Ferill 153. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


158. löggjafarþing 2026–2027.
Þingskjal 154  —  153. mál.




Beiðni um skýrslu


frá forsætisráðherra um kortlagningu á velferðarumhverfi barna og fjölskyldna þeirra.


Frá Ásu Berglindi Hjálmarsdóttur, Degi B. Eggertssyni, Eydísi Ásbjörnsdóttur, Kristjáni Þórði Snæbjarnarsyni, Rögnu Sigurðardóttur, Eiríki Birni Björgvinssyni, Ásthildi Lóu Þórsdóttur, Sigurði Helga Pálmasyni og Söndru Sigurðardóttur.


    Með vísan til 54. gr. stjórnarskrárinnar og 54. gr. laga um þingsköp Alþingis er þess óskað að forsætisráðherra flytji Alþingi skýrslu um stöðu, aðgengi og framboð úrræða og þjónustu fyrir börn og ungmenni á Íslandi og um stuðningsúrræði fyrir foreldra. Ráðuneytið leiti svara hjá öðrum ráðuneytum eftir atvikum til þess að geta dregið upp þá heildarmynd sem óskað er.
    Í skýrslunni verði að finna heildstæða kortlagningu á þjónustu og úrræðum sem standa börnum, ungmennum og foreldrum til boða á sviði félagsmála, heilbrigðismála og barnaverndarmála. Í henni verði einnig lagt mat á það hvort þjónustan sé nægileg og hvort hún sé veitt á réttum tíma til að mæta þörfum barna og fjölskyldna þeirra.
    Í skýrslunni verði gerð sérstök grein fyrir eftirfarandi:
     1.      Hvernig þjónusta og úrræði fyrir börn og ungmenni skiptist eftir þjónustustigum samkvæmt lögum um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna, sundurliðað eftir landshlutum.
     2.      Hvaða úrræði standi börnum og ungmennum til boða á hverju þjónustustigi, þar á meðal:
                  a.      meðferðarúrræði vegna geðræns og félagslegs vanda,
                  b.      greiningar- og ráðgjafarþjónusta,
                  c.      stuðningsúrræði í leikskólum, grunnskólum og framhaldsskólum,
                  d.      félagsþjónusta sveitarfélaga,
                  e.      barnaverndarúrræði,
                  f.      stuðningsúrræði fyrir verðandi og nýbakaða foreldra,
                  g.      meðferðarúrræði fyrir börn og ungmenni með vímuefnatengdan vanda,
                  h.      úrræði fyrir börn með fötlun eða fjölþættar stuðningsþarfir.
     3.      Hvort þjónustan sem um ræðir sé á vegum sveitarfélaga eða ríkisins, hvort um sé að ræða tvöfalt kerfi og hvar rétt væri að mörkin lægju milli þeirrar þjónustu sem ríki og/ eða sveitarfélög veita. Óskað er eftir því að gerð verði grein fyrir því hvort um lögbundna þjónustu sé að ræða eftir því sem við á og að bent verði á hugsanleg göt í þjónustu við börn og fjölskyldur þeirra.
     4.      Hvers konar biðlistar séu fyrir hendi eftir þjónustu og úrræðum fyrir börn og ungmenni, sundurliðað eftir tegund þjónustu, aldri barna og landshlutum, ásamt upplýsingum um meðalbiðtíma.
     5.      Hvaða hópar barna og ungmenna fái síst þjónustu við hæfi og hverjar helstu ástæður þess séu.
     6.      Hvaða þjónustugöt eða skortur á úrræðum hafi verið greindur af ráðuneytum, stofnunum ríkisins, sveitarfélögum eða öðrum opinberum aðilum.
     7.      Hvort og hvernig aðgengi að þjónustu og úrræðum sé mismunandi eftir búsetu, aldri, fötlun, félagslegum aðstæðum og öðrum þáttum sem áhrif hafa á möguleika barna til að fá þjónustu.
     8.      Hvaða aðgerðir stjórnvöld telji nauðsynlegar til að tryggja að börn og ungmenni hafi aðgang að þjónustu við hæfi án hindrana í samræmi við markmið laga um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna.
     9.      Hvaða markmið og árangursmælikvarðar hafi verið skilgreindir fyrir þjónustu og úrræði sem börnum, ungmennum og fjölskyldum þeirra standa til boða og með hvaða hætti árangur þeirra sé metinn. Gerð verði grein fyrir því hvaða úrræði sæti reglubundnu árangursmati óháð því hvort þjónustan er veitt af ríki, sveitarfélögum eða öðrum þjónustuaðilum, hvaða mælikvarðar séu notaðir og hvaða niðurstöður liggi fyrir um árangur af þeim. Jafnframt verði gerð grein fyrir þeim úrræðum sem ekki sæta árangursmati og ástæðum þess.
     10.      Gerð verði sérstök grein fyrir því hvaða markmið og árangursmælikvarðar hafi verið skilgreindir vegna innleiðingar laga um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna og hvort árangur innleiðingarinnar hafi verið metinn á kerfisbundinn hátt. Lagt verði mat á það hvort þarfir barna séu greindar fyrr, hvort bið eftir þjónustu hafi styst, hvort samfella og samþætting þjónustu hafi aukist og hvort færri börn þurfi umfangsmeiri þjónustu á síðari stigum.
     11.      Hversu miklu fjármagni hafi verið varið til innleiðingar og framkvæmdar laga um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna frá gildistöku þeirra, sundurliðað eftir árum, ráðuneytum, ríkisstofnunum, sveitarfélögum, þjónustustigum og helstu verkefnum eða úrræðum. Gerð verði sérstök grein fyrir fjárframlögum ríkisins til sveitarfélaga, á hvaða forsendum þeim hafi verið úthlutað, hvernig þau hafi nýst og til hvaða verkefna og þjónustu þeim hafi verið varið. Jafnframt verði gerð grein fyrir kostnaðarþátttöku ríkis og sveitarfélaga, hvort fjármunir hafi ekki verið nýttir eða færðir milli verkefna og hvort unnt sé að meta árangur og ávinning af ráðstöfun þeirra.
    Skýrslunni fylgi samantekt um forgangsröðun þeirra úrræða og þjónustusviða þar sem þörf fyrir uppbyggingu er mest að mati stjórnvalda.
    Ráðherra verði heimilt að flytja skýrsluna í áföngum með þeim hætti sem best er talinn henta.

