Ferill 193. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


158. löggjafarþing 2026–2027.
Þingskjal 200  —  193. mál.




Fyrirspurn


til heilbrigðisráðherra um mat og innleiðingu stafrænna heilbrigðislausna.

Frá Ragnhildi Jónsdóttur.

     1.      Hvaða formlega matsferli er til staðar fyrir öryggi, klínískt notagildi og hagkvæmni stafrænna heilbrigðislausna og verða slíkar lausnir, að uppfylltum þeim viðmiðum, teknar í notkun innan opinberrar heilbrigðisþjónustu?
     2.      Hvaða stofnun eða aðili ber ábyrgð á slíku mati og hvaða viðmið eru lögð til grundvallar? Eru upplýsingar um ferlið, kröfur um gögn og sönnunargögn, afgreiðslutíma og ákvörðunarviðmið aðgengilegar þeim sem þróa stafrænar heilbrigðislausnir?
     3.      Hvaða leiðir eru fyrir hendi til opinberrar fjármögnunar eða greiðsluþátttöku vegna stafrænna heilbrigðislausna sem hafa sýnt fram á öryggi og klínískt notagildi og hvaða skilyrði þurfa slíkar lausnir að uppfylla?
     4.      Hefur ráðuneytið kannað fyrirkomulag annarra Evrópuríkja við mat, innleiðingu og greiðsluþátttöku vegna stafrænna heilbrigðislausna, svo sem DiGA-kerfið í Þýskalandi og PECAN í Frakklandi? Ef svo er, hvaða þættir þessara kerfa telur ráðuneytið að geti nýst við þróun sambærilegs fyrirkomulags hér á landi?
     5.      Hyggst ráðherra beita sér fyrir skýrara og fyrirsjáanlegra ferli við mat, innleiðingu og eftir atvikum greiðsluþátttöku vegna stafrænna heilbrigðislausna hér á landi? Ef svo er, hvaða breytingar eru fyrirhugaðar og hvenær má vænta þeirra?


Skriflegt svar óskast.