Ferill 85. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
158. löggjafarþing 2026–2027.
Þingskjal 191 — 85. mál.
Svar
menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra við fyrirspurn frá Bryndísi Haraldsdóttur um Bókasafnssjóð höfunda.
1. Telur ráðherra eðlilegt og sanngjarnt að ríkið geti einhliða ákveðið árlegt endurgjald til höfunda og annarra rétthafa fyrir afnot verka þeirra á bókasöfnum, án samninga eða tengingar við hlutlæga mælikvarða á borð við fjölda útlána, verðlag eða launaþróun?
Samkvæmt III. kafla laga um bókmenntir, nr. 91/2007, eru höfundum, sem nánar eru skilgreindir í 2. mgr. 7. gr. sem rithöfundar, þýðendur, myndhöfundar og tónskáld, auk annarra, tryggðar greiðslur sem taka mið af tvennu.
Annars vegar er það hlutlægur mælikvarði sem er fjöldi útlána samkvæmt tölum úr Landskerfi bókasafna og Hljóðbókasafni Íslands. Útlánatölur taka bæði til láns út af söfnum sem og til afnota á lestrarsölum bókasafna samkvæmt úthlutunarreglum og ná til háskólabókasafna, almenningsbókasafna, bókasafna í stofnunum á vegum ríkis og sveitarfélaga sem og til bókasafna í grunnskólum og framhaldsskólum.
Hins vegar taka greiðslur mið af árlegri fjárveitingu Alþingis skv. 1. mgr. 7. gr. laga um bókmenntir.
Hvort tveggja verður að teljast hlutlægur mælikvarði enda þótt færa megi rök fyrir því að sá síðarnefndi fylgi ekki alltaf þróun verðlags. Útlánareikningar hafa frá upphafi byggst á tölum frá Landskerfi bókasafna en við reglubreytingar árið 2021 voru útlánatölur frá Hljóðbókasafni Íslands teknar með í reikninginn, sbr. svar við 3. tölul. Greiðslur eru fyrir afnot af bókum á bókasöfnum en teljast samkvæmt reglum ekki vera höfundaréttargreiðslur heldur menningarlegur stuðningur við bækur á íslenskri tungu.
2. Hvernig hyggst ráðherra stuðla að aukinni útgáfu bóka á íslensku, sérstaklega íslenskra barna- og ungmennabóka, og tryggja um leið að höfundar, þýðendur og myndhöfundar fái sanngjarnt endurgjald fyrir afnot verka sinna á bókasöfnum?
Stjórnvöld styðja nú þegar myndarlega við útgáfu bóka á íslensku. Með listamannalaunum fá rithöfundar starfslaun til ákveðinna verkefna. Hlutfall þeirra rithöfunda sem skrifa aðallega fyrir börn og ungmenni er milli 13 og 15% eftir því hvort miðað er við fjölda höfunda sem úthlutað er listamannalaunum eða fjölda mánaða sem eru til skiptanna. Ef höfundar sem skrifa jöfnum höndum fyrir börn, ungmenni og fullorðna eru teknir með hækkar hlutfallið upp í 24% eða 29%.
Stuðningur við útgáfu bóka á íslensku er annar liður en þar geta útgefendur sótt um endurgreiðslu á fjórðungi kostnaðar við útgáfuna eftir ákveðnum reglum. Þar á meðal er endurgreitt vegna launa höfundar eða rétthafa. Þegar ráðist verður í endurskoðun á reglum er mikilvægt að setja ákveðnar skorður á endurgreiðslur til verka sem að hluta eða að miklu leyti eru unnin af gervigreind. Síðan koma til ýmsir styrkir á vegum Miðstöðvar íslenskra bókmennta, m.a. útgáfustyrkir, þýðingarstyrkir og sérstakir styrkir vegna barna- og ungmennabóka úr sérstökum sjóði sem heitir Auður. Til hliðar við þetta er Bókasafnssjóður höfunda eins og rakið er að framan.
Sambærilegir sjóðir, sem taka mið af fjölda útlána, eru starfræktir í Svíþjóð og Finnlandi. Í Danmörku og Noregi er stuðningur byggður upp á annan hátt og er ekki samanburðarhæfur á beinan hátt. Við úthlutun úr sjóðnum á Íslandi fyrir árið 2025 nam greiðsla fyrir hvert útlán 172 kr. Í Svíþjóð var greitt það sem samsvarar 16 íslenskum krónum fyrir hvert útlán en það sem samsvarar 35 íslenskum krónum í Finnlandi. Auðvitað er ekki einfalt að bera þessi skyldu kerfi saman enda bæði löndin mun fjölmennari en Ísland og fjöldi útlána þeim mun meiri.
3. Hver er framtíðarsýn ráðherra fyrir Bókasafnssjóð höfunda? Kemur til greina að breyta lögum eða fyrirkomulagi sjóðsins þannig að fjármögnun hans verði fyrirsjáanlegri, byggð á skýrum viðmiðum og taki eðlilegum breytingum með hliðsjón af útlánum, verðlagi eða launaþróun?
Þrátt fyrir það sem rakið er í svari við 2. tölul. telur ráðherra æskilegt að hugað verði að endurskoðun reglna um Bókasafnssjóð höfunda sem svo kallast í daglegu tali enda þótt aðeins sé rætt um „greiðslur fyrir afnot á bókasöfnum“ í lögum um bókmenntir. Reglurnar voru síðast endurskoðaðar og gefnar út í Stjórnartíðindum 5. mars 2021 en lögin sjálf eru frá árinu 2007. Engu að síður er ljóst að ekki ríkir sátt um lögin og reglurnar.
Ekki skal standa á ráðuneytinu að hefja samtal við hagaðila um að endurskoða grundvöll þeirra. Athugasemdir við reglurnar hafa komið úr fleiri áttum en frá höfundum barna- og ungmennabóka því að íslenskir höfundar sem búsettir eru hér á landi en skrifa bækur á öðrum málum en íslensku eiga ekki rétt til greiðslu úr sjóðnum eins og lög og reglur eru nú. Jafnframt mætti huga að því við endurskoðun.
Hvað varðar breytingar á fjárhæðum sem sjóðurinn hefur á að skipa má benda á að þær hafa verið hækkaðar umtalsvert undanfarin ár. Árin 2018 og 2019 voru fjárhæðirnar 71,4 millj. kr. og 76,5 millj. kr. Árin 2020 og 2021 kom til verulegrar hækkunar, fyrst í 124,9 millj. kr. og síðan í 197,4 millj. kr. Ástæða hækkunarinnar var annars vegar vilji stjórnvalda til að auka framlög en hins vegar kerfisbreytingar vegna þess að útlán Hljóðbókasafns töldust nú með. Fram til ársins 2024 voru fjárhæðir á pari við árið 2021 en þó með ákveðnum aðhaldskröfum. Árið 2025 varð hins vegar umtalsverð lækkun. Árið 2026 var fjárhæðin 224,5 millj. kr. og hefur aldrei verið hærri. Í frumvarpi til fjárlaga fyrir árið 2027 er gert ráð fyrir 142,4 millj. kr. framlagi en ráðherra hefur þegar lýst yfir vilja til að stuðla að hækkun framlagsins frá því sem birtist í frumvarpi til fjárlaga í haust.