Ferill 127. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


158. löggjafarþing 2026–2027.
Þingskjal 216  —  127. mál.




Svar


innviðaráðherra við fyrirspurn frá Guðlaugi Þór Þórðarsyni um uppbyggingu flugtengdrar mennta- og þekkingarstarfsemi á Reykjavíkurflugvelli.


    Fyrirspurnin hljóðar svo:
    Hvernig sér ráðherra fyrir sér uppbyggingu flugtengdrar mennta- og þekkingarstarfsemi á og við Reykjavíkurflugvöll?

    Ráðherra lítur á Reykjavíkurflugvöll sem eina miðstöð grasrótarinnar í flugi hér á landi. Flugkennsla er mikilvægur hluti þeirrar starfsemi, enda eru flugskólar starfræktir á vellinum. Að mati ráðherra þarf að tryggja að flugkennsla geti áfram farið þar fram og vaxið og dafnað.
    Hvorum megin við Reykjavíkurflugvöll eru tvær af stærstu menntastofnunum landsins, þ.e. Háskóli Íslands og Háskólinn í Reykjavík. Á flugvellinum eru höfuðstöðvar Avians, sem sér um flugleiðsöguþjónustu á íslenska flugstjórnarsvæðinu og á íslenskum flugvöllum og annast kennslu í flugumferðarstjórn. Þar er flugrekstur stundaður, rekin flugvélaverkstæði, flugskólar og flugklúbbar sem eru nauðsynlegir gróskumikilli starfsemi á sviði flugtengdra greina og vegna verklega hluta flug- og flugtengds náms. Mikilvægt er að flugskólar líkt og Flugskóli Reykjavíkur geti látið áform sín um uppbyggingu verða að veruleika.
    Á Reykjavíkurflugvelli er því rétta umhverfið til uppbyggingar flugtengdrar mennta- og þekkingarstarfsemi. Ýmis atriði hafa þó hamlað slíkri uppbyggingu á Íslandi og sér í lagi á Reykjavíkurflugvelli. Þar má helst nefna:
    Flug og flugtengt nám er með sérstöðu í menntakerfinu.
     –      Flug og flugtengt nám er almennt ekki hluti af menntakerfinu og nýtur ekki sambærilegs ríkisstuðnings og annað verknám.
     –      Flugnámið er dýrt, sem veldur mismunun eftir efnahag.
     –      Námskeið sem lokið er við fást ekki metin til annars náms eins og víða erlendis.
    Framtíð flugrekstrar í Vatnsmýrinni hefur verið í óvissu.
     –      Stefna Reykjavíkurborgar gerir ráð fyrir að flugvöllurinn fari úr Vatnsmýrinni.
     –      Samkomulag ríkis og Reykjavíkurborgar um að finna kennslu- og einkaflugi nýjan stað í nágrenni borgarinnar hefur ekki leitt til niðurstöðu.
     –      Talsverð fjárfestingaþörf er fyrir hendi á vellinum, svo sem vegna aðflugsljósa, flugstöðvar, fjarstýrðs flugturns auk ýmislegs viðhalds.
    Þá skilaði starfshópur forsætisráðuneytis, með þátttöku innviðaráðuneytis, í júní síðastliðnum skýrslu um málefni einkaskóla á framhaldsskólastigi og á mörkum skólastiga. Þar er sérstaklega fjallað um að þörf sé á skýrari umgjörð náms í flugtengdum greinum. Innviðaráðuneytið mun vinna að nánari greiningu og tillögugerð um þetta.
    Ráðherra sér fyrir sér uppbyggingu flugtengdrar mennta- og þekkingarstarfsemi á og við Reykjavíkurflugvöll með því að taka á framangreindum atriðum.