Ferill 139. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


158. löggjafarþing 2026–2027.
Þingskjal 139  —  139. mál.




Fyrirspurn


til atvinnuvegaráðherra um endurskoðun áhættumats erfðablöndunar.

Frá Höllu Hrund Logadóttur.


     1.      Hvað líður endurskoðun áhættumats erfðablöndunar sem matvælaráðherra staðfesti 3. mars 2022? Hvenær er gert ráð fyrir því að nýtt áhættumat verði staðfest?
     2.      Hver er skoðun ráðherra á því að ný rekstrarleyfi til sjókvíaeldis séu enn gefin út á grundvelli áhættumats frá árinu 2022 þótt kveðið sé á um það í lögum um fiskeldi, nr. 71/2008, að áhættumat skuli endurskoða eigi sjaldnar en á þriggja ára fresti?
     3.      Hafa forsendur gildandi áhættumats breyst frá því að það var staðfest árið 2022? Ef svo er, hvaða áhrif hafa þær breytingar haft á útgáfu nýrra rekstrarleyfa af hálfu ráðuneytisins?
     4.      Var við útgáfu nýrra rekstrarleyfa í Seyðisfirði 11. september 2026 lagt sérstakt mat á það hvort rétt væri að bíða endurskoðunar áhættumats erfðablöndunar áður en leyfin yrðu gefin út? Ef svo er, í hverju fólst matið?


Skriflegt svar óskast.