Ferill 122. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


158. löggjafarþing 2026–2027.
Þingskjal 122  —  122. mál.




Fyrirspurn


til utanríkisráðherra um Evrópusambandið og aðlögunarstyrki.

Frá Guðlaugi Þór Þórðarsyni.


     1.      Hvenær hætti Ísland að fá aðlögunarstyrki (IPA-styrki) frá Evrópusambandinu?
     2.      Telst Ísland til umsóknarríkja samkvæmt Evrópusambandinu? Ef svo er, hvers vegna er Ísland ekki skilgreint sem slíkt í opinberum gögnum sambandsins?
     3.      Ef Ísland telst til umsóknarríkja að mati Evrópusambandsins, hvers vegna fær Ísland ekki IPA-styrki frá Evrópusambandinu líkt og önnur umsóknarríki?
     4.      Telur ráðherra að Ísland sé umsóknarríki? Ef svo er, mun ráðherra sækja IPA-styrki til Evrópusambandsins?


Skriflegt svar óskast.