Ferill 199. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
158. löggjafarþing 2026–2027.
Þingskjal 207 — 199. mál.
Tillaga til þingsályktunar
um fæðuöryggi og innlenda matvælaframleiðslu.
Flm.: Ingibjörg Davíðsdóttir, Bergþór Ólason, Karl Gauti Hjaltason, Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, Þorgrímur Sigmundsson.
Alþingi ályktar að fela atvinnuvegaráðherra að ráðast í eftirfarandi aðgerðir, í samstarfi við hagaðila, þ.m.t. bændur og úrvinnslufyrirtæki þeirra, sem allar miða að því að stuðla að fæðuöryggi og efla innlenda matvælaframleiðslu:
1. Gera heildstæða landsáætlun með þátttöku hagaðila, þar sem útlistað verði hvernig fæðuöryggi þjóðarinnar (þjóðaröryggi) verði tryggt, við hvaða aðstæður sem upp kunna að koma á heimsvísu sem og á Íslandi. Við gerð og framkvæmd landsáætlunar verði sérstaklega tekið mið af þjóðaröryggisstefnu Íslands og mati á mikilvægum innviðum.
2. Tryggja að innlend matvælaframleiðsla búi við öruggt, samkeppnishæft og fyrirsjáanlegt rekstrarumhverfi sem styður við fjárfestingar, nýliðun, kynslóðaskipti og langtímauppbyggingu framleiðslugetu.
3. Stuðlað verði að þróun og framleiðslu á aðföngum sem nauðsynleg eru til innlendrar matvælaframleiðslu og mögulegt er að framleiða innan lands. Sérstök áhersla verði lögð á að efla innlenda framleiðslu áburðar, styrkja innlenda fóður- og kornrækt og draga úr viðkvæmni íslensks landbúnaðar gagnvart röskunum á alþjóðlegum aðfangakeðjum.
4. Innleiða hvata til nýsköpunar, tæknivæðingar, fullvinnslu og þróunar hliðarafurða í landbúnaði. Koma á virkara samstarfi bænda, frumkvöðla, fyrirtækja, háskóla og tæknisamfélags.
5. Efla neytendavernd með rekjanleika og öryggi matvæla. Þetta verði gert með viðunandi upprunamerkingu matvöru, þar sem fram komi m.a. uppeldisland sláturdýra, framleiðsluland matvæla, og skýrari innihaldslýsingar, svo sem um notkun lyfja við framleiðsluna og um framleiðsluferli, þ.e. hversu oft vara hafi verið fryst og þídd við vinnslu og hver sláturdagur hafi verið.
6. Endurskoða og samræma eftirlitskerfi matvælaframleiðslu með það að markmiði að auka skilvirkni, draga úr tvíverknaði og lækka kostnað án þess að dregið sé úr matvælaöryggi eða neytendavernd.
7. Tryggja viðunandi starfsumhverfi greinarinnar. Gera bændum auðveldara að auka heimavinnslu og efla framleiðslu til neytenda undir merkinu Beint frá býli.
8. Framkvæmt verði með reglubundnum hætti mat á fæðuöryggi og sjálfsbjargargetu landsins, þar á meðal framleiðslugetu, aðfangaöryggi, birgðastöðu og viðnámsþoli virðiskeðju matvælaframleiðslu og niðurstöður birtar á Alþingi árlega með skýrslu ráðherra.
9. Við orkuskipti verði sérstakt tillit tekið til stöðu landbúnaðarins og bænda, t.d. með sérstökum stuðningi og hvötum til nýtingar nýrra tæknilausna. Sérstakur stuðningur, sérlausnir eða aðlaganir verði tryggðar, þar sem tæknilausnir skortir eða sértækar aðstæður á norðurslóðum kalla á.
Greinargerð.
Með tillögunni er lagt til að atvinnuvegaráðherra verði falið að takast á hendur framangreindar aðgerðir í samstarfi við hagaðila, þ.m.t. bændur og úrvinnslufyrirtæki þeirra, sem allar miða að því að stuðla að fæðuöryggi og efla innlenda matvælaframleiðslu.
Meginmarkmið tillögunnar er að horfa til framtíðar og stuðla að fæðuöryggi og aukinni verðmætasköpun úr íslenskum afurðum með markvissum aðgerðum. Með fyrrgreint markmið að leiðarljósi er þingsályktunartillaga þessi sett fram í níu liðum og er hver og einn þeirra varða á leið til fæðuöryggis.
