Ferill 192. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
158. löggjafarþing 2026–2027.
Þingskjal 199 — 192. mál.
Fyrirspurn
til fjármála- og efnahagsráðherra um eftirfylgni með fjárhagslegu mati lagasetningar.
Frá Ragnhildi Jónsdóttur.
1. Með hvaða hætti er fylgst með því eftir gildistöku laga hvort fjárhagslegar forsendur sem lagðar voru til grundvallar mati á áhrifum stjórnarfrumvarps hafi gengið eftir?
2. Fer fram kerfisbundinn samanburður á áætluðum fjárhagslegum áhrifum stjórnarfrumvarpa annars vegar og raunverulegum fjárhagslegum áhrifum laga eftir gildistöku þeirra hins vegar? Ef svo er, með hvaða hætti, á hvaða tímapunkti og hver ber ábyrgð á slíku mati?
3. Hvaða ferli tekur við ef í ljós kemur eftir gildistöku laga að raunveruleg fjárhagsleg áhrif þeirra víkja verulega frá því mati sem lagt var fyrir Alþingi við meðferð frumvarpsins?
4. Með hvaða hætti eru upplýsingar um frávik milli áætlaðra og raunverulegra fjárhagslegra áhrifa nýttar til að bæta aðferðafræði, forsendur og gæði fjárhagslegs mats stjórnarfrumvarpa?
Skriflegt svar óskast.