Ferill 90. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
158. löggjafarþing 2026–2027.
Þingskjal 90 — 90. mál.
Fyrirspurn
til heilbrigðisráðherra um aukna greiðsluþátttöku sjúkratryggðra.
Frá Guðlaugi Þór Þórðarsyni.
Hvernig sundurliðast 1.000 millj. kr. sértæka aðhaldsráðstöfunin „aukin greiðsluþátttaka sjúkratryggðra“ í fjárlögum fyrir árið 2026 eftir einstökum gjaldskrárbreytingum og hver eru ársáhrifin sem áætluð eru af hverri einstakri breytingu?
Skriflegt svar óskast.