Ferill 93. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


158. löggjafarþing 2026–2027.
Þingskjal 93  —  93. mál.




Tillaga til þingsályktunar


um breytingu á þingsályktun um áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða, nr. 24/152.


Flm.: Jens Garðar Helgason, Njáll Trausti Friðbertsson, Ólafur Adolfsson, Ingveldur Anna Sigurðardóttir, Guðlaugur Þór Þórðarson, Diljá Mist Einarsdóttir, Jón Pétur Zimsen, Árni Helgason, Rósa Guðbjartsdóttir, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, Þorgrímur Sigmundsson, Þórarinn Ingi Pétursson, Ingvar Þóroddsson, Ingibjörg Isaksen.

         
    Alþingi ályktar að eftirfarandi breyting verði á þingsályktun um áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða, nr. 24/152, sbr. þingsályktun nr. 18/157: Liðurinn „Austfirðir, Hamarsá, Hamarsvirkjun, R4292A“ í A-lið (Vatnasvið) 2. tölul. (Biðflokkur) færist í A-lið (Vatnasvið) 1. tölul. (Orkunýtingarflokkur).

Greinargerð.

    Með tillögunni er lagt til að Hamarsvirkjun verði færð úr biðflokki rammaáætlunar í orkunýtingarflokk. Með ályktun Alþingis nr. 18/157 kom virkjunin fyrst inn í rammaáætlun og féllst Alþingi þá á tillögu ráðherra um að virkjunin færi í biðflokk.
    Samkvæmt þeim hugmyndum sem eru á teikniborðinu er lagt til að virkja Hamarsá, sem rennur um Hamarsdal og út í Hamarsfjörð. Uppsett afl vatnsaflsvirkjunarinnar yrði um 60 MW.
    Í samráðsferli í aðdraganda framangreindrar ályktunar voru tillaga verkefnisstjórnar og frávik ráðherra frá henni kynnt hagsmunaaðilum og almenningi og gafst þeim kostur á að koma athugasemdum á framfæri. Fyrir liggur að enginn ágreiningur er um virkjunina á meðal sveitarfélaga á svæðinu og ljóst að almennt er fólk hlynnt því að hún rísi. Ákall er eftir því að virkjunin rísi, með tilliti til orkuöryggis og frekari atvinnuuppbyggingar á svæðinu, en fyrir liggur að Hamarsvirkjun er í reynd síðasti raunhæfi virkjunarkosturinn á Austurlandi. Tryggja þarf svæðinu orku til frekari uppbyggingar efnahagslífsins og atvinnuuppbyggingar, svo sem til úrvinnslu sjávarafurða, lagareldis og grænna iðngarða, auk þess að liðka frekar fyrir orkuskiptum í hinum ýmsu geirum samfélagsins.
    Í ljósi þess að ákall er eftir því á svæðinu, meðal sveitarfélaga og íbúa, að virkjunin verði að veruleika leggja flutningsmenn tillögunnar til að Hamarsvirkjun færist úr biðflokki í orkunýtingarflokk.