Ferill 151. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


158. löggjafarþing 2026–2027.
Þingskjal 152  —  151. mál.




Tillaga til þingsályktunar


um fasta starfsstöð þyrlu Landhelgisgæslunnar á Akureyri.


Flm.: Njáll Trausti Friðbertsson, Bryndís Haraldsdóttir, Diljá Mist Einarsdóttir, Ólafur Adolfsson.


    Alþingi ályktar að fela dómsmálaráðherra að beita sér fyrir því að Landhelgisgæslan komi upp fastri starfsstöð fyrir eina af þyrlum sínum á Akureyri í samstarfi við hagaðila á Akureyri. Jafnframt skal ráðherra beita sér fyrir því að fjórðu þyrlunni verði bætt við þyrluflota Landhelgisgæslunnar og þyrluáhöfnum fjölgað úr sex í sjö.
                   

Greinargerð.

    Tillaga þessa efnis var áður lögð fram á 157. löggjafarþingi ( 16. mál) og er nú endurflutt með breytingum.
    Með tillögunni er lagt til að ein af þyrlum Landhelgisgæslu Íslands hafi starfsstöð á Akureyri allt árið um kring. Auk þess sem Akureyri er miðsvæðis á landinu er augljós tenging við sjúkraflugið í landinu sem er staðsett á Akureyri. Þar gætu læknar á Akureyri mannað hluta þyrluáhafnar eins og nú er reyndin í tengslum við sjúkraflugið. Í því samhengi er rétt að benda á að í fjölmiðlum hefur komið fram að tveir af sex þyrluflugstjórum gæslunnar búa fyrir norðan. Talið er að árlegur rekstrarkostnaður þyrlu á Akureyri sé um 1.100 millj. kr. og að uppbygging flugskýlis á Akureyrarflugvelli kosti 500–600 millj. kr. Nú þegar eru flugvirkjar á staðnum sem geta sinnt viðhaldi auk þess sem starfsmenn heilbrigðisstofnana, slökkviliðs o.fl. geta nýst starfseminni.
    Hlutfall þyrluflugs hefur verið um 15% af heildarsjúkraflugi í landinu. Norlandair og Mýflug hafa sinnt um 85% af sjúkrafluginu með flugvélum sínum. Á mynd að aftan sést hvernig sjúkraflug dreifðist um landið árið 2015 og hvert þyrlur Gæslunnar sóttu sjúklinga. Á myndinni sést hversu slæm þjónustan er á austurhluta landsins þegar sjúkraflugi með þyrlum er einungis sinnt frá Reykjavíkurflugvelli.
    Fjarlægðir eru miklar og veðuraðstæður með þeim hætti að til þess að sinna sjúkraflutningum á austurhluta landsins með sjúkraþyrlum, í þeim tilfellum þar sem erfitt er að koma sjúkraflugi við, er nauðsynlegt að staðsetja þyrlu á svæðinu. Ekki er langt síðan sjöttu þyrluáhöfninni var bætt við hjá Landhelgisgæslunni sem þýðir að tvær áhafnir eru á vakt um tvo þriðju hluta ársins. Með því að bæta við sjöundu þyrluáhöfninni væru tvær áhafnir til reiðu 95–98% af árinu. Það er mikilvægt skref sem nauðsynlegt er að stíga til þess að efla björgunargetu þyrluflugsveitar Landhelgisgæslunnar.

Áhættudreifing.
    Ekki er skynsamlegt að hafa öll eggin í sömu körfunni þegar hætta á eldsvoða, vatnstjóni og öðrum mögulegum skakkaföllum er tekin til greina. Að hafa allar þyrlur fastar á sama veðurfarssvæði er óskynsamlegt. Að hafa þyrlur eingöngu staðsettar í Reykjavík dreifir illa þjónustu, sérstaklega er það afleitt fyrir Norðausturland og Austurland og hafsvæði þar út af eins og sjá má á mynd hér að neðan. Með þyrlu í Reykjavík og á Akureyri mætti ná til allra landshluta á þyrlu á innan við 90 mínútum á venjulegum degi og myndi björgunarviðbragð á norður- og austurmiðum styrkjast verulega.


Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.


