Ferill 147. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
158. löggjafarþing 2026–2027.
Þingskjal 147 — 147. mál.
Frumvarp til laga
um breytingu á lögum um landlækni og lýðheilsu, nr. 41/2007 (heilbrigðisskrár).
Frá velferðarnefnd.
1. gr.
2. gr.
Greinargerð.
Með lögum nr. 34/2025, um breytingu á lögum um landlækni og lýðheilsu og lögum um sjúkraskrár (heilbrigðisskrár o.fl.), féllu fyrir mistök orðin „eða öðrum aðilum“ brott í 1. málsl. 1. mgr. 8. gr. a laga um landlækni og lýðheilsu, nr. 41/2007. Samkvæmt eldri lögum var landlækni heimilt, með leyfi ráðherra, að fela öðrum aðilum en heilbrigðisstofnunum og starfsstofum heilbrigðisstarfsmanna umsjón og ábyrgð á daglegum rekstri tiltekinna heilbrigðisskráa samkvæmt samningi. Á grundvelli þeirrar heimildar hefur m.a. Krabbameinsfélaginu um langt skeið verið falinn rekstur krabbameinsskrár. Félagið annast daglegan rekstur skrárinnar og vinnslu henni tengda og hefur við þá starfsemi byggst upp sérhæfð þekking innan Rannsóknarseturs – Krabbameinsskrár sem er mikilvæg til að tryggja gæði og öryggi skrárinnar. Með brottfalli orðanna „eða öðrum aðilum“ skortir nú fullnægjandi lagaheimild til að fela öðrum aðilum áfram umsjón og ábyrgð á daglegum rekstri tiltekinna heilbrigðisskráa samkvæmt samningi. Til að tryggja að ekki verði hnökrar á áframhaldandi rekstri slíkra heilbrigðisskráa er þetta frumvarp flutt.
Með frumvarpinu er lagt til að orðunum „eða öðrum aðilum“ verði bætt við 1. málsl. 1. mgr. 8. gr. a laga um landlækni og lýðheilsu, nr. 41/2007. Með breytingunni verður á ný skýr lagaheimild fyrir landlækni til að fela, með leyfi ráðherra, öðrum aðilum umsjón og ábyrgð á daglegum rekstri tiltekinna heilbrigðisskráa samkvæmt samningi.