Greinargerð.

    Með skýrslubeiðni þessari er óskað eftir því að fram fari heildstæð kortlagning á úrræðum og þjónustu sem stendur börnum, ungmennum og foreldrum þeirra til boða hér á landi. Þá verði lagt mat á það hvort þjónustan sé nægileg til að mæta þörfum þeirra. Markmið skýrslubeiðninnar er að veita Alþingi skýra yfirsýn yfir stöðu þjónustukerfisins, yfir aðgengi að úrræðum, yfir bið eftir þjónustu og yfir þjónustuskörð sem kunna að vera til staðar. Þar sem skýrslubeiðnin er umfangsmikil og tekur til margra þátta í velferðarumhverfi barna er gerð tillaga um að ráðherra verði heimilt að flytja skýrsluna í áföngum með þeim hætti sem best er talinn henta.
    Undanfarin ár hafa stjórnvöld lagt aukna áherslu á snemmtækan stuðning, samþættingu þjónustu og aukna samvinnu milli þeirra kerfa sem lúta að stuðningi við börn og fjölskyldur. Með lögum nr. 86/2021, um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna, var stigið mikilvægt skref í átt að því að tryggja að börn og foreldrar hafi aðgang að samþættri og samfelldri þjónustu við hæfi án hindrana. Lögin byggjast á þeirri meginforsendu að unnt sé að greina þarfir barna snemma og veita viðeigandi stuðning áður en vandi verður umfangsmeiri og afleiðingar hans alvarlegri.
    Í nýlegri stjórnsýsluúttekt Ríkisendurskoðunar á innleiðingu og framkvæmd farsældarlaganna kemur hins vegar fram að við undirbúning lagasetningarinnar hafi hvorki farið fram heildstæð kortlagning á stöðu barna né greining á því hvaða úrræði og þjónusta væri til staðar eða hvaða úrræði skorti. Ríkisendurskoðun telur að slík greining hefði átt að liggja til grundvallar forgangsröðun aðgerða í þágu barna og fjölskyldna þeirra. Jafnframt bendir embættið á að skortur á viðeigandi þjónustu og úrræðum, ásamt löngum biðlistum, sé enn ein helsta hindrunin fyrir því að markmið farsældarlaganna nái fram að ganga.
    Í skýrslu Ríkisendurskoðunar kemur einnig fram að ákveðnir hópar barna njóti ekki samþættrar þjónustu í sama mæli og aðrir, m.a. börn með fjölþættan vanda, börn með fötlun, börn í fóstri og börn sem glíma við vímuefnavanda. Þá hafi ekki verið gerð nægileg þarfagreining á því hvaða þjónustu og úrræði skorti í kerfinu og hvað hindri það að börn og fjölskyldur þeirra fái þá þjónustu sem þau þurfa.
    Á sama tíma hefur umræða um málefni barna og fjölskyldna í auknum mæli beinst að mikilvægi snemmtæks stuðnings á fyrstu árum barnsins. Rannsóknir sýna að stuðningur við verðandi foreldra og foreldra ungra barna getur haft veruleg áhrif á heilsu, velferð og þroska barna til langframa. Því er mikilvægt að kortleggja einnig þau stuðningsúrræði sem standa verðandi og nýbökuðum foreldrum til boða, hvort sem um er að ræða heilbrigðisþjónustu, félagslegan stuðning, foreldrafræðslu eða önnur úrræði sem ætlað er að efla foreldrahæfni og styðja við fjölskyldur á fyrstu stigum uppeldis.
    Þrátt fyrir fjölmörg úrræði á vegum ríkis, sveitarfélaga og annarra þjónustuaðila skortir heildstæða yfirsýn yfir umfang þeirra, dreifingu, aðgengi og nýtingu. Slík yfirsýn er forsenda þess að hægt sé að meta hvort þjónustan samræmist markmiðum laga um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna, hvort jafnræði ríki að því er varðar aðgang að þjónustu óháð búsetu eða öðrum aðstæðum og hvar þörf sé á frekari uppbyggingu.
    Mikilvægt er að Alþingi hafi aðgang að slíkum upplýsingum við stefnumótun, lagasetningu og ákvörðun um forgangsröðun fjármuna í málaflokknum. Með skýrslubeiðni þessari er því kallað eftir heildstæðri stöðumynd af þjónustu og úrræðum fyrir börn, ungmenni og fjölskyldur þeirra þannig að hægt sé að greina með markvissum hætti hvar þjónustan er fullnægjandi og hvar brýn þörf er á úrbótum.