Ferill 96. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
158. löggjafarþing 2026–2027.
Þingskjal 96 — 96. mál.
Fyrirspurn
til atvinnuvegaráðherra um vinsæla áfangastaði ferðamanna í eigu ríkisins.
Frá Ingveldi Önnu Sigurðardóttur.
1. Hvaða vinsælu áfangastaðir ferðamanna eru í eigu ríkisins?
2. Hvaða vinsælu áfangastaðir ferðamanna eru í sameign ríkis og sveitarfélaga eða einkaaðila? Óskað er eftir að fram komi hvaða aðilar eiga staðina með ríkinu.
3. Stendur til að hefja gjaldtöku á yfirstandandi kjörtímabili að vinsælum áfangastöðum ferðamanna í eigu ríkisins eða áfangastöðum sem eru í sameign ríkis og annarra aðila?
Skriflegt svar óskast.