Ferill 120. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


158. löggjafarþing 2026–2027.
Þingskjal 197  —  120. mál.




Svar


utanríkisráðherra við fyrirspurn frá Dagbjörtu Hákonardóttur um hagsmunagæslu í tengslum við EES-samninginn.


     1.      Hversu margir starfsmenn sendiráðs Íslands í Brussel starfa við hagsmunagæslu fyrir hönd íslenska ríkisins í tengslum við framkvæmd EES-samningsins?
    Hagsmunagæsla vegna framkvæmdar EES-samningsins er sameiginlegt verkefni allra ráðuneyta Stjórnarráðsins. Sendiráð Íslands í Brussel fer með fyrirsvar fyrir þá hagsmunagæslu gagnvart stofnunum ESB í Brussel. Alls starfa 18 starfsmenn sendiráðsins að þeim verkefnum og skiptast þeir sem hér segir:
     –      Fjórir útsendir starfsmenn utanríkisráðuneytisins, þ.e. sendiherra, varamaður sendiherra og tveir sendiráðunautar, auk forstöðumanns EES-samræmingar sem er staðarráðinn. Auk EES-mála og samskipta við Evrópusambandið sinna útsendir starfsmenn öðrum verkefnum sendiráðsins, svo sem tvíhliða samskiptum við Belgíu, Holland og Lúxemborg, borgaraþjónustu o.fl.
     –      Ellefu útsendir sérfræðingar fagráðuneyta, þ.e. tveir frá annars vegar atvinnuvegaráðuneyti og hins vegar umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneyti og einn frá hverju fagráðuneyti nema mennta- og barnamálaráðuneyti, en fulltrúi félags- og húsnæðismálaráðuneytis sinnir hagsmunagæslu fyrir hönd þess.
     –      Tveir tímabundnir sérfræðingar með aðsetur í Brussel, annar á vegum menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytis og hinn á vegum dómsmálaráðuneytis.

     2.      Liggur fyrir heildstætt yfirlit yfir þátttöku fulltrúa íslenskra stjórnvalda og opinberra stofnana í sérfræðihópum, nefndum, stofnunum og samstarfsnetum ESB og EFTA?
    Sendiráðið heldur utan um og uppfærir reglulega yfirlit yfir þátttöku fulltrúa íslenskra stjórnvalda í sérfræðingahópum ESB og lagasetningarnefndum ESB. Þar að auki er haldið utan um upplýsingar um þátttöku fulltrúa íslenskra stjórnvalda og opinberra stofnana í störfum stofnana ESB sem íslensk stjórnvöld eiga rétt á að taka þátt í með einum eða öðrum hætti á grundvelli EES-samningsins. Fagráðuneyti halda að jafnaði yfirlit yfir þátttöku íslenskra stjórnvalda í einstökum stofnunum og nefndum á sínu sviði. Ísland tekur m.a. þátt í stjórnarstarfi Umhverfisstofnunar Evrópu (EEA), Matvælaöryggisstofnunar Evrópu (EFSA), Flugöryggisstofnunar Evrópu (EASA), Evrópsku verðbréfamarkaðseftirlitsstofnunarinnar (ESMA), Efnastofnunar Evrópu (ECHA) o.s.frv.
    Sendiráðið er upplýst um þátttöku íslenskra fulltrúa í vinnuhópum, undirnefndum, nefndum og stofnunum EFTA en heildstætt yfirlit liggur ekki fyrir.

     3.      Hefur ráðuneytið formgert verklag í tengslum við samstarf íslenskra stjórnvalda annars vegar og íslenskra fyrirtækja, launþegasamtaka og annarra hagsmunaaðila hins vegar á sviði hagsmunagæslu sem leiðir af framkvæmd EES-samningsins?
    Samráð við hagsmunaaðila tekur mið af eðli og umfangi þeirra mála sem eru hverju sinni til meðferðar og mati á því hvenær aðkoma þeirra getur stuðlað að markvissri hagsmunagæslu Íslands. Utan verklags um undirbúning forgangslista stjórnvalda við hagsmunagæslu gagnvart ESB hefur ráðuneytið ekki formgert sérstakt verklag um samstarf við íslensk fyrirtæki, launþegasamtök eða aðra hagsmunaaðila á sviði hagsmunagæslu sem leiðir af framkvæmd EES-samningsins. Í kjölfar nýlegra samtala við hagsmunasamtök er aftur á móti til skoðunar að koma því í fastari skorður.
    Samstarf um hagsmunagæslu er gott þó gera megi enn betur og mikilvægt er að allir þessir aðilar vinni saman til að ná sem bestum árangri. Samráð við haghafa og önnur upplýsingagjöf á sér bæði stað fyrir milligöngu ráðuneytanna eftir málefnasviðum, en jafnframt á utanríkisráðuneytið í samskiptum við haghafa og samtök þeirra, bæði um hagsmunagæslu Íslands gagnvart Evrópusambandinu almennt og eftir atvikum vegna einstakra mála. Tillögur að nýjum reglum og gerðum sem koma til skoðunar vegna hagsmunagæslu eða upptöku í EES-samninginn varða í auknum mæli fleiri en eitt málefnasvið innan Stjórnarráðsins sem getur skapað áskoranir vegna samráðs, að ábyrgð sé skýr og að haghafar viti hvert þeir eiga að leita. Ný EES-samhæfingarnefnd mun m.a. skoða hvernig samræma má verklag innan Stjórnarráðsins í þessum tilvikum.
    Þá eiga fulltrúar hagsmuna- og launþegasamtaka aðild að ráðgjafanefnd EFTA sem er samráðsvettvangur stjórnvalda við aðila vinnumarkaðarins í EFTA-ríkjunum. Stjórnvöld hafa í gegnum tíðina átt fundi með Íslandsdeild ráðgjafanefndar EFTA og miðlað upplýsingum til hennar um hagsmunagæslu og framkvæmd samningsins án þess að það samstarf hafi verið formgert.

