Ferill 150. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


158. löggjafarþing 2026–2027.
Þingskjal 150  —  150. mál.




Tillaga til þingsályktunar


um fjölgun ferða í Loftbrú.


Flm.: Þorgrímur Sigmundsson, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson.


    Alþingi ályktar að fela innviðaráðherra að hefja vinnu við breytingu á Loftbrú þannig að ferðum verði fjölgað úr þremur ferðum í sex ferðir til og frá Reykjavík (tólf flugleggir) á ári fyrir börn sem ferðast þurfa á milli landshluta til foreldra/forráðamanna.

Greinargerð.

    Tillaga þessi var áður lögð fram á 157. löggjafarþingi ( 589. mál) og er nú endurflutt óbreytt.
    Loftbrú var komið á laggirnar í september 2020 af þáverandi samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra. Loftbrú gefur íbúum á landsbyggðinni kost á 40% afslætti af heildarfargjaldi í innanlandsflugi og gildir fyrir alla með lögheimili fjarri höfuðborgarsvæðinu og á eyjum. Fullur afsláttur er veittur hvort sem valið er afsláttarfargjald eða fullt fargjald.
    Nú getur hver einstaklingur fengið lægri fargjöld fyrir allt að þrjár ferðir til og frá Reykjavík á ári (sex flugleggir). Með þingsályktunartillögu þessari er lagt til að innviðaráðherra hefji vinnu við að fjölga ferðum upp í sex ferðir til og frá Reykjavík á ári (tólf flugleggir) fyrir börn sem ferðast þurfa á milli landshluta til foreldra/forráðamanna. Með því er komið til móts við t.d. börn með lögheimili á höfuðborgarsvæðinu sem eiga foreldra eða forráðamenn búsetta á landsbyggðinni og öfugt. Er það mikið réttlætismál þar sem flugfargjöld eru dýr og þrjár ferðir á ári eru fljótar að klárast hjá börnum sem ferðast reglulega til foreldra/ forráðamanna í öðrum landshluta.