Ferill 191. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
158. löggjafarþing 2026–2027.
Þingskjal 198 — 191. mál.
Fyrirspurn
til innviðaráðherra um endurmat á fjárhagslegum áhrifum ríkisaðgerða á sveitarfélög.
Frá Ragnhildi Jónsdóttur.
1. Hvaða úrræði eru fyrir hendi þegar mat hefur farið fram á fjárhagslegum áhrifum lagasetningar, stjórnvaldsfyrirmæla eða annarra stefnumarkandi ákvarðana ríkisins á sveitarfélög en reynsla af framkvæmd þeirra sýnir síðar að áhrifin eru allt önnur en upphaflegt mat gerði ráð fyrir?
2. Hvaða leið telur ráðherra að tryggi endurmat fjárhagslegra áhrifa þegar verulegt frávik kemur í ljós frá upphaflegu mati?
3. Hvaða viðmið telur ráðherra rétt að leggja til grundvallar við ákvörðun um hvenær frávik milli upphaflegs mats og raunverulegra fjárhagslegra áhrifa á sveitarfélög eigi að leiða til formlegs endurmats og, eftir atvikum, breytinga á fjármögnun eða þjónustukröfum?
Skriflegt svar óskast.