Ferill 145. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


158. löggjafarþing 2026–2027.
Þingskjal 145  —  145. mál.




Fyrirspurn


til heilbrigðisráðherra um augasteinaaðgerðir.

Frá Kolbrúnu Áslaugar Baldursdóttur.


     1.      Hverjar eru helstu ástæður þess að bið eftir augasteinaaðgerðum er eins löng og raun ber vitni? Hvernig telur ráðherra að hægt yrði að stytta þessa bið?
     2.      Hvað stendur helst í vegi fyrir því að frekari samningar náist við sjálfstætt starfandi augnlækna um þessar aðgerðir, að frátalinni aukinni eftirspurn?
     3.      Telur ráðherra raunhæft að nýta betur þá afkastagetu sem er til staðar hjá sjálfstætt starfandi augnlæknum? Ef svo er, með hvaða hætti?
     4.      Telur ráðherra ástæðu til að meta sérstaklega samfélagslegan kostnað af langri bið eftir nauðsynlegum aðgerðum af þessu tagi?


Skriflegt svar óskast.