Ferill 90. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
158. löggjafarþing 2026–2027.
Þingskjal 190 — 90. mál.
Svar
heilbrigðisráðherra við fyrirspurn frá Guðlaugi Þór Þórðarsyni um aukna greiðsluþátttöku sjúkratryggðra.
Fyrirspurnin hljóðar svo:
Hvernig sundurliðast 1.000 millj. kr. sértæka aðhaldsráðstöfunin „aukin greiðsluþátttaka sjúkratryggðra“ í fjárlögum fyrir árið 2026 eftir einstökum gjaldskrárbreytingum og hver eru ársáhrifin sem áætluð eru af hverri einstakri breytingu?
Í fjárlögum 2026 kom inn 1.000 millj. kr. sértæk aðhaldskrafa vegna aukinnar greiðsluþátttöku sjúkratryggðra sem skiptist með eftirfarandi hætti:
* 400 millj. kr. vegna viðbótargreiðsluþreps í lyfjagreiðslukerfi, eru nú fjögur þrep í stað þriggja áður. Útfærslan er sambærileg við greiðsluþátttökukerfi lyfja í Svíþjóð og Danmörku en hámarkskostnaður sjúklinga helst óbreyttur frá því sem áður var. Áhrifin eru metin sambærileg, um 4–500 millj. kr. sparnaður á ársgrundvelli.
* 180 millj. kr. vegna viðbótarkomugjalda í sjúkraþjálfun. Komugjöld eru nú 1.500 kr. fyrir almennt sjúkratryggða, 1.000 kr. fyrir aldraða og 500 kr. fyrir öryrkja. Ekkert komugjald er innheimt af þeim sem eru yngri en 18 ára. Áhrifin eru metin töluvert hærri, eða um 1.000 millj. kr. sparnaður á ársgrundvelli. Þess má geta að fjárlagaliður þjálfunar hefur verið í umtalsverðum halla síðustu ár, um 3 milljarðar kr. árið 2026, og því var sparnaðurinn stilltur af með þessum hætti.
* 70 millj. kr. vegna niðurfellingar sjúkrahjálpar. Fellt var brott ákvæði 10. gr. laga um slysatryggingar almannatrygginga, nr. 45/2015, sem veitir rétt til greiðslu kostnaðar vegna sjúkrahjálpar, en fellur nú undir almennt greiðsluþátttökukerfi heilbrigðisþjónustu. Áhrifin eru 70 millj. kr. sparnaður á ársgrundvelli.
* 50 millj. kr. vegna hækkunar gjaldskrár í greiðsluþátttökukerfi heilbrigðisþjónustu um 0,5% umfram verðlagsforsendur fjárlaga. Áhrifin eru 50 millj. kr. sparnaður á ársgrundvelli. Gjaldskrár eru að jafnaði hækkaðar um áramót sem nemur verðlagsforsendum fjárlaga (sem byggjast á verðbólguspá Hagstofunnar). Verðlagsforsendur í fjárlögum fyrir árið 2026 voru 3,5%, hækkun umfram það á greiðslum einstaklinga er metin sem sparnaður fyrir ríkið.
* 200 millj. kr. vegna hækkunar á komugjöldum í heilsugæslu. Áhrifin eru 200 millj. kr. sparnaður á ársgrundvelli. Komugjöld í heilsugæslu hjá almennum sjúkratryggðum hafa verið hækkuð úr 500 kr. í 1.000 kr. Sem fyrr greiða aldraðir, öryrkjar og börn ekkert komugjald. Engar verðlagsuppfærslur höfðu verið gerðar á komugjöldum í heilsugæslu síðastliðin 18 ár.
* 100 millj. kr. vegna upptöku á greiðslum aldraðra fyrir dvöl í biðrýmum á hjúkrunarheimilum. Áhrifin eru 2–300 millj. kr. sparnaður á ársgrundvelli.
Flestar þessar tillögur voru útfærðar í 2. umræðu fjárlaga fyrir árið 2026 fyrir utan komugjöld í heilsugæslu og upptöku greiðsluþátttöku aldraðra fyrir biðrými sem var útfært í fjárlögum fyrir árið 2027.