Ferill 140. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
158. löggjafarþing 2026–2027.
Þingskjal 140 — 140. mál.
Fyrirspurn
til umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra um áhættumat vegna náttúruvár á strandsvæðum.
Frá Höllu Hrund Logadóttur.
1. Hver voru viðbrögð ráðuneytisins við minnisblaði Skipulagsstofnunar, dags. 18. október 2024, um ofanflóðahættumat og strandsvæðisskipulag? Hvaða aðgerðir hefur verið ráðist í vegna ábendinga sem þar komu fram?
2. Hefur verið ráðist í endurskoðun á reglugerð nr. 505/2000, um hættumat vegna ofanflóða og flokkun og nýtingu hættusvæða, með það að markmiði að skýra hvort og með hvaða hætti hún taki til skipulagsgerðar á strandsvæðum? Ef svo er ekki, er slík endurskoðun fyrirhuguð?
3. Hvaða kröfur og viðmið gilda nú um mat á náttúruvá við skipulagsgerð og leyfisveitingar á haf- og strandsvæðum, sérstaklega þegar náttúruvá getur leitt til umhverfistjóns, svo sem slysasleppingar úr sjókvíaeldi?
4. Hvernig er tryggt að við slíkt áhættumat sé tekið tillit til mögulegs umhverfistjóns en ekki eingöngu til staðaráhættu fólks? Hvaða stjórnvöld bera ábyrgð á að slíkt mat fari fram?
Skriflegt svar óskast.