Alþjóðasamfélagið glímir við margvíslegar áskoranir sem hafa m.a. áhrif á okkar samfélag. Mikilvægi innlendrar matvælaframleiðslu hefur sjaldan verið jafn augljóst og nú. Stutt er síðan þjóðin tókst á við kórónuveirufaraldurinn þar sem ein fyrstu viðbrögð við faraldrinum voru að kanna matarbirgðir landsins og skilgreina matvælaframleiðslu, flutning matvæla og flutningsfyrirtæki sem þjóðhagslega mikilvæg fyrirtæki. Öryggi hvers ríkis felst m.a. í því að geta brauðfætt þjóð sína og verið eins óháð öðrum og nokkur kostur er varðandi fæðu. Hluti af þjóðaröryggi Íslands er því að tryggja með sem bestum hætti að þjóðin geti verið sem mest sjálfbjarga um fæðu þannig að fæðuöryggi sé tryggt. Öflug innlend matvælaframleiðsla er hluti mikilvægra innviða og augljóslega hluti þjóðaröryggis. Þess vegna er æskilegt að gerð verði heildstæð landsáætlun þar sem útlistað verði hvernig fæðuöryggi þjóðarinnar (þjóðaröryggi) verði tryggt við hvaða aðstæður sem upp kunna að koma á heimsvísu sem og á Íslandi og áætlunin taki mið af þjóðaröryggisstefnu Íslands.
Innlend matvælaframleiðsla er ein af grunnstoðunum þegar við byggjum sjálfbært og sjálfstætt samfélag til framtíðar. Skapa þarf hvata og jákvætt starfsumhverfi fyrir frumkvöðla sem leita leiða til að fullnýta afurðir, minnka vistspor og búa til verðmæti, m.a. úr áður ónýttum afurðum. Jafnframt er mikilvægt að efla rannsóknir og þróun, ásamt því að efla hátæknimatvæla- og fæðuframleiðslu og stuðla að fjárfestingum í hátæknibúnaði. Ódýr hrein orka, hreint vatn og loft leika lykilhlutverk í framtíðarmatvælaframleiðslu á Íslandi. Mikilvægt er að hlúa að nýliðun því að til lengri tíma ræðst fæðuöryggi af getu greinarinnar til að laða að nýja aðila til að vinna við landbúnað. Þannig er mikilvægt að stjórnvöld skapi umgjörð sem auðveldar nýliðun og kynslóðaskipti í landbúnaði.
Nauðsynlegt er að huga að öryggi aðfanga til matvælaframleiðslu, þar á meðal áburðar og fóðurs. Reynslan af truflunum á alþjóðlegum mörkuðum undanfarin ár hefur sýnt að aðgengi að slíkum aðföngum getur haft úrslitaáhrif á getu ríkja til að viðhalda innlendri matvælaframleiðslu og þar með fæðuöryggi. Þá er nauðsynlegt að auki að meta og tryggja öryggi aðfanga sem nauðsynleg eru til matvælaframleiðslu, þar á meðal áburðar, fóðurs, eldsneytis, varahluta, umbúða og annarra lykilframleiðsluþátta, með það að markmiði að draga úr viðkvæmni gagnvart röskunum á alþjóðlegum aðfangakeðjum. Þá er mikilvægt að framkvæmt verði með reglubundnum hætti mat á fæðuöryggi og sjálfsbjargargetu landsins, þar á meðal framleiðslugetu, aðfangaöryggi, birgðastöðu og viðnámsþoli virðiskeðju matvælaframleiðslu og niðurstöður birtar á Alþingi árlega.
Íslendingar vilja öfluga og innlenda matvælaframleiðslu sem þeir þekkja og geta treyst. Ferðamaður sem sækir Ísland heim vill neyta íslenskrar vöru. Eftirspurn eftir matvælum úr nærumhverfi hefur sjaldan verið meiri og eykst með aukinni vitneskju neytandans um kosti innlendrar framleiðslu. Um allt land má sjá merki þess að einstaklingar og fyrirtæki sjái tækifæri til að skapa verðmæti úr áður ónýttum afurðum og um leið störf og auknar tekjur. Bændur hafa sýnt vilja til að auka heimavinnslu og efla framleiðslu til neytenda undir merkinu Beint frá býli. Í því kunna að felast tækifæri og brýnt er að auka möguleika bænda á slíkri vinnslu.
Eigi íslenskur landbúnaður að vera öflugur þátttakandi í því að stuðla að fæðuöryggi þjóðar, ásamt því að sjá landsmönnum fyrir hollri og næringarríkri fæðu, þarf hann stöðugt rekstrarumhverfi. Eigi greinin að geta sótt fram og nýtt styrk sinn þarf hún stuðning og öryggi. Öryggi matvælaframleiðslu byggist einnig á varðveislu ræktanlegs lands og framleiðslugetu til framtíðar og er æskilegt að huga að því. Mikilvægt er að tryggja að bújarðir og ræktarland verði ekki gengin úr greipum samfélagsins vegna annarra nota.
Flutningsmenn tillögunnar telja mikilvægt að skapa styrkari umgjörð sem eflir innlenda matvælaframleiðslu og stuðlar að fæðuöryggi þjóðarinnar og hvetja atvinnuvegaráðherra til að tryggja að sú vinna sem hér er lögð til verði sett af stað hið fyrsta.