Ferill 106. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


158. löggjafarþing 2026–2027.
Þingskjal 106  —  106. mál.




Frumvarp til laga


um breytingu á umferðarlögum, nr. 77/2019 (endurmenntun atvinnubílstjóra).

Flm.: Þorgrímur Sigmundsson.


1. gr.

    11. mgr. 58. gr. laganna fellur brott.

2. gr.

    Lög þessi öðlast þegar gildi.

Greinargerð.

    Frumvarp þetta er nú lagt fram í þriðja sinn. Það var síðast lagt fram á 157. löggjafarþingi ( 64. mál) og þá var málinu vísað til umhverfis- og samgöngunefndar sem sendi það til umsagnar. Félag hópferðaleyfishafa lýsti sig sammála því að fella bæri brott 11. mgr. 58. gr. umferðarlaga. Af hálfu félagsins var einkum vísað til þess að með brottfalli ákvæðisins yrði dregið úr óþarflega íþyngjandi kröfum sem nú eru gerðar til atvinnubílstjóra og hópferðafyrirtækja. Félagið benti jafnframt á að árið 2000 hefði verið sett sérstakt ákvæði í kjarasamninga um endurmenntun og námskeiðsgjöld hópferðabílstjóra. Allt frá þeim tíma hefðu fyrirtækin boðið upp á endurmenntun sem tæki mið af íslenskum aðstæðum og þörfum bílstjóranna. Að mati félagsins hefði sú endurmenntun meira hagnýtt gildi en þau námskeið sem byggt er á við framkvæmd 11. mgr. 58. gr. umferðarlaga. Loks kom fram að margir starfsmenn sem þurfa að sækja námskeiðin upplifðu þau sem eins konar afplánun og að um væri að ræða endurtekið efni sem hefði takmarkað gildi fyrir akstur við íslenskar aðstæður.
    Atvinnubílstjórar sem eru með réttindi í flokkum C, C1, D og D1 þurfa að endurnýja atvinnuréttindi sín á fimm ára fresti. Til að viðhalda réttindum þurfa bílstjórar að sitja fimm námskeið til endurmenntunar á fimm ára fresti. Námskeiðin eru samtals 35 klukkustundir.
    Ákvæði um endurmenntun ökumanna sem stjórna ökutækjum í atvinnuskyni var EES-innleiðing sem á sjaldnast við hér á landi. Mikill hluti þeirra sem starfa sem atvinnubílstjórar hér á landi keyrir allan sinn starfsferil innan sama regluverks og því mætti telja óþarft fyrir atvinnubílstjóra að sitja endurmenntunarnámskeið sem hugsað er fyrir milliríkjaakstur á Evrópska efnahagssvæðinu.
    Tími og kostnaður við endurmenntunarnámskeið er íþyngjandi, bæði fyrir bílstjóra og atvinnulíf, þar sem sá tími sem bílstjórar missa úr vinnu er dýrmætur.
    Markmiðið með breytingunni er að auðvelda starfsumhverfi fyrir atvinnubílstjóra og íþyngja þeim ekki í störfum sínum og draga úr kostnaði í atvinnulífinu, auk þess sem innleiðingin var á sínum tíma atlaga að atvinnufrelsi bílstjóra.