Ferill 172. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


158. löggjafarþing 2026–2027.
Þingskjal 174  —  172. mál.




Fyrirspurn


til fjármála- og efnahagsráðherra um eignir, skuldir og skuldbindingar Ganga og brúar ohf.

Frá Ólafi Adolfssyni.


     1.      Hvernig hljóðar áætlun stjórnar innviðafélagsins Ganga og brúar ohf. um hlutafjárhækkanir samkvæmt samþykkt hluthafafundar Vaðlaheiðarganga hf. 13. maí 2026? Hve stór hluti 32 milljarða kr. hlutafjárhækkunarinnar verður greiddur með reiðufé og hve stór með öðrum eignum?
     2.      Hvaða lán og aðrar fjárskuldbindingar Vaðlaheiðarganga hf. voru í félaginu 1. júlí 2026? Svar óskast sundurliðað eftir lánveitendum, höfuðstól, verðbótum, vöxtum, gjalddögum og veðum eða öðrum tryggingum.
     3.      Hvaða eignir eða réttindi hefur ríkissjóður fært til félagsins eftir 1. júlí 2026, á hvaða lagagrundvelli og á grundvelli hvaða verðmats?
     4.      Hefur eignarhald á mannvirkjum við Hornafjarðarfljót eða Ölfusárbrú, eða samningstengdum réttindum vegna þeirra, verið fært til félagsins? Ef svo er, hvenær, með hvaða heimild í fjárlögum og fyrir hvaða fjárhæð?
     5.      Hafa viljayfirlýsingar eða samningar verið gerðir eða eru þeir í undirbúningi við félagið vegna Hornafjarðarfljóts, Ölfusárbrúar, Fljótaganga, Sundabrautar og tvöföldunar Hvalfjarðarganga? Ef svo er, hvar eru þeir aðgengilegir og birtir?
     6.      Hver er áætlaður heildarkostnaður hvers þeirra verkefna sem talin eru upp í 5. tölul. fyrirspurnarinnar, hvernig á að fjármagna þau og hversu stór hluti kostnaðar á að greiðast með veggjöldum annars vegar og framlögum ríkissjóðs hins vegar?
     7.      Hvaða beinu eða óbeinu ábyrgðir, tekjutryggingar eða aðrar skuldbindingar hefur ríkissjóður tekið eða er fyrirhugað að taka vegna félagsins og einstakra verkefna þess?
     8.      Hverjar eru áætlaðar skuldir félagsins í lok hvers árs 2026–2031 og hvernig koma þær fram í reikningsskilum hins opinbera?
     9.      Hyggst ráðherra leggja samþykktir, eigendastefnu, verðmat og verkefnasamninga félagsins fyrir Alþingi áður en frekari ríkiseignir verða færðar til þess?
    
                                  
Skriflegt svar óskast.