Ferill 86. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


158. löggjafarþing 2026–2027.
Þingskjal 86  —  86. mál.




Fyrirspurn


til forsætisráðherra um samfélagsmiðlanotkun í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu.

Frá Diljá Mist Einarsdóttur.


     1.      Telur ráðherra að Stjórnarráðið hafi gætt að óhæði og hlutleysi í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu 29. ágúst sl., sem m.a. var áskilið af hálfu Feneyjanefndarinnar, með birtingu pólitískra greina ráðherra á samfélagsmiðlasíðum ráðuneyta?
     2.      Telur ráðherra að birting pólitískra greina, þar sem talað var fyrir ákveðinni niðurstöðu í þjóðaratkvæðagreiðslu, standist áskilnað m.a. Feneyjanefndarinnar um óhæði og hlutleysi stjórnsýslunnar?
     3.      Telur ráðherra að setja þurfi sérstakar reglur um notkun ráðherra á opinberum samfélagsmiðlum ráðuneyta, m.a. í tengslum við kosningabaráttu, þ.m.t. í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslna?
     4.      Telur ráðherra að setja þurfi skýrari reglur um aðkomu starfsmanna Stjórnarráðsins og meðferð opinbers fjár í aðdraganda kosninga, þ.m.t. þjóðaratkvæðagreiðslna?


Skriflegt svar óskast.