Skýrslur, ályktanir og umræðan.
    Hugmyndin um að hafa þyrlu staðsetta á Akureyri hefur einnig komið fram í ýmsum skýrslum. Vinnuhópur um skipulag sjúkraflutninga og bráðaþjónustu utan spítala á Norðurlandi benti árið 2009 á þann veikleika sem felst í því að allar björgunarþyrlur þjóðarinnar séu staðsettar í Reykjavík. Annar verkefnahópur um endurskipulagningu sjúkraflutninga taldi árið 2012 að stefna ætti að því að sjúkraflug með þyrlum og flugvélum yrði bæði á Akureyri og í Reykjavík.
    Þegar byggja átti upp þyrluflota Landhelgisgæslunnar við brottför varnarliðsins ályktuðu ýmis samtök og stofnanir um að skynsamlegt væri að hafa fleiri en eina starfsstöð á landinu fyrir björgunarþyrlur til að stytta björgunartíma. Landspítali í Reykjavík benti á að í ljósi mikilvægis jöfnunar á heilbrigðisþjónustu landsmanna skyldi þyrla vera staðsett á Akureyri. Félag skipstjórnarmanna og Sjómannasamband Íslands tóku meðal annars undir það. Landsþing Slysavarnafélagsins Landsbjargar hvatti einnig til þess að tryggð yrði staðsetning björgunarþyrlu annars staðar en á suðvesturhorninu. Samtök útgerðarmanna vildu þyrlu á landsbyggðinni til að auka öryggi og margfalda þjónustugetu. Segja má að rökin að baki þessum ályktunum gildi enn í dag.
    Aðalvarðstjóri lögreglunnar á Akureyri og forstjóri Sjúkrahússins á Akureyri hafa tjáð sig um mikilvægi þess að þyrla Landhelgisgæslunnar verði staðsett á Akureyri eftir að þyrla var staðsett á Akureyri um verslunarmannahelgina 2024. Gæti það jafnframt valdið jákvæðum ytri áhrifum, svo sem betri hreyfanleika sérsveitar og meiri stuðningi við sjúkralið og lögreglu á svæðinu.

Tillaga um bætta viðbragðsgetu Landhelgisgæslunnar.
    Landhelgisgæslan hefur í dag yfir þremur stórum þyrlum að ráða en væri ákveðið að staðsetja eina þyrlu á Akureyri er gerð tillaga um að hún verði viðbót við flotann. Einnig er lagt til að byggt verði flugskýli á Akureyrarflugvelli undir þessa nýju starfsstöð Landhelgisgæslunnar sem gæti hýst eina þyrlu að lágmarki og sömuleiðis að þyrluáhöfnum verði fjölgað um eina, úr sex í sjö.
    Í svari dómsmálaráðuneytisins við fyrirspurn stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar Alþingis í júní 2026 segir meðal annars að fjórða þyrlan og sjöunda áhöfnin „myndi auka verulega getu Landhelgisgæslunnar til að halda uppi viðunandi þyrluviðbragðsgetu á hafsvæðinu umhverfis Ísland. Í stað þess að hafa tvær þyrlur til taks um 60% ársins eins og nú er má gera ráð fyrir að tvær þyrlur yrðu til taks 95–98% hluta árs, samkvæmt mati Landhelgisgæslunnar“.
    Í svari ráðuneytisins til Alþingis kemur eftirfarandi fram um hugsanlegan kostnað við ráðstöfunina:
    „Bráðabirgðaútreikningar Landhelgisgæslunnar gefa til kynna að fastur rekstrarkostnaður þyrlu og starfsstöðvar á Akureyri gæti numið um 1,1 milljarði króna á ári, með fyrirvara um óvissu vegna leiguverðs þyrlu og kjarasamninga áhafna. Gera má ráð fyrir að ferli þess að taka á leigu nýja þyrlu kunni að taka eitt til þrjú ár.“
    Einnig kemur fram að einskiptiskostnaður vegna uppbyggingar starfsstöðvar Gæslunnar yrði samkvæmt bráðabirgðamati um 600 millj. kr. Stærsti kostnaðarliðurinn væri vegna uppbyggingar flugskýlis. Annar kostnaður sem félli til sem einskiptiskostnaður væri vegna þjálfunar tveggja nýrra flugmanna, viðhaldsstöðvar á Akureyrarflugvelli og viðbótarbúnaðar fyrir nýja áhöfn og þyrlu.
    Rétt er að ítreka það sem fram kemur í svari dómsmálaráðuneytisins til stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar að um bráðabirgðatölur sé að ræða „sem eingöngu eru til viðmiðunar á þessu stigi en þar sem þær byggja á ófullmótuðum forsendum kunna upphæðir að taka breytingum þegar endanleg áætlun og forsendur liggja fyrir“.

