Ferill 124. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
158. löggjafarþing 2026–2027.
Þingskjal 124 — 124. mál.
Fyrirspurn
til fjármála- og efnahagsráðherra um fjármögnun samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins.
Frá Guðlaugi Þór Þórðarsyni.
2. Hefur Alþingi samþykkt þau fjárútlát sem ekki eru innan fjármálaáætlunar á annan hátt?
3. Hvernig tengist samgöngusáttmálinn samgönguáætlun Alþingis? Er gert ráð fyrir skuldbindandi fjárframlagi af hálfu Alþingis í samgönguáætluninni?
4. Hvaða áhrif hefur þetta á fjármögnun verkefnisins á framkvæmdatíma?
5. Leiðir þetta til verri fjármögnunarkjara og veldur þar með óvissu hvað framkvæmdina varðar?
6. Hvers vegna er stór hluti af framlagi ríkisins undir liðnum „önnur fjármögnun frá ríki“ og hver er munurinn á „annarri fjármögnun frá ríki“ og „beinu framlagi frá ríki“?
Skriflegt svar óskast.