Ferill 187. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


158. löggjafarþing 2026–2027.
Þingskjal 189  —  187. mál.




Tillaga til þingsályktunar


um stöðu Íslands gagnvart Evrópusambandinu.


Flm.: Guðrún Hafsteinsdóttir, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, Stefán Vagn Stefánsson.


    Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni að tilkynna Evrópusambandinu með skýrum og ótvíræðum hætti að Ísland sé ekki umsóknarríki um aðild að Evrópusambandinu og að engin umsókn þess efnis sé til staðar. Að því loknu skuli ríkisstjórnin afla skriflegrar staðfestingar frá Evrópusambandinu um stöðu Íslands gagnvart sambandinu.

    Greinargerð.

    Sambærileg tillaga var lögð fram af Ingu Sæland á 150., 151., 152., 153., 154., og 155. löggjafarþingi (178. mál) en hlaut ekki afgreiðslu.
    Með ályktun Alþingis á 137. löggjafarþingi (38. mál) sem samþykkt var 16. júlí 2009 var ríkisstjórninni falið að leggja inn umsókn um aðild að Evrópusambandinu og að loknum viðræðum við sambandið yrði haldin þjóðaratkvæðagreiðsla um væntanlegan aðildarsamning. Allar götur síðan hefur ferlið sem hrundið var af stað með þessari þingsályktun sætt þungri gagnrýni. Langur vegur er frá því að um það hafi ríkt sátt og stuðningur sem almennt er talinn nauðsynlegur grundvöllur ferlis af þessu tagi. Ákvörðun um að hefja aðildarviðræður var hluti af pólitísku samkomulagi þáverandi stjórnarflokka þótt aðild að Evrópusambandinu hefði ekki notið meirihlutastuðnings á Alþingi. Þá hefur lengi legið fyrir að meiri hluti íslensku þjóðarinnar er andvígur því að Ísland gangist undir skilmála Evrópusambandsins og gerist aðildarríki.
    Árið 2015 sendi utanríkisráðherra bréf til formanns ráðherraráðs Evrópusambandsins og framkvæmdastjóra nágrannastefnu og aðildarviðræðna sambandsins þess efnis að ríkisstjórn Íslands hefði engin áform um að hefja aðildarviðræður að nýju og ekki bæri að líta á Ísland sem umsóknarríki. Sama ár ítrekaði forsætisráðherra afstöðu Íslands í bréfi til Jean-Claude Junckers, forseta framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins. Þar kom fram að Ísland væri „ekki lengur umsóknarríki að Evrópusambandinu“. Lengi hefur verið deilt um það hvort með þessum bréfum hafi umsókn Íslands frá árinu 2009 verið afturkölluð með fullnægjandi hætti. Varð sá ágreiningur til þess að landskjörstjórn lagði til að spurningu sem leggja átti fyrir þjóðina í þjóðaratkvæðagreiðslu 29. ágúst 2026 yrði breytt þar sem orðalagið sem lagt var til í þingsályktunartillögu utanríkisráðherra þótti of gildishlaðið hvað varðaði afdrif umsóknarinnar frá árinu 2009.
    Þrátt fyrir skýr skilaboð þáverandi ríkisstjórnar til Evrópusambandsins um afturköllun aðildarumsóknar lítur núverandi ríkisstjórn svo á að umsóknin hafi ekki verið „formlega“ afturkölluð og sé því enn í gildi. Byggir ríkisstjórnin afstöðu sína á því að hvorki orðalag fyrrgreindra bréfa né málsmeðferð fyrir þinginu beri með sér að um formlega afturköllun á aðildarumsókn Íslands að Evrópusambandinu hafi verið að ræða, líkt og segir í greinargerð utanríkisráðuneytis til utanríkismálanefndar Alþingis um stöðu umsóknar Íslands um aðild að Evrópusambandinu frá því í ágúst árið 2025. Þessi afstaða stjórnvalda sætir furðu enda kemur skýrt fram í nefndum bréfum ráðherranna að Ísland sé ekki umsóknarríki um aðild að Evrópusambandinu. Hafi Evrópusambandið enga umsókn frá Íslandi getur landið ekki talist umsóknarríki. Ekki er því unnt að skilja bréfaskriftirnar á annan veg en að með þeim hafi umsóknin verið afturkölluð eða felld úr gildi, allt eftir því hvaða orðalag er notað.
