Ferill 200. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
158. löggjafarþing 2026–2027.
Þingskjal 208 — 200. mál.
Fyrirspurn
til innviðaráðherra um útgjöld til viðhalds og nýframkvæmda í vegakerfinu.
Frá Sigurði Inga Jóhannssyni.
1. Hver var árleg upphæð sem fór til viðhalds annars vegar og nýframkvæmda hins vegar í vegakerfinu á tímabilunum 2011–2015, 2016–2020 og 2021–2025? Upplýsingar óskast annars vegar settar fram á verðlagi hvers árs og hins vegar á verðlagi þessa árs.
2. Hver er áætlun um útgjöld til viðhalds og nýframkvæmda fyrir árin 2026, 2027 og 2028?
Skriflegt svar óskast.