Ferill 173. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


158. löggjafarþing 2026–2027.
Þingskjal 175  —  173. mál.




Fyrirspurn


til innviðaráðherra um kerfi í fjarskiptum ríkisins.

Frá Njáli Trausta Friðbertssyni.


     1.      Hvaða farsíma- og gagnaflutningskerfi nýta ráðuneytið og stofnanir þess í fjarskiptum sínum? Svar óskast sundurliðað eftir framleiðanda og stofnun.
     2.      Hefur ráðuneytið metið áhættu af notkun fjarskiptakerfa frá einstökum framleiðendum?
                  a.      Ef svo er, hvaða ráðstafanir hyggst ráðuneytið gera í kjölfar áhættumats?
                  b.      Ef svo er ekki, er í ráði að framkvæma áhættumat?
     3.      Hefur ráðuneytið tekið mið af því hvaða farsíma- og gagnaflutningskerfi opinberir aðilar í nágrannaríkjum sem aðild eiga að Atlantshafsbandalaginu nota í fjarskiptum sínum?


Skriflegt svar óskast.