    Málsmeðferð á Alþingi hefur ekkert með það að gera hvort Ísland hafi dregið umsókn sína um aðild að Evrópusambandinu til baka. Það er á valdi ríkisstjórnarinnar að draga aðildarumsóknina til baka. Það eitt að umrædd bréf ráðherranna hafi ekki verið borin undir utanríkismálanefnd breytir engu um innihald þeirra, þ.e. um afturköllun aðildarumsóknar og stöðu Íslands gagnvart Evrópusambandinu. Þá ber að hafa í huga að tilgangur 24. gr. laga um þingsköp Alþingis, um skyldu ráðherra til að ráðfæra sig við utanríkismálanefnd um meiri háttar utanríkismál, er að nefndin sé upplýst um fyrirætlanir stjórnvalda og geti komið sjónarmiðum sínum á framfæri við ráðherra. Í ljósi þess að afturköllun umsóknar Íslands um aðild að Evrópusambandinu hafði margsinnis verið rædd á vettvangi utanríkismálanefndar, m.a. við meðferð 340. máls á 143. löggjafarþingi, var bersýnilega óþarfi að kynna efni fyrrgreindra bréfa sérstaklega áður en þau voru send fulltrúum Evrópusambandsins árið 2015.
    Ekki verður litið fram hjá því að þrátt fyrir afturköllun aðildarumsóknar árið 2015 líta núverandi stjórnvöld og Evrópusambandið svo á að á einhvern hátt liggi enn fyrir gild umsókn um aðild landsins að Evrópusambandinu. Það er pólitískur veruleiki sem Alþingi verður að bregðast við í ljósi þess að 29. ágúst 2026 tók þjóðin afstöðu til þess hvort hefja ætti á ný aðildarviðræður við Evrópusambandið á grundvelli umsóknarinnar frá 2009. Það liggur í hlutarins eðli að ríki sem vill ekki aðildarviðræður við Evrópusambandið, og enn síður gerast aðili að því, á ekki að vera umsóknarríki um aðild að sambandinu. Það er án nokkurs vafa skoðun þjóðarinnar að Ísland eigi ekki að sækjast eftir aðild að Evrópusambandinu. Í því getur ekki annað falist en að þjóðin vilji ekki að Ísland sé umsóknarríki um aðild að Evrópusambandinu. Mikilvægt er að ríkisstjórnin virði vilja þjóðarinnar eins og hann birtist í nýafstaðinni þjóðaratkvæðagreiðslu, tryggi að Ísland verði ekki lengur umsóknarríki um aðild að Evrópusambandinu í augum sambandsins, gangist fyrir því að íslensk stjórnvöld og Evrópusambandið sammælist um að Ísland sé ekki umsóknarríki um aðild að Evrópusambandinu, og ábyrgist að engin umsókn um aðild, virk eða óvirk, sé í gildi á einn eða annan hátt. Lagt er til að ríkisstjórnin tilkynni Evrópusambandinu þessa afstöðu þjóðarinnar með skýrum og ótvíræðum hætti og afli skriflegrar staðfestingar frá Evrópusambandinu um stöðu Íslands gagnvart sambandinu að því loknu.
    Tilgangur tillögunnar er að fylgja vilja þjóðarinnar með því að tryggja að sameiginlegur skilningur íslenskra stjórnvalda og Evrópusambandsins sé sá að engin aðildarumsókn frá Íslandi, hvort sem hún er í gildi eður ei, liggi fyrir hjá sambandinu.