Samstarf við vinaþjóðir á norðurslóðum.
    Á undanförnum árum hefur Atlantshafsbandalagið (NATO) lagt meiri áherslu á viðveru af hálfu bandalagsins í norðanverðu Norður-Atlantshafi til þess að efla styrk bandalagsins á norðurslóðum.
    Að mati flutningsmanna er eðlilegt að ríkið efli getu sína á næstu árum til að sinna leit og björgun á hafsvæðinu í kringum landið. Nú þegar mikilvægi norðurslóða eykst sífellt er rétt að líta til þess hvernig hægt væri að styrkja þetta starf, jafnvel í samstarfi við vinaþjóðir innan Atlantshafsbandalagsins. Nefna má að Danir hyggjast í þessu skyni verja 1,5 milljörðum danskra króna eða sem nemur um 30 milljörðum kr., meðal annars til endurnýjunar þeirra fjögurra varðskipa sem þeir hafa haldið úti á Norður-Atlantshafi.
    Í skýrslu forsætisráðherra um mat þjóðaröryggisráðs á ástandi og horfum í þjóðaröryggismálum sem kom út árið 2022 kom fram að nauðsynlegt væri að leggja mat á viðbragðsgetu Landhelgisgæslunnar og gera ráðstafanir til þess að tryggja vöktun betur.
    Á síðustu árum hafa orðið miklar breytingar í tengslum við varnar- og öryggismál í norðanverðu Norður-Atlantshafi. Íslendingar fara með stjórn yfir stóru hafsvæði í kringum landið sem spannar 1,9 milljónir ferkílómetra að stærð og er svæðið nítján sinnum stærra en Ísland. Þörfin fyrir bætta getu til að sinna leit og björgun hefur aukist mikið í samhengi við þær miklu breytingar sem nú eiga sér stað á hafsvæðunum í kringum Ísland.

Skuldbindingar og fjármögnun.
    Á vettvangi Atlantshafsbandalagsins hefur Ísland skuldbundið sig til að verja 1,5% af vergri landsframleiðslu til uppbyggingar öryggistengdra innviða, viðnámsþróttar og áfallaþols. Fjármunina á meðal annars að nýta til að styrkja getu Íslands til að sinna samstarfi við vina- og bandalagsþjóðir í NATO.
    Föst starfsstöð þyrlu Landhelgisgæslunnar á Akureyri fellur vel að þessum markmiðum. Hún myndi styrkja björgunargetu á landi og sjó, bæta viðbragðstíma á Norður- og Austurlandi og efla sjúkraflug, löggæslu og almannavarnir. Jafnframt myndi þyrlan bæta getu Íslands til að taka þátt í sameiginlegum verkefnum, æfingum og viðbrögðum með vinaþjóðum okkar á Norður-Atlantshafi og norðurslóðum.
    Ný starfsstöð Landhelgisgæslunnar á Akureyri væri mikilvægur þáttur í að efla þjóðaröryggi Íslands, styrkja áfallaþol og efla samstarf okkar innan Atlantshafsbandalagsins.

Byggja á upp aukna björgunargetu.
    Flutningsmenn telja skynsamlegt að efla leitar- og björgunargetu á norður- og austurhluta landsins með því að staðsetja varanlega björgunarþyrlu á Akureyri, líkt og þekkist á höfuðborgarsvæðinu.
    Þegar Siglufjörður varð heimahöfn varðskipsins Freyju var stórt skref tekið í þá átt að efla björgunargetu Landhelgisgæslunnar, sérstaklega á hafsvæðunum norðan og austan við Ísland. Nú er rétt að líta til þess að staðsetja varanlega þyrlu á Akureyri og byggja upp öfluga starfsstöð á Norðurlandi.
    Þegar varnarliðið yfirgaf Ísland árið 2006 dró verulega úr björgunargetu þyrluflugs hér á landi en á sínum tíma voru fimm þyrlur staðsettar á Keflavíkurflugvelli. Mikil vinna hefur verið lögð í að styrkja þetta viðbragð. Flutningsmenn telja skynsamlegt að efla björgunargetu þyrlusveitar Landhelgisgæslunnar á Norður- og Austurlandi og á hafsvæðunum þar út af með því að staðsetja björgunarþyrlu varanlega á Akureyri í góðri samvinnu við vinaþjóðir okkar.
    Skynsamlegt væri og í anda opinberrar stefnumörkunar og byggðafestu að byggja upp leitar- og björgunargetu á norðurslóðum við Eyjafjörð. Þar ætti að staðsetja sjúkra- og björgunarþyrlu.