     4.      Hefur ráðuneytið upplýsingar um fjölda fulltrúa og/eða stöðugilda á vegum íslenskra hagsmunaaðila sem starfa við beina hagsmunagæslu í tengslum við EES-samninginn á vettvangi stofnana ESB? Ef svo er, hvaða aðilar hafa fulltrúa á vettvangi og hver er fjöldi þeirra?
    Utanríkisráðuneytið heldur ekki sérstaka skrá yfir fulltrúa eða stöðugildi íslenskra hagsmunaaðila sem sinna hagsmunagæslu á vettvangi stofnana ESB, en sendiráð Íslands í Brussel er að jafnaði í sambandi við þá fulltrúa íslenskra hagsmunaaðila sem hafa aðsetur í Brussel. Þar má nefna Evrópuskrifstofu Sambands íslenskra sveitarfélaga og Samorku. Þar að auki er um þessar mundir unnið að því að setja á fót sameiginlega skrifstofu Háskólans í Reykjavík og Háskóla Íslands líkt og nýverið var greint frá í fjölmiðlum.
    Auk þeirra er ráðuneytinu kunnugt um að fjöldi fulltrúa íslenskra hagsmunaaðila sæki fundi á vettvangi stofnana ESB og evrópskra regnhlífarsamtaka án þess að hafa aðsetur í Brussel. Þá hafa bæði Samtök atvinnulífsins og Samtök iðnaðarins t.d. sett aukinn kraft í hagsmunagæslu sína með því að auka þekkingu og afl skrifstofa sinna í Reykjavík.

     5.      Með hvaða hætti er málum forgangsraðað af hálfu íslenskra stjórnvalda með tilliti til hugsanlegra áhrifa löggjafar eða stefnumótunar Evrópusambandsins á grundvallarhagsmuni Íslands?
    Samkvæmt forgangslista fyrir hagsmunagæslu Íslands gagnvart Evrópusambandinu 2024– 2029 1 byggist forgangsröðun íslenskra stjórnvalda á því að greina þau mál á vettvangi ESB sem kunna að hafa sérstök áhrif á íslenska hagsmuni. Markmiðið er að greina slík mál eins snemma og unnt er í stefnumótunar- og löggjafarferli ESB svo hægt sé að gæta íslenskra hagsmuna með markvissum hætti.
    Í forgangslistanum er gerður greinarmunur á almennum og sérstökum hagsmunum Íslands. Málum er einkum forgangsraðað þegar sérstaða Íslands leiðir til þess að áhrif löggjafar eða stefnumótunar ESB geta orðið önnur eða meiri hér á landi en almennt í ríkjum ESB. Við það mat er m.a. horft til landfræðilegrar legu Íslands, fámennis og dreifbýlis, fjarlægðar frá öðrum mörkuðum og áhrifa á mikilvægar útflutningsgreinar. Einnig er horft til áhrifa á EES-samninginn, þar á meðal tveggja stoða kerfi hans, og viðskipta Íslands við ríki utan EES.
    Eins og fram kemur í forgangslistanum má lýsa nálgun stjórnvalda með orðunum „Vöktum allt en einbeitum okkur að því mikilvægasta“. Forgangsröðunin felur því í sér að fylgst er almennt með þróun löggjafar og stefnumótunar ESB en kröftum er sérstaklega beint að þeim málum þar sem þörf kann að vera á virkri hagsmunagæslu, svo sem með því að hafa áhrif á mótun löggjafar á frumstigi eða óska eftir viðeigandi aðlögun við upptöku viðkomandi gerða í EES-samninginn. Forgangslistinn er endurskoðaður reglulega með hliðsjón af þróun mála innan ESB.

