Ferill 142. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
158. löggjafarþing 2026–2027.
Þingskjal 142 — 142. mál.
Fyrirspurn
til dómsmálaráðherra um framtíðaraðstöðu Landhelgisgæslunnar í Njarðvík.
Frá Júlíusi Viggó Ólafssyni.
1. Hvaða undirbúningsvinna, svo sem skýrslugerð, lá til grundvallar viljayfirlýsingu dómsmálaráðuneytisins, Reykjanesbæjar, Landhelgisgæslu Íslands og Reykjaneshafnar frá 26. maí 2023 um uppbyggingu framtíðaraðstöðu fyrir skipaútgerð Landhelgisgæslunnar í Reykjaneshöfn og hverjar voru helstu niðurstöður þeirrar undirbúningsvinnu?
2. Er fyrrnefnd viljayfirlýsing enn í gildi og standa áform enn um að heimahöfn skipa Landhelgisgæslunnar verði í Reykjaneshöfn?
3. Hvaða vinna hefur farið fram á grundvelli viljayfirlýsingarinnar frá undirritun hennar og hver eru næstu skref?
4. Hver er afstaða ráðherra til þess að framtíðaraðstaða skipaútgerðar Landhelgisgæslunnar verði í Njarðvíkurhöfn og starfsemi tengd rekstri skipanna færist að verulegu leyti þangað?
Skriflegt svar óskast.