Ferill 189. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
158. löggjafarþing 2026–2027.
Þingskjal 193 — 189. mál.
Fyrirspurn
til atvinnuvegaráðherra um viðbrögð við ábendingum Ríkisendurskoðunar um sjókvíaeldi.
Frá Höllu Hrund Logadóttur.
1. Hvernig hefur verið brugðist við hverri þeirra 23 ábendinga sem Ríkisendurskoðun setti fram í skýrslunni Sjókvíaeldi – lagaframkvæmd, stjórnsýsla og eftirlit frá 6. febrúar 2023? Óskað er eftir að í svari við hverja ábendingu komi fram hvaða ráðuneyti eða stofnun ber ábyrgð á eftirfylgni, hvaða aðgerðir hafa verið gerðar frá útgáfu skýrslunnar, hvort ábendingu hafi verið fylgt eftir og á hverju sú niðurstaða byggist.
2. Hvað stendur út af vegna ábendinga sem ekki hefur verið fylgt eftir að fullu, hver ber ábyrgð á frekari úrbótum og hvenær lýkur þeim?
3. Hvaða ábendingar Ríkisendurskoðunar kalla eða hafa kallað á lagabreytingar? Hvaða ábendingum var ætlað að mæta með frumvarpi til laga um lagareldi sem lagt var fram á 157. löggjafarþingi og hvaða úrbætur hafa verið gerðar eða má gera óháð setningu nýrrar heildarlöggjafar?
4. Hefur frá útgáfu skýrslunnar farið fram mat á því hvort úrbætur sem ráðist hefur verið í hafi skilað þeim árangri sem stefnt var að? Ef svo er, hver framkvæmdi matið, hvenær fór það fram og hverjar voru helstu niðurstöður þess? Ef svo er ekki, er slíkt mat fyrirhugað?
5. Hefur ráðuneytinu borist erindi eða tilkynning frá Ríkisendurskoðun um eftirfylgni með skýrslunni eða hefur Ríkisendurskoðun óskað eftir upplýsingum frá ráðuneytinu eða stofnunum þess vegna slíkrar eftirfylgni? Ef svo er, hvenær barst erindið og hvert er umfang fyrirhugaðrar eftirfylgni?
Skriflegt svar óskast.