Ferill 195. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


158. löggjafarþing 2026–2027.
Þingskjal 202  —  195. mál.




Fyrirspurn


til fjármála- og efnahagsráðherra um skuldir og vaxtakostnað fyrirtækja.

Frá Guðlaugi Þór Þórðarsyni.


     1.      Hver var heildarstaða vaxtaberandi skulda atvinnufyrirtækja á Íslandi í lok árs 2024 og 2025 og samkvæmt nýjustu tiltæku upplýsingum fyrir árið 2026?
     2.      Hvernig skiptust skuldirnar eftir:
                  a.      lánveitendum, þ.e. innlánsstofnunum, lífeyrissjóðum, öðrum innlendum lánveitendum og erlendum lánveitendum,
                  b.      útgefnum markaðsskuldabréfum,
                  c.      verðtryggðum og óverðtryggðum lánum,
                  d.      lánum í íslenskum krónum og erlendum gjaldmiðlum,
                  e.      föstum og breytilegum vöxtum?
     3.      Hvernig skiptust skuldirnar eftir atvinnugreinum, stærð fyrirtækja og landshlutum?
     4.      Hver eru áætluð árleg áhrif á vaxtagjöld fyrirtækja af hækkun útlánavaxta um 0,25, 0,50, 0,75 og 1,00 prósentustig miðað við skuldastöðu samkvæmt nýjustu tiltæku gögnum?
     5.      Hver er breytingin á meðalvöxtum nýrra og útistandandi fyrirtækjalána frá 21. desember 2024, 1. janúar 2026 og með hverri ákvörðun Seðlabanka Íslands um vaxtahækkun árið 2026?
     6.      Hvernig hefur vaxtakostnaður fyrirtækja, sundurliðað eftir atvinnugrein og stærð fyrirtækja, þróast í krónum og sem hlutfall af:
                  a.      veltu,
                  b.      afkomu fyrirtækja áður en tekið er tillit til vaxtagreiðslna og vaxtatekna, skattgreiðslna og afskrifta (EBITDA),
                  c.      rekstrarafgangi frá árinu 2024?
     7.      Hversu stór hluti fyrirtækjalána kemur til endurfjármögnunar eða vaxtaendurskoðunar á næstu 12, 24 og 36 mánuðum?


Skriflegt svar óskast.