Ferill 105. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


158. löggjafarþing 2026–2027.
Þingskjal 105  —  105. mál.




Fyrirspurn


til félags- og húsnæðismálaráðherra um árangur endurhæfingar.

Frá Guðlaugi Þór Þórðarsyni.


     1.      Hversu margir sem hófu töku endurhæfingarlífeyris eða þáðu sjúkra- og endurhæfingargreiðslur á hverju ári 2015–2026 fóru innan 12, 24, 36 og 60 mánaða annars vegar á örorkulífeyri og hins vegar í vinnu, nám eða aðra virkni? Svar óskast sundurliðað eftir fjölda mánaða.
     2.      Hversu stórt hlutfall þeirra sem ljúka endurhæfingu teljast hafa aukið starfsgetu og hvaða mælikvarðar eru notaðir til að meta árangur endurhæfingar?
     3.      Hver var meðal- og miðgildislengd endurhæfingartímabils eftir árum og aldurshópunum 18–19, 20–24, 25–29, 30–34, 35–39, 40–49, 50–59 og 60–66 ára? Hvernig hefur hún breyst eftir lengingu hámarkstíma endurhæfingarlífeyris?
     4.      Hver var fjöldi 18–29 ára og 30–39 ára sem sóttu um örorkumat en var synjað vegna þess að endurhæfing var ekki fullreynd, sundurliðað eftir árum 2015–2026?
     5.      Hvaða mat liggur fyrir á fjárhagslegum langtímaávinningi ríkissjóðs af aukinni starfsendurhæfingu, þ.e. með lægri framtíðarútgjöldum vegna örorku og auknum skatttekjum vegna atvinnuþátttöku? Hafa forsendur þess mats gengið eftir?


Skriflegt svar óskast.