Ferill 141. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


158. löggjafarþing 2026–2027.
Þingskjal 141  —  141. mál.




Fyrirspurn


til dómsmálaráðherra um búsetu einstaklinga með alþjóðlega vernd og dvalarleyfi af mannúðarástæðum.

Frá Júlíusi Viggó Ólafssyni.


    Hversu margir einstaklingar eru, samkvæmt nýjustu tiltæku upplýsingum, búsettir á Íslandi með gilt dvalarleyfi á grundvelli:
                  a.      alþjóðlegrar verndar, þar á meðal viðbótarverndar,
                  b.      réttar til alþjóðlegrar verndar á grundvelli fjölskyldutengsla,
                  c.      mannúðarsjónarmiða,
                  d.      sameiginlegrar verndar vegna fjöldaflótta, þar á meðal einstaklingar sem hafa fengið slíka vernd vegna stríðsins í Úkraínu?
    Svar óskast sundurliðað eftir sveitarfélagi og ríkisfangi.



Skriflegt svar óskast.