Ferill 206. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
158. löggjafarþing 2026–2027.
Þingskjal 214 — 206. mál.
Beiðni um skýrslu
frá heilbrigðisráðherra um dánaraðstoð.
Frá Bryndísi Haraldsdóttur, Sigmundi Erni Rúnarssyni, Ingvari Þóroddssyni, Þórarni Inga Péturssyni, Guðmundi Inga Kristinssyni, Sigurði Helga Pálmasyni, Ingveldi Önnu Sigurðardóttur, Njáli Trausta Friðbertssyni, Jóni Pétri Zimsen, Sigurði Erni Hilmarssyni, Viktori Pétri Finnssyni, Tómasi Þór Þórðarsyni og Diljá Mist Einarsdóttur.
Með vísan til 54. gr. stjórnarskrárinnar og 54. gr. laga um þingsköp Alþingis er þess óskað að heilbrigðisráðherra flytji Alþingi skýrslu um dánaraðstoð og þróun mála á því sviði frá því að skýrsla heilbrigðisráðherra um dánaraðstoð var lögð fyrir Alþingi árið 2020.
Í skýrslunni verði einkum eftirfarandi atriði tekin til umfjöllunar:
a. Lagaumgjörð og þróun dánaraðstoðar.
Hvaða form dánaraðstoðar séu heimiluð í þeim ríkjum og lögsagnarumdæmum þar sem dánaraðstoð er leyfð, hvernig löggjöf og framkvæmd hafi þróast frá árinu 2020 og hver sé helsti munur á lagalegri útfærslu milli ríkja.
Sérstaklega verði gerð grein fyrir því hvort gert sé ráð fyrir að einstaklingur innbyrði sjálfur þau lyf sem leiða til dauða eða að heilbrigðisstarfsmaður gefi þau. Einnig verði greint á milli samþykktra laga og laga sem hafa tekið gildi og komið til framkvæmdar.
b. Skilyrði og öryggisráðstafanir.
Hvaða skilyrði einstaklingur þurfi að uppfylla til að fá dánaraðstoð, m.a. hvað varðar aldur, búsetu, ákvörðunarhæfi, heilsufar, fyrirsjáanleg lífslok, óbærilega og óafturkræfa þjáningu og upplýsta, ítrekaða og sjálfviljuga ósk.
Jafnframt verði gerð grein fyrir helstu öryggisráðstöfunum, svo sem mati fleiri en eins óháðs heilbrigðisstarfsmanns, bið- og umþóttunartíma, rétti til að draga beiðni til baka, kröfum um skráningu og rökstuðning, eftirliti sjálfstæðra aðila og úrræðum þegar ekki er farið að lögum eða verkferlum.
Sérstaklega verði fjallað um hvernig komið sé í veg fyrir að einstaklingar óski eftir dánaraðstoð vegna þrýstings eða þvingunar, félagslegrar einangrunar, bágrar fjárhagsstöðu eða skorts á viðeigandi heilbrigðisþjónustu, félagsþjónustu eða öðrum stuðningi.
c. Tíðni og framkvæmd.
Hver hafi verið þróun á fjölda og hlutfalli dauðsfalla vegna dánaraðstoðar frá því að löggjöf tók gildi í viðkomandi ríki eða lögsagnarumdæmi. Eftir því sem gögn leyfa verði gerð grein fyrir:
fjölda umsókna um dánaraðstoð,
fjölda samþykktra og synjaðra umsókna,
fjölda þeirra sem fá heimild en nýta hana ekki,
fjölda þeirra sem fá dánaraðstoð og hlutfalli þeirra af heildarfjölda dauðsfalla,
aldri, kyni og sjúkdómsgreiningum þeirra sem fá dánaraðstoð,
þeim ástæðum sem einstaklingar tilgreina fyrir ósk sinni,
og því hvernig dánaraðstoð er framkvæmd.
Jafnframt verði lagt mat á þær skýringar sem fram hafa komið á fjölgun eða fækkun tilfella eftir að löggjöf tók gildi.
d. Reynsla, rannsóknir og eftirlit.
Gerð verði grein fyrir fyrirliggjandi rannsóknum og opinberum úttektum á reynslu þeirra ríkja sem hafa heimilað dánaraðstoð, m.a. verði fjallað um framkvæmd laganna, eftirlit, öryggi sjúklinga, vernd fólks í viðkvæmri stöðu og reynslu sjúklinga, aðstandenda og heilbrigðisstarfsfólks.
Tekið verði saman yfirlit yfir mál þar sem framkvæmd dánaraðstoðar hefur sætt formlegri athugun, gagnrýni eða málsmeðferð vegna gruns um að ekki hafi verið farið að lögum eða verkferlum. Einnig verði gerð grein fyrir þekktum málum þar sem talið hefur verið að einstaklingur hafi orðið fyrir þrýstingi eða þvingun til að óska eftir dánaraðstoð.
e. Líknarmeðferð og önnur þjónusta.
Hvaða áhrif lögleiðing dánaraðstoðar hafi haft á þróun, fjármögnun og aðgengi að líknar- og lífslokameðferð í þeim ríkjum þar sem hún er heimil.
Jafnframt verði gerð grein fyrir því hvernig tryggt sé að einstaklingur fái upplýsingar um og raunhæfan aðgang að viðeigandi læknismeðferð, líknarmeðferð, verkjastillingu, sálfræðiþjónustu, félagslegum stuðningi og annarri nauðsynlegri þjónustu áður en ákvörðun um dánaraðstoð er tekin.
f. Staða heilbrigðisstarfsfólks.
