Ferill 85. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


158. löggjafarþing 2026–2027.
Þingskjal 85  —  85. mál.




Fyrirspurn


til menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra um Bókasafnssjóð höfunda.

Frá Bryndísi Haraldsdóttur.


     1.      Telur ráðherra eðlilegt og sanngjarnt að ríkið geti einhliða ákveðið árlegt endurgjald til höfunda og annarra rétthafa fyrir afnot verka þeirra á bókasöfnum, án samninga eða tengingar við hlutlæga mælikvarða á borð við fjölda útlána, verðlag eða launaþróun?
     2.      Hvernig hyggst ráðherra stuðla að aukinni útgáfu bóka á íslensku, sérstaklega íslenskra barna- og ungmennabóka, og tryggja um leið að höfundar, þýðendur og myndhöfundar fái sanngjarnt endurgjald fyrir afnot verka sinna á bókasöfnum?
     3.      Hver er framtíðarsýn ráðherra fyrir Bókasafnssjóð höfunda? Kemur til greina að breyta lögum eða fyrirkomulagi sjóðsins þannig að fjármögnun hans verði fyrirsjáanlegri, byggð á skýrum viðmiðum og taki eðlilegum breytingum með hliðsjón af útlánum, verðlagi eða launaþróun?


Skriflegt svar óskast.