Ferill 120. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
158. löggjafarþing 2026–2027.
Þingskjal 120 — 120. mál.
Fyrirspurn
til utanríkisráðherra um hagsmunagæslu í tengslum við EES-samninginn.
Frá Dagbjörtu Hákonardóttur.
1. Hversu margir starfsmenn sendiráðs Íslands í Brussel starfa við hagsmunagæslu fyrir hönd íslenska ríkisins í tengslum við framkvæmd EES-samningsins?
2. Liggur fyrir heildstætt yfirlit yfir þátttöku fulltrúa íslenskra stjórnvalda og opinberra stofnana í sérfræðihópum, nefndum, stofnunum og samstarfsnetum ESB og EFTA?
3. Hefur ráðuneytið formgert verklag í tengslum við samstarf íslenskra stjórnvalda annars vegar og íslenskra fyrirtækja, launþegasamtaka og annarra hagsmunaaðila hins vegar á sviði hagsmunagæslu sem leiðir af framkvæmd EES-samningsins?
4. Hefur ráðuneytið upplýsingar um fjölda fulltrúa og/eða stöðugilda á vegum íslenskra hagsmunaaðila sem starfa við beina hagsmunagæslu í tengslum við EES-samninginn á vettvangi stofnana ESB? Ef svo er, hvaða aðilar hafa fulltrúa á vettvangi og hver er fjöldi þeirra?
5. Með hvaða hætti er málum forgangsraðað af hálfu íslenskra stjórnvalda með tilliti til hugsanlegra áhrifa löggjafar eða stefnumótunar Evrópusambandsins á grundvallarhagsmuni Íslands?
6. Hefur ráðuneytið lagt mat á árangur af hagsmunagæslu Íslands vegna framkvæmdar EES-samningsins? Ef svo er, með hvaða hætti?
7. Telur ráðherra tilefni til heildstæðrar kortlagningar á hagsmunagæslu íslenska ríkisins og annarra aðila í tengslum við framkvæmd EES-samningsins?
Skriflegt svar óskast.