Ferill 144. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


158. löggjafarþing 2026–2027.
Þingskjal 144  —  144. mál.




Fyrirspurn


til mennta- og barnamálaráðherra um atvinnumannahnefaleika.

Frá Júlíusi Viggó Ólafssyni.


     1.      Hver er afstaða ráðherra til þess að atvinnumannahnefaleikar verði heimilaðir á Íslandi, en ekki aðeins áhugamannahnefaleikar, að uppfylltum skilyrðum um öryggi iðkenda, eftirlit og umgjörð íþróttarinnar?
     2.      Hyggst ráðherra, sem ráðherra íþróttamála, beita sér fyrir því innan ríkisstjórnarinnar að lögum verði breytt þannig að heimilt verði að stunda atvinnumannahnefaleika hér á landi?


Skriflegt svar óskast.