrir hagkvæma og fjölbreytta nýtingu húsnæðisins allt árið um kring. Slík lausn getur jafnframt flýtt fyrir uppbyggingu og tryggt að ungt fólk geti stundað nám óháð búsetu. Æskilegt kann að vera að uppbygging og rekstur heimavistarinnar verði alfarið í höndum einkaaðila en samningur gerður við hið opinbera um afnot á veturna.