Ferill 169. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
158. löggjafarþing 2026–2027.
Þingskjal 171 — 169. mál.
Fyrirspurn
til fjármála- og efnahagsráðherra um meðferð viðtalsbeiðna.
Frá Diljá Mist Einarsdóttur.
1. Hefur ráðherra sett sér vinnureglur um meðferð viðtalsbeiðna?
2. Hefur ráðherra hafnað viðtalsbeiðni á þessu kjörtímabili og ef svo er, hversu oft og frá hvaða fjölmiðlum eða öðrum miðlum?
3. Hversu oft hefur ráðherra samþykkt viðtalsbeiðni á þessu kjörtímabili og frá hvaða fjölmiðlum eða öðrum miðlum?
Skriflegt svar óskast.