Ferill 122. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
158. löggjafarþing 2026–2027.
Þingskjal 194 — 122. mál.
Svar
utanríkisráðherra við fyrirspurn frá Guðlaugi Þór Þórðarsyni um Evrópusambandið og aðlögunarstyrki.
Fyrirspurnin hljóðar svo:
1. Hvenær hætti Ísland að fá aðlögunarstyrki (IPA-styrki) frá Evrópusambandinu?
2. Telst Ísland til umsóknarríkja samkvæmt Evrópusambandinu? Ef svo er, hvers vegna er Ísland ekki skilgreint sem slíkt í opinberum gögnum sambandsins?
3. Ef Ísland telst til umsóknarríkja að mati Evrópusambandsins, hvers vegna fær Ísland ekki IPA-styrki frá Evrópusambandinu líkt og önnur umsóknarríki?
4. Telur ráðherra að Ísland sé umsóknarríki? Ef svo er, mun ráðherra sækja IPA-styrki til Evrópusambandsins?
Evrópusambandið hefur ekki veitt styrki til íslenskra verkefna eftir að framkvæmdastjórn sambandsins tilkynnti í desember 2013 að allri fjárhagsaðstoð til Íslands í tengslum við svokölluð IPA-verkefni (e. Instrument for Pre-accession Assistance) yrði hætt. Var tilkynnt um ákvörðunina í kjölfar þess að ríkisstjórn Íslands hafði greint frá, fyrr sama ár, að hlé yrði gert á viðræðum um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Staða aðildarumsóknar Íslands gagnvart Evrópusambandinu er óbreytt frá því sem áður var, fyrir þjóðaratkvæðagreiðsluna 29. ágúst síðastliðinn. Að stöðu umsóknarinnar er að öðru leyti vikið í minnisblaði, dags. 20. ágúst 2025, sem utanríkisráðuneytið vann að beiðni utanríkismálanefndar Alþingis. 1 Þar er m.a. vísað til afstöðu ráðs Evrópusambandsins og Evrópuþingsins sem finna má í reglugerð frá 2021 er lýtur að IPA-stuðningi.
Samkvæmt reglugerðinni er Ísland styrkhæft vegna slíks stuðnings sem ætlaður er umsóknarríkjum en í 11. lið aðfaraorða reglugerðarinnar segir, í íslenskri þýðingu: „Leiðtogaráð ESB hefur veitt Albaníu, Íslandi, Svartfjallalandi, Norður-Makedóníu, Serbíu og Tyrklandi stöðu umsóknarríkis. […] Í mars 2015, óskaði ríkisstjórn Íslands eftir því við Sambandið að ekki yrði lengur litið á Ísland sem umsóknarríki, án þess þó að draga formlega til baka umsókn Íslands um aðild.“
Umrædd reglugerð var samþykkt af Evrópuþinginu og ráðherraráði Evrópusambandsins að tillögu framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins. Verður hún því að teljast skýr og lagalega bindandi afstaða sambandsins til þess að aðildarumsókn Íslands teljist enn í gildi.
Staðreyndin er hins vegar sú að Ísland hefur ekki átt í aðildarviðræðum við Evrópusambandið frá árinu 2013. Frá þeim tíma hefur sömuleiðis ekki legið fyrir pólitískur vilji, hjá þeim ríkisstjórnum sem farið hafa með stjórn hér á landi, um að Ísland skuli eiga í viðræðum um aðild að Evrópusambandinu. Í ljósi eðlis IPA-aðstoðar Evrópusambandsins og stöðu umsóknar og aðildarviðræðuferlis Íslands gagnvart sambandinu er því einungis rökrétt að styrkir hafi ekki verið veittir til íslenskra verkefna.
Ríkisstjórn Samfylkingar, Viðreisnar og Flokks fólksins ákvað að gefa þjóðinni tækifæri til að taka afstöðu til þess hvort grundvöllur væri fyrir því að hefja á ný viðræður um aðild Íslands að Evrópusambandinu. Niðurstaða þjóðaratkvæðagreiðslu sem fram fór um málið hinn 29. ágúst sl. var á þann veg að ekki ætti að hefja á ný viðræður um aðild að Evrópusambandinu. Ríkisstjórnin virðir vilja meiri hlutans og telur ekki forsendur fyrir því að sóst verði eftir IPA-styrkjum frá Evrópusambandinu. Mun ríkisstjórnin ekki beita sér í því sambandi.
1 www.stjornarradid.is/library/?itemid=25e9f8ce-1a4e-11f1-b89b-005056bcde1f< /i>