Ferill 123. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


158. löggjafarþing 2026–2027.
Þingskjal 123  —  123. mál.



Fyrirspurn


til dómsmálaráðherra um áhrif lokunar fangelsis á Akureyri.

Frá Njáli Trausta Friðbertssyni.

     1.      Hefur ráðuneytið gert úttekt eða greint með heildstæðum hætti áhrif þess að loka fangelsinu á Akureyri, nú þegar meira en hálfur áratugur er liðinn frá þeirri ákvörðun?
     2.      Liggja fyrir upplýsingar um hve mikið af meintri hagræðingu með lokun fangelsisins hefur tapast vegna:
                  a.      aukins ferðakostnaðar með t.d. gæsluvarðhaldsfanga af norðaustanverðu landinu til höfuðborgarsvæðisins,
                  b.      óhagræðis og skertrar útkallsgetu lögreglunnar á Norðurlandi sem nýtur ekki lengur samlegðaráhrifa við fangelsi á svæðinu,
                  c.      aukins ferðakostnaðar lögreglu að norðan vegna samskipta við gæsluvarðhaldsfanga á höfuðborgarsvæðinu,
                  d.      aukins kostnaðar annars staðar í lögreglu- og fangelsiskerfinu?
     3.      Hefur lokun fangelsisins á Akureyri orðið til þess að stytta biðlista eftir afplánun eins og haldið var fram á sínum tíma?
     4.      Í ljósi þess að bæði gæsluvarðhalds- og lokuð fangelsisrými hafa mánuðum og misserum saman verið yfirfull og kerfið í raun sprungið, hefði þá ekki verið full þörf fyrir tíu rými í viðbót á Akureyri með hliðsjón af kerfinu í heild?
     5.      Hvaða framtíðarsýn hefur ráðherra fyrir norðaustanvert landið, sbr. svæðisborgarhlutverk Akureyrar, hvað þetta snertir? Er það að mati ráðherra boðlegt til lengri tíma litið að ekkert fangelsi sé starfrækt nyrðra?
     6.      Hafa félagslegir og mannlegir þættir, eins og velferð fanga og fjölskyldna þeirra, verið metnir í tengslum við lokun fangelsisins á Akureyri?


Skriflegt svar óskast.