Ferill 136. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


158. löggjafarþing 2026–2027.
Þingskjal 136  —  136. mál.




Fyrirspurn


til mennta- og barnamálaráðherra um kostnaðaráhrif reglugerðar um notkun síma og snjalltækja á skólatíma í grunnskóla og á frístundaheimilum.

Frá Þorgrími Sigmundssyni.

     1.      Fór fram kostnaðarmat vegna innleiðingar og framkvæmdar reglugerðar um notkun síma og snjalltækja á skólatíma í grunnskóla og á frístundaheimilum, nr. 945/2026, áður en hún var sett? Ef svo er, hver var niðurstaða matsins?
     2.      Hver er áætlaður stofn- og rekstrarkostnaður sveitarfélaga og skóla vegna framkvæmdarinnar, m.a. vegna geymslu tækja og vinnuframlags starfsfólks?
     3.      Verður sveitarfélögum mætt vegna kostnaðar sem leiðir af reglugerðinni? Ef svo er, hvernig?



Skriflegt svar óskast.