Ferill 136. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
158. löggjafarþing 2026–2027.
Þingskjal 206 — 136. mál.
Svar
mennta- og barnamálaráðherra við fyrirspurn frá Þorgrími Sigmundssyni um notkun síma og snjalltækja á skólatíma í grunnskóla og á frístundaheimilum.
1. Fór fram kostnaðarmat vegna innleiðingar og framkvæmdar reglugerðar um notkun síma og snjalltækja á skólatíma í grunnskóla og á frístundaheimilum, nr. 945/2026, áður en hún var sett? Ef svo er, hver var niðurstaða matsins?
Við vinnslu reglugerðar um notkun síma og snjalltækja á skólatíma í grunnskóla og á frístundaheimilum, nr. 945/2026, var kostnaðarmat skv. 129. gr. sveitarstjórnarlaga, nr. 138/2011, framkvæmt. Kostnaðarmatið tók mið af 2. mgr. 5. gr. reglugerðarinnar en þar kemur fram að símar og snjalltæki sem ekki eru í eigu eða umsjá skóla eða frístundaheimilis skuli ekki vera aðgengileg á skólatíma. Grunnskólum og frístundaheimilum er falið að ákveða fyrirkomulag geymslu tækjanna með hliðsjón af aðstæðum þannig að þau séu ekki aðgengileg nemendum, svo sem í þartilgerðum skápum, hólfum eða geymslukössum. Hver skóli og hvert frístundaheimili skal móta sér nánari reglur um fyrirkomulag geymslu og afhendingu tækjanna í samráði við aðila skólasamfélagsins. Þannig gerir reglugerðin hvorki kröfu um tiltekna tegund geymslulausnar né sérstakt geymsluhólf fyrir hvern nemanda. Með hliðsjón af því var gróft sviðsmyndamat á mögulegum stofnkostnaði vegna geymsluaðstöðu fyrir síma og snjalltæki unnið.
Kostnaðarmatið byggist á því að skólaárið 2024–2025 voru samtals 47.162 nemendur í 174 grunnskólum, eða um 271 nemandi að meðaltali í hverjum grunnskóla. Gert var ráð fyrir því að 50–100% skólanna gæti þurft að kaupa nýjan geymslubúnað, með hliðsjón af því að óljóst er hve margir skólar kunni þegar að búa yfir fullnægjandi aðstöðu og ekki er víst að allir nemendur hafi síma eða snjalltæki meðferðis né að geyma þurfi öll tæki samtímis.
Við kostnaðarmatið var miðað við eftirfarandi viðmiðunarlausn fyrir hvern skóla sem þyrfti nýja geymslulausn:
a. einn læsanlegan málmskáp; og
b. þrjá 12 lítra geymslukassa, miðað við að hver kassi rúmi um 99–127 síma.
Miðað við að 87–174 skólar, eða 50–100% skólanna, þyrftu nýja lausn var niðurstaðan um heildarkostnað eftirfarandi:
a. heildarkostnaður vegna málmskápa var áætlaður 4,79–9,59 millj. kr. án vsk. eða 5,94– 11,89 millj. kr. með vsk.,
b. heildarkostnaður vegna 261–522 geymslukassa var áætlaður 0,65–1,29 millj. kr. án vsk. eða 0,80–1,61 millj. kr. með vsk.,
c. samanlagður heildarstofnkostnaður, sbr. a- og b-lið, var því áætlaður 5,44–10,88 millj. kr. án vsk. eða 6,75–13,49 millj. kr. með vsk.
Áréttað er að um sviðsmyndamat var að ræða en ekki mat á raunverulegri viðbótarþörf einstakra skóla. Útreikningar byggjast því á meðalnemendafjölda og sömu viðmiðunarlausn fyrir hvern skóla sem þyrfti nýjan búnað án tillits til sérstakra aðstæðna hvers og eins skóla. Jafnframt var miðað við almennt listaverð viðmiðunarvara en raunverulegt kaupverð á grundvelli rammasamnings kann að vera lægra. Raunverulegur stofnkostnaður getur því orðið lægri, m.a. vegna þess að margir skólar kunna þegar að hafa nothæfa skápa, hólf eða aðra geymsluaðstöðu. Kostnaðurinn gæti hins vegar orðið hærri í einstökum skólum, til að mynda þar sem þörf er á fleiri en einum skáp eða sérstakri aðstöðu fyrir frístundaheimili.
Ekki var lagt sérstakt tölulegt mat á rekstrarkostnað eða vinnuframlag starfsfólks. Framangreindir þættir voru í matinu skráðir sem óvissuþættir, enda liggja ekki fyrir upplýsingar um núverandi framkvæmd og raunverulega viðbótarþörf einstakra skóla, svo sem í tengslum við breytingu á verklagi og fjölda tækja sem þarf að geyma. Ekki var gert ráð fyrir nýjum stöðugildum eða sérstakri fjárveitingu vegna daglegrar framkvæmdar. Í því samhengi er rétt að árétta að grunnskólar og frístundaheimili þurfa samkvæmt reglugerðinni m.a. að ákveða fyrirkomulag geymslu og afhendingar og hafa skólastjórar og forstöðumenn frístundaheimila forgöngu um innleiðingu reglugerðarinnar og bera ábyrgð á framkvæmd hennar. Vinnuframlag ræðst því að verulegu leyti af þeirri útfærslu sem hver skóli eða hvert frístundaheimili velur og var sú forsenda lögð til grundvallar að almenn innleiðing, kynning og eftirfylgni gæti að meginstefnu rúmast innan núverandi stjórnunar- og rekstrarramma skóla og sveitarfélaga.
Þá var ekki lagt sérstakt mat á stofn- eða rekstrarkostnað frístundaheimila. Viðbótarkostnaður kann að falla til ef ekki er unnt að samnýta geymsluaðstöðu eða verklag með viðkomandi grunnskóla.
2. Hver er áætlaður stofn- og rekstrarkostnaður sveitarfélaga og skóla vegna framkvæmdarinnar, m.a. vegna geymslu tækja og vinnuframlags starfsfólks?
Sjá svar við 1. tölul. fyrirspurnarinnar.
3. Verður sveitarfélögum mætt vegna kostnaðar sem leiðir af reglugerðinni? Ef svo er, hvernig?
Að svo stöddu er ekki gert ráð fyrir sérstökum fjárframlögum til sveitarfélaga vegna kostnaðar sem kann að leiða af reglugerðinni. Fyrirliggjandi kostnaðarmat bendir til þess að áætlaður kostnaður vegna reglugerðarinnar sé takmarkaður í heildarsamhengi.