Ferill 196. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


158. löggjafarþing 2026–2027.
Þingskjal 203  —  196. mál.




Fyrirspurn


til innviðaráðherra um farnetsþjónustu eftir útfösun 2G- og 3G-netkerfa.

Frá Ingveldi Önnu Sigurðardóttur.


     1.      Hefur ráðherra fengið og brugðist við kvörtunum eða ábendingum um skert farsímasamband í kjölfar útfösunar 2G- og 3G-farnetskerfa?
     2.      Hefur ráðherra íhugað hvort tilefni sé til aðkomu hins opinbera með skattalegum hvötum til að styrkja uppbyggingu og rekstur almennrar fjarskiptaþjónustu með einhverjum hætti á svæðum þar sem getur ríkt markaðsbrestur og farnetsþjónusta verið skert?
     3.      Hefur ráðherra í hyggju að láta framkvæma heildaráhættumat á fjarskiptasambandi og neyðarþjónustu á landinu öllu í kjölfar útfösunarinnar?


Skriflegt svar óskast.


Greinargerð.


    Í skýrslu Fjarskiptastofu frá september 2026 um útfösun 2G- og 3G-farnetskerfa kemur fram að lokun eldri farnetskerfa geti haft í för með sér ýmsar áskoranir sem eru af tæknilegum, viðskiptalegum og samfélagslegum toga. Ábendingar hafi m.a. borist um skert farsímasamband í dreifbýli. Almenn farnetsþjónusta er samkvæmt skýrslunni í raun orðin órjúfanlegur hluti af þátttöku almennings í samfélaginu og er starfrækt á markaðslegum forsendum á ábyrgð einkaaðila. Í fámennu og strjálbýlu landi eru aftur á móti svæði þar sem getur ríkt markaðsbrestur og farnetsþjónusta verið skert.