Hvaða áhrif lögleiðing dánaraðstoðar hafi haft á starfshætti og starfsumhverfi lækna, hjúkrunarfræðinga og annars heilbrigðisstarfsfólks.
Gerð verði grein fyrir því hvernig réttur heilbrigðisstarfsfólks og heilbrigðisstofnana til að neita þátttöku í dánaraðstoð er útfærður og hvernig aðgengi einstaklinga að lögbundinni þjónustu er tryggt samhliða samviskufrelsi heilbrigðisstarfsfólks.
g. Þróun í öðrum ríkjum.
Hver opinber og pólitísk umræða, dómaframkvæmd, vinna opinberra nefnda og fyrirhugaðar lagabreytingar hafi verið í ríkjum þar sem dánaraðstoð er ekki heimil eða lagaumgjörð um hana er í þróun.
Sérstaklega verði fjallað um þróun mála á Norðurlöndum, Bretlandseyjum og í öðrum ríkjum sem Ísland ber sig gjarnan saman við.
h. Staða málsins á Íslandi.
Hverjar séu fyrirliggjandi rannsóknir og kannanir á viðhorfum almennings, sjúklinga, sjúklingasamtaka og heilbrigðisstarfsfólks til dánaraðstoðar hér á landi, þróun þeirra viðhorfa og umfjöllun Alþingis um málið.
Jafnframt verði lagt mat á hvort tilefni sé til nýrrar eða ítarlegri viðhorfskönnunar meðal heilbrigðisstarfsfólks. Slík könnun gæti m.a. tekið til afstöðu þess til mismunandi skilyrða dánaraðstoðar, eigin þátttöku í framkvæmd hennar og réttar til að neita þátttöku.
Loks verði gerð grein fyrir því hvaða breytingar þyrfti að gera á íslenskum lögum ef ákveðið yrði að heimila dánaraðstoð. Þar verði sérstaklega fjallað um 213. og 214. gr. almennra hegningarlaga, lög um réttindi sjúklinga, lög um heilbrigðisstarfsmenn, lyfjalög og lög um heilbrigðisþjónustu. Einnig verði fjallað um þau álitaefni sem kunna að koma upp vegna stjórnarskrár og alþjóðlegra mannréttindaskuldbindinga Íslands og hvernig haga mætti stjórnsýslu, eftirliti, skráningu og reglubundinni upplýsingagjöf til Alþingis og almennings.
Við gerð skýrslunnar verði byggt á nýjustu opinberu tölulegu gögnum, opinberum úttektum og viðurkenndum rannsóknum. Skýrt verði greint á milli ólíkra forma dánaraðstoðar og tekið tillit til þess að hugtakanotkun og lagalegar skilgreiningar eru mismunandi eftir ríkjum.
Skýrslunni verði skilað eigi síðar en 31. janúar 2027.
Greinargerð.
Í skýrslunni voru teknar saman upplýsingar um hugtök, löggjöf, skilyrði og reynslu nokkurra ríkja af dánaraðstoð. Þar kom jafnframt fram að skýrslubeiðnin væri afar víðtæk og því yrði aðeins leitast við að veita almenn svör við þeim spurningum sem settar voru fram.
Frá árinu 2020 hefur orðið töluverð þróun á þessu sviði. Fleiri ríki og lögsagnarumdæmi hafa samþykkt löggjöf um dánaraðstoð, breytingar hafa verið gerðar á gildandi lögum og aukin reynsla og rannsóknargögn liggja nú fyrir. Í sumum ríkjum hafa farið fram opinberar úttektir og endurskoðun á löggjöfinni en í öðrum standa yfir lagalegar og pólitískar umræður um hvort og með hvaða skilyrðum dánaraðstoð skuli heimiluð.
Í svari heilbrigðisráðherra við fyrirspurn Bryndísar Haraldsdóttur á 153. löggjafarþingi (185. mál) kom fram að engin áframhaldandi vinna hefði farið fram innan ráðuneytisins í kjölfar skýrslunnar frá árinu 2020. Ráðherra taldi þó tímabært að huga að næstu skrefum.
Vorið 2023 fól Alþingi heilbrigðisráðherra að kanna viðhorf heilbrigðisstarfsfólks, sjúklingasamtaka og almennings til dánaraðstoðar. Niðurstöðurnar sýndu að 56% lækna, 86% hjúkrunarfræðinga og 81% sjúkraliða voru alfarið, mjög eða frekar hlynnt dánaraðstoð. Meðal svarenda hjá sjúklingasamtökum voru 84,4% hlynnt því að dánaraðstoð yrði leyfð og meðal almennings voru 75,6% alfarið, mjög eða frekar hlynnt.
Dánaraðstoð vekur mikilvægar siðferðilegar, læknisfræðilegar og lagalegar spurningar. Þar reynir m.a. á sjálfsákvörðunarrétt einstaklingsins, vernd fólks í viðkvæmri stöðu, hlutverk og samviskufrelsi heilbrigðisstarfsfólks og tengsl dánaraðstoðar við líknarmeðferð og aðra heilbrigðis- og félagsþjónustu.
Mikilvægt er að umræða og ákvarðanataka Alþingis um svo viðkvæmt málefni byggist á traustum, hlutlausum og uppfærðum upplýsingum. Markmið beiðninnar er að Alþingi fái heildstæða mynd af þróun löggjafar, framkvæmd, eftirliti og reynslu annarra ríkja, auk skýrrar greiningar á þeim lagalegu og stjórnsýslulegu álitaefnum sem taka þyrfti afstöðu til.