     6.      Hefur ráðuneytið lagt mat á árangur af hagsmunagæslu Íslands vegna framkvæmdar EES-samningsins? Ef svo er, með hvaða hætti?
    Sérstakt árangursmat á hagsmunagæslu Íslands vegna framkvæmdar EES-samningsins hefur ekki verið framkvæmt, en greint hefur verið frá árangri við hagsmunagæslu, m.a. í skýrslum utanríkisráðherra um framkvæmd EES-samningsins. Samkvæmt þingmálaskrá verður næsta skýrsla lögð fram í október. Eðli málsins samkvæmt er umfang hagsmunagæslunnar mjög breytilegt eftir einstökum málum. Undirliggjandi hagsmunir eru ólíkir, auk þess sem mælikvarðar eru ekki alltaf augljósir. Ein leið til að mæla árangur af hagsmunagæslu er að telja saman breytingar sem náðst hafa í gegn í löggjafarferli ESB annars vegar og hins vegar aðlaganir sem fást við upptöku í EES-samninginn. Hagsmunagæsla getur þó einnig falist í aukinni meðvitund um sérstaka hagsmuni Íslands sem leiðir til þess að löggjöf ESB tekur tillit til stöðu Íslands frá upphafi. Undanfarið hefur hagsmunagæsla skilað töluverðum árangri í umfangsmiklum hagsmunamálum, til að mynda vegna ETS og flugs sem og varðandi merkingar lyfja. Þá hefur t.d. verið unnið að því að tryggja að orkulöggjöf ESB mismuni ekki milli mismunandi orkugjafa – þ.m.t. vegna vinnslu jarðhita, svo dæmi séu tekin. Enda þótt breytingar á gerðum í lagsetningaferli innan ESB geti komið til af mörgum samverkandi þáttum, þ.m.t. hagsmunagæslu Íslands, fela þessi þrjú dæmi öll í sér að árangur hafi náðst með hagsmunagæslu Íslands.

     7.      Telur ráðherra tilefni til heildstæðrar kortlagningar á hagsmunagæslu íslenska ríkisins og annarra aðila í tengslum við framkvæmd EES-samningsins?
    Á undanförnum árum hafa íslensk stjórnvöld lagt aukna áherslu á hagsmunagæslu Íslands gagnvart ESB sem hefur m.a. skilað sér í markvissari vinnu við forgangsröðun mála þar sem virkri hagsmunagæslu er beitt. Forgangslisti vegna hagsmunagæslu Íslands gagnvart ESB var uppfærður síðasta haust og samþykktur af ríkisstjórninni, en hann var fyrst gefinn út árið 2016. Forgangslistinn hefur reynst lykilverkfæri við skipulagningu hagsmunagæslu. Miðar hann að því að greina málefni á vettvangi ESB með heildstæðum hætti og draga þannig fram á skipulegan hátt þau mál þar sem Ísland kann að hafa sérstakra hagsmuna að gæta. Notkun forgangslistans hefur m.a. leitt til þess að aukin áhersla hefur verið lögð á að hefja hagsmunagæslu á fyrri stigum, þ.e. áður en gerðir hafa verið samþykktar af hálfu ESB.
    Til viðbótar er EES-gagnagrunnurinn sem var settur á laggirnar fyrir tíu árum í sífelldri þróun. Gagnagrunnurinn er mikilvægt stjórntæki við hagsmunagæslu Íslands gagnvart ESB með því að veita góða yfirsýn yfir þau mál sem eru í gangi á hverjum tíma. Auk þess hefur upplýsingamiðlun verið aukin og starfsemi sendiráðsins í Brussel efld. Þá hefur verið sett á fót samhæfingarnefnd EES-mála sem er ætlað að tryggja skilvirka samræmingu og yfirsýn yfir framkvæmd og innleiðingu á regluverki EES.
    Kortlagning hagsmunagæslu er mikilvægur hluti af rekstri og skilvirkri framkvæmd EES-samningsins og m.a. liður í þeirri vinnu sem hafin er við að greina viðskiptatækifæri Íslands á lykilmörkuðum og eflingu hagsmunagæslu. Slík kortlagning er ekki síst mikilvæg til að styrkja einstök fagráðuneyti og stofnanir með hliðsjón af mönnun, þekkingu og stýringu vegna reksturs EES-samningsins og slípa samstarfið við haghafa í gegnum virkt samtal, upplýsingaskipti og sameiginlega nálgun þar sem því verður við komið.


1     www.stjornarradid.is/library/?itemid=d7142a21-7abb-11f1-b8a4-005056bcde1f< /i>