Ferill 188. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


158. löggjafarþing 2026–2027.
Þingskjal 192  —  188. mál.




Fyrirspurn


til forsætisráðherra um þjóðaröryggi og aðfangakeðjur skipaflutninga.

Frá Bryndísi Haraldsdóttur.


     1.      Hefur þjóðaröryggisráð eða ríkisstjórnin lagt mat á þá áhættu fyrir þjóðaröryggi og viðnámsþrótt Íslands sem kann að felast í því að ekkert kaupskip sem sinnir reglubundnum vöruflutningum til og frá Íslandi sigli undir íslenskum fána?
     2.      Hefur verið lagt mat á hvaða heimildir íslensk stjórnvöld hefðu til að tryggja nauðsynlega sjóflutninga til landsins ef neyðar- eða ófriðarástand skapaðist eða alvarleg röskun yrði á alþjóðlegum aðfangakeðjum?
     3.      Hefur verið greint hvaða áhrif það gæti haft á aðfangaöryggi Íslands ef fánaríki skipa sem sinna flutningum til og frá landinu nýttu heimildir sínar gagnvart skipunum vegna eigin öryggis- eða varnarhagsmuna?
     4.      Telur ráðherra ástæðu til að taka stöðu kaupskipaflotans og lögsögu Íslands yfir nauðsynlegri flutningsgetu sérstaklega til skoðunar við stefnumótun stjórnvalda um þjóðaröryggi og viðnámsþrótt?
              

Skriflegt svar óskast.