Ferill 87. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
158. löggjafarþing 2026–2027.
Þingskjal 87 — 87. mál.
Fyrirspurn
til heilbrigðisráðherra um reglugerð um greiðsluþátttöku sjúkratryggðra í kostnaði vegna heilbrigðisþjónustu.
Frá Guðlaugi Þór Þórðarsyni.
Hver eru áætluð tekju- og útgjaldaáhrif reglugerðar nr. 816/2026 um greiðsluþátttöku sjúkratryggðra í kostnaði vegna heilbrigðisþjónustu, á ársgrundvelli annars vegar og hins vegar fyrir tímabilið 1. september – 31. desember 2026, sundurliðað niður á heilsugæslu, vitjanir, sálfræðiþjónustu, skimanir og sjúkra-, iðju- og talþjálfun?
Skriflegt svar óskast.