Ferill 96. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


158. löggjafarþing 2026–2027.
Þingskjal 196  —  96. mál.




Svar


atvinnuvegaráðherra við fyrirspurn frá Ingveldi Önnu Sigurðardóttur um vinsæla áfangastaði ferðamanna í eigu ríkisins.


    Atvinnuvegaráðuneytið naut liðsinnis Ferðamálastofu, Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar, Náttúruverndarstofnunar og umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins við að svara fyrirspurninni.

     1.      Hvaða vinsælu áfangastaðir ferðamanna eru í eigu ríkisins?
    Ekki liggur fyrir samræmd skilgreining á því hvað telst áfangastaður ferðamanna. Við undirbúning svarsins var því miðað við annars vegar náttúruperluna sjálfa og hins vegar aðkomu að henni, þ.e. viðkomandi jörð eða landsvæði í heild. Upplýsingar um eignarhald miðast við eignarhald á landi en ekki mannvirkjum eða öðrum innviðum á svæðunum.
    Við val á stöðum var stuðst við gestatalningu Ferðamálastofu og Náttúruverndarstofnunar. Svarið tekur því til þeirra tíu staða í eigu ríkisins sem samkvæmt þeim gögnum eru meðal fjölsóttustu áfangastaða ferðamanna.
    Þeir staðir sem svarið nær til eru: Geysir, Gullfoss, Þingvallaþjóðgarður, Reykjadalur, Dimmuborgir, Djúpalón í Snæfellsjökulsþjóðgarði, og Dettifoss, Fjallsárlón, Jökulsárlón og Skaftafell í Vatnajökulsþjóðgarði.

     2.      Hvaða vinsælu áfangastaðir ferðamanna eru í sameign ríkis og sveitarfélaga eða einkaaðila? Óskað er eftir að fram komi hvaða aðilar eiga staðina með ríkinu.
    Eftirfarandi er yfirlit yfir tíu fjölsóttustu áfangastaði í eigu ríkisins og hvernig eignarhaldi þeirra er háttað, þar á meðal hvort um er að ræða sameign ríkisins og annarra aðila. Við afmörkun eignarhalds var miðað við náttúruperluna annars vegar og aðkomu að henni hins vegar:

Áfangastaður Náttúruperla – eignarhald Aðkoma – eignarhald
Geysir Ríkissjóður Einkaaðili
Gullfoss Ríkissjóður og einkaaðili Ríkissjóður og einkaaðili
Þingvallaþjóðgarður Ríkissjóður Ríkissjóður
Reykjadalur Ríkissjóður Hveragerðisbær
Dimmuborgir Ríkissjóður Ríkissjóður og einkaaðili
Djúpalón Ríkissjóður Ríkissjóður
Dettifoss Ríkissjóður og einkaaðilar Ríkissjóður og einkaaðilar
Fjallsárlón Ríkissjóður og einkaaðilar Ríkissjóður
Jökulsárlón Ríkissjóður Ríkissjóður
Skaftafell Ríkissjóður Ríkissjóður

     3.      Stendur til að hefja gjaldtöku á yfirstandandi kjörtímabili að vinsælum áfangastöðum ferðamanna í eigu ríkisins eða áfangastöðum sem eru í sameign ríkis og annarra aðila?
    Atvinnuvegaráðherra hefur lagt fram í samráðsgátt stjórnvalda drög að frumvarpi til laga um náttúru- og innviðagjald. Í frumvarpinu er lagt til að tekið verði upp náttúru- og innviðagjald fyrir aðgang að þremur fjölsóttustu ferðamannastöðum í eigu ríkisins: Geysi, Gullfossi og þjóðgarðinum á Þingvöllum. Þessar ráðstafanir eru gerðar til að stuðla að öryggi, álagsstýringu og verðmætasköpun í ferðaþjónustu líkt og fram kemur í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar. Einstaklingar sem ekki hafa skattalega heimilisfesti á Íslandi þurfa að greiða náttúru- og innviðagjald að upphæð 4.500 kr. fyrir skírteinið sem gildir í eitt ár. Utan háannatíma, eða á tímabilinu 1. nóvember – 31. maí, er gjaldið hins vegar 3.000 kr. Gjaldið nær ekki til fólks með skattalega heimilisfesti á Íslandi sem hefur þegar tekið þátt í fjármögnun innviða og náttúruverndar sem skattgreiðendur. Ekki verður lengur heimilt að innheimta bílastæðagjöld á landsvæðum í eigu eða umsjón ríkisins þar sem náttúru- og innviðagjald er innheimt og verða bílastæðagjöld innan þjóðgarðsins á Þingvöllum þar með ekki lengur innheimt.
    Nú þegar eru innheimt þjónustugjöld á sumum þessara staða. Af þeim stöðum sem fram koma í svarinu innheimta opinberir aðilar þjónustugjöld í þjóðgarðinum á Þingvöllum, í Snæfellsjökulsþjóðgarði, við Jökulsárlón og í Skaftafelli. Einkaaðilar innheimta hins vegar bílastæðagjöld við Geysi og Hveragerðisbær í Reykjadal.